Vefdagbók
Myndaalbúm
Kveðjur frá gestum
Gullkorn
Dagbók barnsins
Dagmar Hrund
Dagmar Hrund

10 ára afmæli englaprinsessunnar....

10 ár eða heill áratugur síðan ég fékk þig í fang mitt elsku barnið mitt, mikið vorum við foreldrar þínir stolt og erum enn. Við áttum ekki von á því að eignast stúlkubarn en hvað þá svona gullfallega stúlku. Þú varst með svo fallegt dökkt hár og þessi líka dökku augu sem bræddu mann alveg. Þennan dag skein vetrarsólin skært eins og veðrið var í dag.

Mikið hefur nú breyst í lífi okkar pabba þíns síðan þá, við búin að eignast þrjú börn, Dag Þór og svo nú í ár tvíburasystur þínar Ölmu Hrund og Diljá Hrund. Okkur pabba þínum fannst ekki annað hægt en að þær fengju millinafn þitt til að halda því á lofti. Mikið minna þær okkur á þig hvern einasta dag en söknuðurinn til þín hverfur aldrei. Erfitt er að hugsa til þess að þær fái ekki að kynnast þér í eigin persónu hetjunni okkar en við munum gera eins og við getum til að þær fái að kynnast þér eins og við höfum gert við Dag Þór sem grætur stundum áður en hann fer að sofa yfir því að hafa aldrei hitt þig. Við gerum hvað við getum á hverjum degi að systkin þín viti af þér og þekki enda ertu svo stór þáttur í lífi okkar.

Í dag hittumst við upp í kirkjugarðigarði með ömmu Ásu, Rúnar afa, börnum og barnabörnum þeirra, tekin var mynd af þeim með öllum barnabörnum þeirra og varst þú og Sindri Þór þar með líka.

Mikið var leiðið ykkar fallegt fullt af bleikum rósum, kertum og litlum englum. Eftir veru okkar hjá ykkur systkynunum fórum við heim til að borða bleika köku og bollakökur með bleiku kremi til að minnast þín enda ekki hægt annað en að minnast fallega engilsins okkar. Alla amma og Gunni afi komust því miður ekki þar sem þau voru stödd í London en í staðinn fór Alla amma með fallegar 10 rósir til þín á fimmtudaginn.

Elsku fallega englahetjan okkar innilega til hamingju með daginn þinn, við pabbi þinn erum endalaust stolt yfir að hafa fengið að vera foreldrar þínir og gerðir þú okkur að betra fólki. Þú munt alltaf eiga stórt pláss í hjörtum okkar sem enginn mun fylla.

Ástar- og saknaðarkveðjar mamma, pabbi, Bjartur Þór, Dagur Þór, Alma Hrund og Diljá Hrund.

0 | 23.10.2011 23:57:58 #

Elsku fallega englaprinsessan mín, innilega til hamingju með daginn þinn.

Það er ótrúlegt að 9 ár séu liðin frá því við pabbi þinn tókum á móti þér á þessum líka fallega og bjarta degi eins og dagurinn í dag var. Stoltið skein úr okkur foreldrunum að hafa getið svona fallegri stelpu sem brosti út í eitt. Litla hetjan okkar, enn erum við stolt að hafa fengið að hafa þig hjá okkur þó svo það hafi verið allt of stutt en þú gafst okkur svo mikið engillinn minn.

Í dag fórum við Bjartur Þór, Dagur Þór, ömmur og afar upp í garð til ykkar systkinanna og settum blóm og kerti, mikið var það falleg stund enda veðrið eins og á deginum sem prinsessan okkar fæddist. Pabbi komst því miður ekki þar sem hann er með Jóa í Kóreu á HM móti, mikið fannst honum erfitt að vera svo langt í burtu frá fjölskyldunni á þessum degi en svona er lífið það heldur áfram. Eftir þessa fallegu stund upp í garði hjá ykkur Sindra Þór fórum við heim og drukkum kaffi með bleikri köku sem ég og Dagur Þór bökuðum í tilefni afmælisdagsins, ekki hægt annað en að minnast hans þar sem þessi dagur var þvílíkur gleðidagur í lifi okkar fyrir 9 árum. Við söknum þín endalaust og ertu þú í huga okkar allra alla daga elsku prinsessan okkar.

Takk elsku prinsessan okkar fyrir að velja okkur sem foreldra þína við munum alltaf minnast þín í hjörtum okkar.

