um okkur....
Hæ ég heiti Birta Dögg og fæddist ég 7. júlí (7.7) 2002 á Landspítalanum. Ég var 13 merkur eða 3325 gr. og 51 cm.
Ég var með brúnt hár og blá augu alveg geðveikt falleg!! Mamma mín heitir Ragnheiður Dröfn og pabbi minn heitir Snorri Þorsteinsson. Mamma var 18 ára þegar hún eignaðist mig og var pabbi minn alveg að verða 19 ára ( 18 júlí). Eftir sónanum átti ég fyrst að fæðast 10 júli en svo sagði sónarinn 17 júlí.
Svo það var eiginlega rifist um það hvenar ég myndi fæðast þar sem að Viggó afi á afmæli 3. júlí, svo á pabbi afmæli 18. júlí, svo á amma afmæli 25. júlí, svo á vinkona mömmu afmæli 11. júli, og svo á ég stóran frænda sem á afmæli reyndar 7 júlí eins og ég, svo hann fékk mig í afmælisgjöf :)
Hann Hilmar frændi var sko aldeilis heppinn!!! ;)
Ég á eina litla systur sem heitir Telma Fanný og lítin bróðir sem heitir Benidikt Viggó, ég er sko heppin stóra systir:)

Nafnið mitt merkir:
Birta: Birta, ljómi. Skylt Bertu.
Dögg: Náttfall. Leitt af nafnorðinu dögg.
Einnig notað sem viðliður ýmissa nafna.


Ég heiti Telma Fanný og kom í heiminn þann 20.10.07 lét bíða eftir mér í 4 daga. Auðvitað vildu allir að ég kæmi á þeirra afmælisdag eins og hjá Birtu systir :)
Ég fæddist með dökkt mikið hár og dökk augu. Ég var 50 cm og 14 merkur eða 3615. Það tók æðisleg ljósmóðir á móti mér sem heitir Fanný Berit og fékk ég Fannýar nafnið í höfuðið á henni :)
Mamma mín heitir Ragnheiður Dröfn og var hún 23 ára þegar ég fæddist (27.02.84) og pabbi minn heitir Svavar og var hann 30 ára (15.03.77). Ég er firsta barn pabba og annað barn mömmu. Ég á eina stóra systir sem heitir Birta Dögg (07.07.02) og lítin bróðir sem heitir Benidikt Viggó þau eru algjört æði.

Nafnið mitt merkir:
Telma; Enskt skáldsögunafn frá nítjándu öld.
Gæti verið leitt að gríska orðinu thelema "ósk".
Fanný; Myndað af forliðnum Fann- og viðskeytinu - ý.
Eða komiðu úr ensku, Fanny.


Ég heiti Benidikt Viggó og kom í heiminn þann 10.04.11 lét bíða eftir mér í 3 daga. Ég fæddist með dökkt mikið hár og dökk augu. Ég var 48 cm og 12 merkur eða 3.055 gr. Ljósmóðirin sem tók á móti mér heitir Ásthildur. Ég heiti Benidikt Viggó eftir afa mínum, pabba mömmu.
Mamma mín heitir Ragnheiður Dröfn og var hún 27 ára þegar ég fæddist (27.02.84) og pabbi minn heitir Svavar og var hann 34 ára (15.03.77). Ég er annað barn pabba og þriðja barn mömmu. Ég á eina stóra systir sem heitir Birta Dögg (07.07.02) og aðra sem heitir Telma Fanný þær eru algjört æði.

Nafnið mitt merkir:
Benidikt er úr latínu benedictus eða blessaður.
Dýrlingsnafn. Við létum breyta rithætti nafnsins.
Viggó – uppruni er óviss.
Stundum stuttnefni af Victor,
i öðru tilvikum stytting á nöfnum sem hefjast á Víg-.


Við eigum tvo hunda sem heita Tinni og Bella.




Annað:
Birta Dögg er krabbi.

