Við erum Arna Katrín, Gunnar Óli og Hilmir Steinn
Nýtt nýtt 27.nóvember :)


Um mig:
Arna Katrín fæddist 27. janúar 2006 kl. 10:32. Hún var tæpar 12 merkur og 47 cm með rautt hár og blá augu.

Gunnar Óli fæddist 3. september 2008 kl. 04.34. Hann var 2390 gr og 47 cm. Hann var með rautt hár og blá augu, rauða hárið hvarf þó og í staðinn kom skjanna hvítt hár.

Hilmir Steinn fæddist líka 3. september 2008 kl. 04:38. Hann var 2300 gr og 45,5 cm. Eins og bróðir hans fæddist hann með fagurrauðan makka og blá augu en í kringum eins árs aldurinn var hárið allt orðið mjög ljóst.





Fæðingin mín
Það var fimmtudagur og vika síðan mamma hætti að vinna. Hún fór í sund eftir hádegið en fannst nú eitthvað skrítið hvað hún gat lítið synt vegna verkja sem hún fékk. Hún fór því bara í pottinn og slakaði á þar. Seinna um daginn fóru hún og pabbi svo til Hödda til að horfa á Ísland spila við Serbíu-Svartfjallaland í handboltanum. Þá vill ekki betur til en að hún fer bara að leka, og það strax í fyrri hálfleik. Þau skruppu því upp á fæðingardeild til að láta tékka hvort þetta væri ekki örugglega legvatn, sem þetta auðvitað var. Þau héldu því heim á leið og bjuggu sig undir langa bið eftir mér. Þau reyndu aðeins að hvíla sig en um klukkan 2 um nóttina var mamma komin með hríðir á 8 mín fresti og fannst ekki gott að liggja lengur. Pabbi lét því renna í baðið og dólaði mamma þar í eina 2 tíma. Um klukkan 7 um morguninn voru bara 5 mín milli hríða og svo leiðinglegt í sjónvarpinu, eða upptaka frá 250 ára afmæli Mozarts, svo þau drifu sig bara upp á fæðingardeild. Þangað komu þau rúmlega 8 og var mamma sett í mónitor til að athuga hvort ég væri að koma. Það var ljósmóðurnemi sem tók á móti okkur og hafði nú ekki trú á að neitt væri að fara að gerast alveg á næstunni. Mamma var því látin húka á grjóthörðum bekk í hálftíma en henni fannst það mjög óþægilegt því hún var með svo miklar hríðir. Þegar ljósan kom svo til að skoða útvíkkun varð hún heldur skömmustuleg á svipinn því mamma var komin með 6 í útvíkkun og kominn tími til að drífa sig á fæðingarstofuna. Þegar þangað kom þurfti mamma bara að fara að rembast þarna sem hún sat í hægindastólnum. Hún skreið því upp á bekkinn, lagðist á hliðina og reyndi að kreista mér út. Það tók nú ekki mikinn tíma og var alls ekki mikið mál, allavega mun minna en mamma hafði nokkurntíman ímyndað sér. Ég poppaði svo út um hálf ellefu, pabbi klippti strax á strenginn því hann var svo stuttur að ég náði ekki upp á mallann hjá mömmu annars. Ég öskraði þessi lifandis ósköp um leið og ég kom út og fékk 9 og 10 á Apgar. Við fórum svo öll í hreiðrið og slökuðum á þangað til við fórum heim daginn eftir.
Þú ert gestur nr. 25750