Um mig:
Ég, Arna Rún, fæddist á fæðingardeild FSA 6. janúar 2001, kl. 20.21. Ég var tekin með keisara og það gekk mjög vel, var svaka stór eða 3880g og 53cm. Ég var með dökkt hár og gullfalleg augu og mamma og pabbi voru alveg rosalega stolt þennan dag.
Ég var skírð 24. mars 2001 og var látin heita í höfuðið á frænku minni henni Örnu sem býr í Reykjavík og svo heiti ég líka Rún, af því að mömmu og pabba fannst það svo fallegt, eins og ég.


Ég, Rakel Ösp, fæddist á FSA þann 17 júlí 2002 klukkan 15.24. Ég var lítil keisarastelpa, aðeins 47cm á lengd og 2735g á þyngd. Ég kom aðeins fyrir tímann, átti að fæðast 28. júlí en mamma var með meðgöngueitrun og þess vegna þurfti að taka mig með keisaraskurði aðeins fyrr og það gekk mjög vel. Ég var með smá ljósbrúnt hár og blá augu og alveg ofboðslega nett stelpa. Mamma og pabbi voru heldur betur líka stolt þennan dag.
Ég var skírð í Heydalakirkju 17. ágúst og fékk þetta fallega nafn Rakel Ösp, frænka mín var skírð um leið og fékk líka fallegt nafn, Hafdís Fía.



Ég, Fannar Berg, fæddist þann 7. júni 2005 á Háskólasjúkrahúsinu í Odense, kl 06.05. Ég var tekinn með keisara eins og systur mínar tvær og gekk það mjög vel. Ég var 3040g og 52cm sem þótti nokkuð gott miðað við að ég kom 13 dögum fyrir tímann. Ég var með brúnt hár og dökk augu og alveg eins og Rakel Ösp systir mín þegar hún fæddist.
Mamma og pabbi ákváðu að gefa mér strax þetta fallega nafn, Fannar Berg en svo var ég skírður á Íslandi, ásamt frændum mínum Agli Helga og Stefáni Boga, þegar við vorum þar í desember.




Mamma okkar heitir Þórhildur Höskuldsdóttir og pabbi er Skúli Jónas Skúlason og við búum í Hafnarfirði. Við eigum ömmu Guðrúnu á Akureyri og ömmu Soffíu á Breiðdalsvík, afar okkar eru báðir farnir til Guðs. Við eigum líka eina langömmu sem býr á Egilsstöðum og heitir Þórhildur.
Við erum svo heppin að eiga fullt af frænkum og frændum út um allt, fyrir austan, sunnan, norðan og í Svíþjóð. Okkur finnst voðalega gaman að hitta allt frændfólkið okkar og gerum það eins oft og við getum.
















Annað:
Nú erum við flutt frá Danmörku og erum í leikskólanum og barnaskólanum Hjalla í Hafnarfriði. Okkur finnst mjög gaman að búa í hér og erum búnar að eignast fullt af vinkonum og vinum í nágrenninu.



Karítas Kristel Benjamín Breki Einar Húmi Hafdís Fía frænka
Óliver Enok og Aron Ísak Gunnþórunn Sól Þór, Freyr og Eva Wium Steinar Logi vinur minn
Heiður Ósk Embla Dögg Brynjar Leó Egill Ari

Þú ert gestur nr. 46874