| Velkomin á síðuna mína |
| Ég heiti Þórný Harpa |
|
|
Um mig:
Ég fæddist á Landspítalanum við Hringbraut 4. Janúar 2006 klukkan 21:40. Ég var 4385 gr og 52 cm. Ég er með fallegt dökkt hár og blá augu.Mamma mín og pabbi eru alveg rosalega ánægð með mig og elska mig rosa mikið.
|
|
|
|
Mamma mín og Pabbi
Mamma mín heitir Auður Kapitola Einarsdóttir. Hún er '83 módel og er uppalin á Siglufirði. Pabbi minn heitir Heimir Rósinkranz Finnbogason. Hann er '83 módel og er af Álftanesinu.
Móðurást Lítill stelpa kom til mömmu sinnar þegar hún var að taka til kvöldmatinn. Hún rétti henni miða sem hún hafði verið að skrifa á. Mamman þurrkaði sér um hendurnar og las það sem stóð: Fyrir að slá blettinn = 500 kr Fyrir að búa um rúmið mitt þessa vikuna = 100 kr Fyrir að fara í búðina = 50 kr Fyrir að leika við litla bróður minn á meðan þú fórst í búðina = 25 kr Fyrir að fara út með ruslið = 100 kr Fyrir að fá góðar einkunnir = 500 kr Fyrir að raka garðinn = 200 kr Á meðan mamman stóð þarna og horfði á stelpuna sína bíða spennta eftir því að fá peninginn flugu þúsundir minninga í gegnum huga hennar. Þannig að mamman náði sér í penna og skrifaði hinum meginn á miðann: Fyrir níu mánuðina sem ég gekk með þig = 0 kr Fyrir næturnar sem ég sat með þig, hjúkraði þér, bað fyrir þér = 0 kr Fyrir tímann og tárin og kostnaðinn í gegnum árin = 0 kr Fyrir næturnar sem ég sat andvaka hrædd um þig og áhyggjurnar í framtíðinni = 0 kr Fyrir ráðin og vitneskjuna sem ég gaf þér og skólakostnaðinn er ég greiddi = 0 kr Fyrir dótið, matinn og fötin, og fyrir að þurrka nebbann þinn = 0 kr Hún sagði við stelpuna sína, þegar þú leggur þetta allt saman hvað það kostar mig að elska þig þá er það frítt. Jæja stelpan las miðann og leit á mömmu sína með tárin í augunum og skrifaði á miðann sinn með stórum stöfum GREITT AÐ FULLU. STEINGEITIN 22. desember - 19. janúar Steingeitin er alvarlegasta stjörnumerkið og oft er sagt að hún fæðist gömul og verði yngri eftir því sem árin færist yfir. Steingeitin er vel skipulögð og er ung að árum farin að taka þátt í rekstri heimilisins. Hún á stundum erfitt með að hafa gaman af lífinu og ekki er ólíklegt að barnið þitt velji frekar að raða fötunum sínum í skápinn en að fara út að leika. Mikilvægt er að foreldrar kenni börnum sínum að það er í lagi að slaka á og leika sér og að fullkomnun er ekki einungis ómöguleg heldur einnig mjög ópraktísk. Steingeitin er haldin fullkomnunaráráttu og óttast fátt meira en að missa sjálfsstjórn og þar með tök á tilverunni. Hún verður mjög óörugg ef hún hefur ekki gamalgrónar reglur og hefðir til að styðjast við og ef þær eru ekki til staðar er hún fljót að búa til reglur sjálf. Börn í steingeitinni eru mjög athugul, skynsöm og metnaðargjörn og dæmigerðar geitur vita allra merkja fyrst hvað þær ætla sér í lífinu. Mikilvægt er að kenna steingeitinni að tjá tilfinningar sínar, slaka á og sjá bjartari hliðar tilverunnar og ekki síst að ýta undir skopskyn hennar. |
| Þú ert gestur nr. 28880 |