Verið Hjartanlega Velkomin á heimasíðuna mína
Ég heiti Kolbrún Thelma og er FALLEGUST í heimi....


Um mig:
Kolbrún Thelma fæddist Þann 30 ágúst á Landsspítalanum. Mamma var sett á stað á þriðjudegi kl 21.oo og kom ég svo í heiminn á miðvikudegi kl. 12.05. Ég var voða mikil písl og var aðeins 2670 grömm (10 merkur) og 46 cm. Amma Kolla og pabbi voru viðstödd fæðinguna þeim fannst það voða gaman. Mamma gekk með mig í 38 vikur og var fylgjan hætt að gefa mér næringu þess vegna var ég svona lítil.
Amma Kolla og pabbi voru allan tíman viss um að ég væri strákur en mamma vissi allan tímann að ég væri stelpa. Ég er frumburður mömmu minnar.
Ég fæddist með dökkblá augu og alveg blika svart hár. Mömmu minni finnst ég vera það fallegasta sem til er.
Ég var skírð 8 apríl í seljakirkju, Kolbrúnar nafnið er í höfuðið á móðir ömmu minni en Thelma er bara út í loftið.
Mamma er ný búinn að beyta lykilorðinu þannig þið sem þekkið mömmu endilega sendið henni línur í gestó eða sendið henni mail.





Annað:
Foreldrar mínir heita Íris Kolbrún og Páll Karel. Mamma og ég búum í breiðholti en pabbi býr hjá Mömmu sinni. Mamma er í fæðingarorlofi en hún stundaði nám við FÁ við að klára stúdentin. Pabbi stundar nám við FB og er að læra rafvirkjun og er að vinna í ríkinu og hjá securitas.





DÓTTIR MIN

Elsku yndislega dóttir mín.
Ég veit að ég á ekki alltaf auðvelt með að tjá tilfinningar mínar
En nú langar mig að segja þér hvað ég elska þig mikið.
Mig langar til að segja þér hug minn.
Ég veit ekki hvar ég væri ef ég hefði ekki fengið
þig inn í líf mitt.
Þú ert mér allt.
Þú ert súrefnið mitt, andardráttur minn og löngun mín til að lifa
Hamingja mín hófst með komu þinni í þennan heim.
Í dag horfi ég á þig og er hissa á hvað þú ert raunveruleg.
Ég er svo ótrúlega heppin að hafa fengið þig inn í líf mitt, og fá að hafa þig mér við hlið í gegnum lífið.
Þú ert gullið mitt, fjársjóðurinn minn.
Ég hef reynt að læra sem mest af þér í gegnum tíðina.
Ég reyni að meta þig að verðleikum.
Þú hefur kennt mér svo margt um lífið sem ég annars hefði farið á mis við.
Hvar væri ég án þín?
Ég elska þig dóttir mín, nú og að eilífu.





Elsku Kolbrún Thelma mín

Áður en þú varst til þráði ég þig.
Áður en þú komst í heiminn elskaði ég þig.
Áður en þú hafðir lifað eina stund hefði ég fúslega
dáið fyrir þig.
Þú ert kraftaverk lífsins.
Takk fyrir að vera til.


ELSKU LITLA SÆTA STELPAN MÍN

Ást mín verður með þér
hvenær sem þú þarfnast hennar.

Ást mín verður með þér
þegar gleðin ber þig ofurliði.

Ást mín verður með þér
þegar erfileikarnir eru að buga þig .

Ást mín verður með þér
þegar þú óttast lífið .

Ást mín verður með þér
í dag og alla daga







Þú ert gestur nr. 7792