Börn í krabbamerkinu eru oft mjög viðkvæm og foreldrar mega búast við að mörg tár muni falla í bernsku. Þau hafa því ríka þörf fyrir hlýju og snertingu auk þess sem öryggi skiptir þau gríðarlega miklu máli. Líf þeirra þarf að vera í föstum skorðum og umhverfið gott. Foreldrar barna í krabbamerkinu ættu ekki að rífast mikið í þeirra návist því þau taka allt mjög nærri sér og eru oft lengi að ná sér á strik eftir áföll. Krabbar byrgja oft tilfinningarnar inni og því er mikilvægt að tala við þau um tilfinningar. Dæmigert krabbabarn man alla tíð eftir því þegar það týndist í Hagkaup í tvær mínútur og tekur því sem höfnun. Krabbinn er oft mislyndur og misjafn í skapi, ýmist hress og jákvæður eða þungur og dregur sig inn í skel. Hann er oft rólegur og hlédrægur en getur gosið upp annað slagið vegna þess hve viðkvæmur hann er. Það þarf að umgangast hann af nærgætni og það er ekki sama hvað sagt er við hann og hvernig. Hann tekur margt nærri sér og er móðgunargjarn. Hann er gjarn á að geyma gremjuna innra með sér og láta á engu bera á yfirborðinu. Foreldrar þurfa því að hvetja litla krabbann til að segja frá því sem honum mislíkar. Mestu skiptir að skapa krabbanum öruggt heimilislíf, veita honum hlýju og gefa honum kost á að tjá tilfinningar sínar, t.d. með því að leyfa honum að eiga gæludýr.






Telma Fanný er vog.

Börn í vogarmerkinu eru oft glaðleg og broshýr og eru oftar en ekki börnin sem fá bros frá hinum sem bíða á biðstofu læknisins. Þau eru sjarmerandi og heilla aðra upp úr skónum. Félagslyndi einkennir vogina frá fyrstu tíð og litla vogin elskar að hafa margt fólk í kringum sig. Vogarbarn sem þarf að búa við einangrun getur orðið geðstirt, innhverft og óöruggt en þegar allt leikur í lyndi er það opið og hresst. Vogin á mjög erfitt með að gera upp hug sinn og virðist oft hafa lítinn viljastyrk. Þess vegna er mikilvægt að foreldrar hjálpi voginni að rækta með sér sjálfstæði og ákveðni meðal annars með því að fela henni ákveðin verkefni sem reyna á ákvarðanatöku. Líklegt er að Vogin spyrji álits og því er hægt að svara með því að spyrja: “Hvað finnst þér?” Síðan þarf að gefa henni næði til að vega og meta hlutina áður en hún tekur ákvörðun. Vogin er listræn í eðli sínu og mikilvægt að hlúa að þeim eiginleikum og skapa henni aðstöðu til að þroska listræna hæfileika sína.



Benidikt Viggó er hrútur:

Rambó leikfélaganna er mættur á svæðið. Með barn í hrútsmerkinu mega foreldrar búast við miklu fjöri á heimilinu því það ríkir engin lognmolla í kringum hrútinn. Ekki ætlast til þess að barnið sitji kyrrt með hringlu. Þetta er barnið sem veifar þér ofan af hæsta tré, alls óhrætt við að taka áhættu. Hrútsbarnið er allt annað en hljóðlátt og lætur oft vel í sér heyra. Sem eldsmerki er hrúturinn orkumikill og hefur ávallt eitthvað fyrir stafni. Verður erfitt að ráða við litla hrúta? Það er líklegra en ekki. Foreldrar ættu eins fljótt og hægt er að kenna þessu barni að vinna með öðrum börnum. Að deila einhverju með öðrum er eitthvað sem kemur ekki af sjálfu sér – það þarf að kenna litlum hrútum. Þeir eru einnig ákaflega tapsárir. Þeir þrá athygli og eiga mjög auðvelt með að verða sér úti um hana með ýmsum aðferðum. Hrútar eru fæddir leiðtogar og ef þú ætlar að hafa eitthvað að segja er betra að láta þá vita með afgerandi hætti hver er við stjórnvölinn því annars er eins líklegt að stjórnin verði tekin úr þínum höndum. Lítill hrútur er oft eins og ótemja, lítið gefinn fyrir að hlýða reglum og vera þægur nema þegar honum hentar. Vegna þess hve hann er orkumikill er nauðsynlegt að hann fái mikla hreyfingu. Hann verður að fá að hlaupa um og róta til heima hjá sér. Ef hann fær ekki útrás fyrir orkuna verður hann pirraður og ergilegur. Honum líður best í lifandi og fjörugu umhverfi. Þar sem fljótfærni og óþolinmæði eru meðal veikleika hans þarf að kenna honum að hægja á sér og telja upp að tíu áður en hann rýkur af stað. Einnig þarf að venja hann á að ljúka því sem hann byrjar á.





Tistan Andri og Aþena Nótt vinir mínir

Kolbrún Líf vinkona mín

Alda Kristín vinkona mín

Anton Gamalíel vinur minn

Arnþór frændi minn

Leo Örn vinur minn

Guðberg Olafur vinur minn

Lilja Marín frænka mín


E-mail

Ragnheiður (mamma)



Þú ert gestur nr. 22683