Svona dafna ég

Dags gamall

Mánaðar gamall

2 Mánaða

3 mánaða

4 mánaða

5 mánaða

6 mánaða

7 mánaða

8 mánaða

9 mánaða

10 mánaða
Hæ hæ Er búin að gleyma lykilorðinu hjá sæta frænda:). Værirðu til í að senda mér það ;). Kv. RebekkaRebekka frænka á Skaganum | 0 | 29.3.2010 22:30:28 #

Dags gamall

Mánaðar gamall

2 Mánaða

3 mánaða

4 mánaða

5 mánaða

6 mánaða

7 mánaða

8 mánaða

9 mánaða

10 mánaða


Ég kom í heiminn 9.september.2006. Landsspítalinn var staðurinn og tíminn 13:00. Ég átti að koma 4.sept en leið bara svona rosalega vel í bumbunni hjá mömmu minni, að ég ákvað að láta bíða aðeins eftir mér. Mamma var innan við tvo tíma að koma mér í heiminn og fannst henni það ekkert svo erfitt miðað við að ég var 4.080gr eða 16 merkur og 54 cm. Pabbi minn og amma mín voru viðstödd fæðinguna mína. Og held ég að þeim hafi nú ekkert leiðst.
Mamma mín heitir Heba Hansdóttir 1985 og pabbi minn Tómas Orri Einarsson 1981. Ég er þeirra fyrsta barn.
Þriðja barnabarn mömmu megin en fyrsta barnabarn pabba megin.
Mamma mömmu minnar heitir Helga laufdal og pabbi mömmu heitir Hans Ragnar. Mamma á þrjú systkyni þau Lindu(74),Tomma(81)og Geir(91). Linda systir Mömmu á tvo börn þau Guðmar(94) og Gumma (03).
Mamma Pabba mins heitir Helga líka og pabbi pabba heitir Einar.
Pabbi á tvö systkyni þau Önnu(83) og Kalla(91).
Síðan á ég fullt af hundasystkynum þau Vísu, Nölu og Simba. Þannig að vonandi verð ég jafn hrifinn af hundum eins og hún mamma mín.
Tvo langafa og fjórar langömmur á ég og fullt fullt af frændum og frænkum þannig að mig á ekki eftir að leiðast í jólaboðum.
Ég er rosalega ríkur.


