(sendið mömmu bara mail ef þið viljið lykilorðið :) )
Jæja þá er ég mætt:)
ég kom í heiminn þann 27/09/06 en þá var rekið á eftir mér með því að sprengja belginn sem gekk alveg super vel, og ég fæddist heil 17 merkur og 51 cm, samt gekk mamma bara 38vikur og 4daga með mig, ég var með blá augu og dökkt hár sem er núna rautt, og alveg gullfalleg lítil stelpa, :)

Mamma mín heitir Ingibjörg Lilja Jónsdóttir, (fædd 87)
alltaf kölluð Inga og er ég fyrsta barnið hennar mömmu,
og fyrsta barnabarn, svo til að flækja málin aðeins
er ég fyrsta langömmubarn afa megin,
og langömmubarn numer 2 ömmu megin.
Amma eitthvað að reyna að flækja þetta.





Nafnið mitt Emma þýðir:

Emma
Nafn þetta kemur upphaflega úr þýsku þar sem það var stytting á hinum ýmsu nöfnum sem hófust á "Erm-" sem merkir iðin.

Rós: Rós.



VOGIN

23. september - 23. október

Börn í vogarmerkinu eru oft glaðleg og broshýr og eru oftar en ekki börnin sem fá bros frá hinum sem bíða á biðstofu læknisins. Þau eru sjarmerandi og heilla aðra upp úr skónum. Félagslyndi einkennir vogina frá fyrstu tíð og litla vogin elskar að hafa margt fólk í kringum sig. Vogarbarn sem þarf að búa við einangrun getur orðið geðstirt, innhverft og óöruggt en þegar allt leikur í lyndi er það opið og hresst. Vogin á mjög erfitt með að gera upp hug sinn og virðist oft hafa lítinn viljastyrk. Þess vegna er mikilvægt að foreldrar hjálpi voginni að rækta með sér sjálfstæði og ákveðni meðal annars með því að fela henni ákveðin verkefni sem reyna á ákvarðanatöku. Líklegt er að Vogin spyrji álits og því er hægt að svara með því að spyrja: “Hvað finnst þér?” Síðan þarf að gefa henni næði til að vega og meta hlutina áður en hún tekur ákvörðun. Vogin er listræn í eðli sínu og mikilvægt að hlúa að þeim eiginleikum og skapa henni aðstöðu til að þroska listræna hæfileika sína.



Mamma er Konan

Sem kemur manni í heiminn með mikilli fyrirhöfn fæðir mann og klæðir og veitir alla þá hlýju og ástúð sem lítið barn þarf á að halda.

Mamma er alltaf til staðar með útrétta hjálparhönd þegar á þarf að halda.

Þerrar tárin þegar það er leiðinlegt og gleðst með manni þegar það er gaman að vera til.

Mamma er besta kona í heimi.





Þú ert gestur nr. 37299