Glitter Text Generator


um Gaurinn.

Hæhæ og verið velkomin á heimasíðuna mina. Ég heiti Christian Freyr og er Hermannsson. Ég fæddist þann 10. Mars 2006 klukkan 15:09. Þegar ég fæddist var ég með blá augu og mikið dökk brúnt hár, ég var 3220gr og 51cm. Við mamma fórum heim í Hrísey þann 13. Mars og það var rosalega gott að komast heim.


Mamma mín heitir Díana Björg ´84 og pabbi minn heitir Hermann Jón ´76.
Ég er annað barn foreldra minna, þannig að ég á eina stóra systur sem heitir Dísella Carmen og er hún fædd 18. Apríl árið 2004 svo varð ég stóri bróðir þann 6. Maí 2008 og þá eignaðist ég tvær litlar systur :0)











Annað:





Elsku mamma


Ég elska þig svo mikið
og mig langar svo til að segja þér af hverju

Það eru margar ástæður fyrir því að ég elska þig
Þú ert besta mamman í öllum heiminum
Ég á þér svo margt að þakka
Ég er svo stoltur yfir því að vera sonur þinn.


Þú hefur alltaf verið til staðar fyrir mig þegar ég hef þurft á þér að halda
Þú lýsir upp líf mitt
Frá þér streymir kærleikur og hlýja
Þú ert skilningsrík
og viskubrunnur þinn er óþrjótandi


Það er svo margt sem þú hefur kennt mér um lífið og tilveruna
Ég veit að ég væri ekki sú manneskja sem ég er í dag
ef ég hefði ekki átt þig að


Þú veist alltaf á hverju ég þarf að halda
og hvenær ég þarf uppörvun
Þú þekkir mig svo vel
Ég veit að til þín get ég alltaf leitað


Mig langaði bara svo mikið til að segja þér hve mikils ég met þig
Ég hef allt of oft tekið þig sem sjálfsögðum hlut


En það sem máli skiptir er að þú vitir að ég elska þig


ÞÚ ERT BEST






Elsku pabbi minn


Mig langar svo til að segja þér hve kær þú ert mér
og hve mikils virði þú ert í mínum augum
Ég tel mig lánsamann að hafa fengið að kynnast þér
Ég væri ekki sá sem ég er í dag nema vegna þín


Þú hefur leitt mig í gegnum lífið
þurrkað tár mín og huggað mig á slæmum tímum
Þú hefur stórt hjarta, fullt af visku
Þú hefur hjálpað mér að ná draumum mínum


Ég vildi að ég gæti gefið þér þann hæfileika að geta
séð sjálfan þig með augum annarra
Þá myndir þú sjá hve sérstakur þú í rauninni ert


Takk fyrir að vera til
Takk fyrir að vera til staðar
Takk fyrir að vera þú!!!!!!!!!!!!!!!




Til pabba míns


Ég elska þig af því að þú elskar mig
Mér finnst þú frábær og æðislegur þú verður
það alltaf. Ég elska þig vegna þess að þú vinnur
svo mikið til að eiga mat handa okkur og þak
yfir höfuðið.



Ég elska þig svo mikið vegna þess að þú skammar mig aldrei og
gefur mér nammi. Ég elska þig vegna þess að þú ert
PABBI MINN!!!!!!!!!!
Faðir er sá sem veldur því að þér finnst þú ómissandi þótt engum finnist það.



Dísella Carmen stóra systir

Tvíburasystur mínar

Sunneva Sól og Sara Sif

Ragnheiður og Hrafnhildur

Hafsteinn Heimir

Ingvi Hreiðar

Snævar Bjarki.


Þú ert gestur nr. 32785