Um Meyjubörn
23.ágúst - 22.september.
Meyjubörn eru næstum óþægilega upptekin af því að þóknast og láta líta á sig sem fullorðin. Þau hafa tilhneigingu til að taka mjög nærri sér ef þeim mistekst og stöðugt þarf að minna þau á að allir geri einhvern tímamistök - og að það sé allt í lagi. Meyjarbörn eru oft bráðger, en það má þakka eðlislægri vinnusemi þeirra og getu til þess að einbeita sér. Nauðsynlegt er að hampa þeim og hrósa fyrir þetta, þó að foreldrar ættu ekki endilega að búast við því að hæfileikarnir fylgi þeim inn í fullorðinsárin. Litla meyjan er mun viðkvæmari fyrir stríðni heldur en börn í öðrum merkjum. Jafnvel þó að ekkert slæmt liggi að baki stríðninni, þá hefur hún áhrif á brothætt sjálfstraust hennar. Samskipti við önnur börn, einkum börn af gagnstæðu kyni, hafa tilhneigingu til að vera stirð.
Barnið
Hið dæmigerða meyjarbarn:
* Er kvikt og skarpt.
* Á sérlega auðvelt með að læra.
* Er mjög sjálfsgagnrýnið.
* Setur sig ekki upp á móti þeim sem ráða.
* Á það til að gera lítið úr sjálfu sér.
* Finnst gaman að líkja eftir hegðun fullorðinna.
* Er feimið innan um ókunnuga.
* Er oft matvant.
* Þolir illa sríðni.
* Lærir snemma að tala og lesa.
Fyrir mæður drengja
Drengir eru breytilegir að stærð, þyngd og lit. Þeir eru alls staðar - upp á öllu og niðrí öllu, klifrandi, hlaupandi, stökkvandi. Mæður elska þá, eldri systur og bræður umbera þá, fullorðnir virða þá ekki viðlits, og Drottinn verndar þá. Drengur er sannleikur með óhreinindi í andliti, viska með tyggigúmmí í hárinu og von framtíðarinnar með ánamaðk í vasanum.
Drengur hefur matarlyst eins og hestur, meltingu eins og sverðagleypir, orku eins og vasaatómsprengja, rödd eins og einræðisherra. Hann er gæddur forvitni kattarins, ímyndunarafli skáldsins, feimni fjólunnar, viðbragðsflýti veiðibogans, og þegar hann býr til eitthvað hefur hann fimm þumalfingur á hvorri hendi.
Hann kann að meta rjómaís, hnífa, sagir, myndabækur, skóga, vatn (í sínu náttúrulega umhverfi), stór dýr, pabba, bíla, laugardagsmorgna, og brunabíla. Hann er lítið fyrir barnaskóla, myndalausar bækur, spilatíma, hálsbindi, rakara, stelpur, frakka, fullorðna eða háttatíma.
Enginn er eins árrisull, og enginn er eins síðbúinn til matar og hann. Enginn nema hann getur troðið í einn vasa ryðguðum hníf, hálf étnu epli, þriggja feta snærisspotta, þremur blossateinum, tuttuguogfimmeyringi, vatnsbyssu og dularfullu áhaldi sem enginn þekkir nema hann.
Drengur er sannkölluð töfravera - þú getur lokað hann úti úr vinnustofunni þinni, en þú getur ekki lokað hann út úr hjartanu þínu. Þú getur fengið hann burt úr skrifstofunni þinni, en þú getur ekki fengið hann burt úr huga þínum. Það er eins gott að gefast ekki upp strax - hann er fangavörður þinn, húsbóndi og herra - frekknóttur ólátabelgur. En þagar þú kemur heim á kvöldin eða með allar borgir vona þinna og drauma hrundar, getur hann reist þær aftur með tveim töfra orðum
''Halló mamma ''
Ef karlmenn gengu með börnin!
Væri barneignarfrí á fullum launum lágmark tvö ár...
Væri búið að finna lækningu við appelsínuhúð...
Væri "náttúruleg" fæðing úr sögunni...
Væri morgunógleði talið helsta heilsuvandamál þjóðarinnar...
Væri árangur getnaðarvarnapilla 100%...
Væru börn geymd á spítalanum þar til þau kynnu sjálf að fara á kopp...
Væru menn æstir í að binda sig...
Væru tvíburar ekki svona rosalega krúttlegir í þeirra augum...
Yrðu synir að vera komnir heim af stefnumótinu klukkan tíu á kvöldin...
Væru skjalatöskur notaðar sem bleyjugeymsla...
Væru óléttuföt helsta tískuframleiðsla heims...
Væru þeir rúmliggjandi alla níu mánuðina...
Myndu konur stjórna heiminum...
Anika Líf
Victor Breki
Frikki og Embla
Mammmmma það er allt í vatni!!! Taktu þetta!
Mamma það koma ekkert svona ljótir karlar heim er það? Nei þeir eru bara í bíómyndum..Þá segir Ívar já en ef þeir koma get ég ekki berjist...Ég nú?? Afþví ég á ekkert geislasverð..(ný búin að sjá smá úr star wars)
hæhæ mamma þín þarf að ve3r dugleg að setja myndir inn alltaf gaman að sjá hvað þú ert duglegur kv maggaMagga og bumbubúi | 0 | 21.8.2009 09:42:16 #
Hæ hæ sætilíus. Það hefur sko verið mikið stuð hjá ykkur í Vestmannaeyjum miðað við allar flottu myndirnar sem þið tókuð. Alltaf svo gaman að fara með svona mörgum í ferðalag. Knús og kossar til ykkar frá mér og KatrínuAnna frænka | 0 | 16.7.2009 12:28:39 #