Ástarkveðja mamma, pabbi, Bjartur Þór og Dagur Þór

0 | 23.10.2010 21:28:09 #

  • Til hamingju með dagin elsku prinsessa
    Ólöf Tara Smáradóttir
    |
    23.10.2010 12:47:23
  • Innilega til hamingju með afmælið fallega englastelpa ♥ *Englaknús*
    Ragnhildur
    |
    23.10.2010 11:40:33
Hugsa til ykkar. Tíminn líður en söknuðurinn fer ekkert. Guð geymi þau bæði. Knús, Sóley
Sóley | 0 | 8.9.2010 23:14:35 #

Enn eitt árið liðið og margt búið að gerast í lífi okkar á þessu ári. Þú og bræður þínir eignuðust bróður sem fékk nafnið Sindri Þór, en ekki fengum við að hafa hann hjá  okkur frekar en þig og því liggur hann nú hjá þér í Gufunesinu. Við vitum að þú passar hann fyrir okkur enda svo dugleg stelpa. Það er ótrúlegt að hugsa til þess að 7 ár séu liðin frá því við héldum þér í síðasta sinn í fangi okkar, tíminn líður en aldrei skal þetta verða auðvelt. 7 ár er langur tími en þegar maður hugsar til þessa tíma þá er svo stutt síðan við gengum þessa þrautagöngu með þér.

Við fjölskylda fórum upp í garð ásamt ömmum og öfum í kvöld, settum blóm og kerti á leiðið ykkar systkinanna. Mikið hefur allt blómstrað þar í sumar, blómin sem við plöntuðum í vor eru svo falleg enn í dag og september kominn.

Lífið heldur áfram og söknuðurinn enn mikill, við höldum áfram enda ekki hægt neitt annað  því þú kenndir okkur að brosa framan í lífið þó svo það væri ekki auðvelt en það auðveldar svo margt að geta brosað og það kenndir þú okkar, prinsessan okkar!!

Elsku besta, fallegasta prinsessu stúlkan okkar, við elskum þig óendanlega og söknum þín.

Knús og kossar

Mamma, pabbi, Bjartur Þór og Dagur Þór

0 | 8.9.2010 21:42:43 #

:-* knús á ykkur.
Ásta | 0 | 8.9.2010 17:40:40 #

Forsíða

Til minningar um:

Dagmar Hrund englastelpu



 



Ég heiti Dagmar Hrund og fæddist á Landspítalanum þann 23. október 2001. Ég var 14 merkur eða 3500 gr. og 52 cm. Ég var með mikið dökkt hár og stór dökk augu sem eru orðin blá í dag. Ég bý í Kópavogi með fjölskyldu minni. Mamma mín heitir Bryndís og pabbi minn Helgi Þór, svo á ég líka stóran bróður sem heitir Bjartur Þór, hann á líka heimasíðu hér á barnalandi endilega skoðið hana líka.





 



Þann 22. janúar 2002 greindist ég með Hvítblæði. Ég lá inni á Landsspítalanum í svolítinn tíma eftir að ég greindist en var svo dugleg að ég var send heim og hef bara þurft að fara upp á spítala þá daga sem ég hef þurft að fá lyf eða til að fara í blóðprufu, hef því getað sofið heima í rúminu mínu. Ég er núna farin að borða ýmsan mat en er samt enn á brjósti svona með, (mér finnst nefninlega brjóstið mitt svo gott). Ég er með svokallaðann lyfjabrunn á bringunni og þar fæ ég lyfin mín svo ekki þurfi að leita að æð í hvert skiptið sem nál er sett upp hjá mér. Ég er á miklum lyfjum og hjálpa mamma mín og pabbi mér að taka sum þeirra heima en önnur þarf ég að fá á spítalanum því þau þurfa að fara beint inn í blóðið mitt. Meðferðin sem ég er í tekur rúmlega 2 ár og er ég því einungis búin með 1/4 af henni núna. Ég hef staðið mig mjög vel hingað til og líður mjög vel þrátt fyrir allt þetta.







Kíkið endilega ávefdagbók mína, þar er að finna allt það nýjasta!



Það væri líka voða gaman að ef þið sæjuð ykkur fært að kvitta í



gestabók mína.



Endilega sendið mér póst ef ykkur langar



.







Þið getið líka skoðað síður bræðra minna
Bjartur ÞórDagur Þór
með því að smella á nafn þeirra!!!








Kveðja Dagmar Hrund 











0 | 12.3.2010 01:51:10 #
Elsku litli engill Ég gleymi þér aldrei við vorum saman á lsp og vorum að ganga í gegnum það sama. Á hverjum afmælisdegi okkar hugsa ég kærlega til þín og vona þér líði vel á himnum. Vona að fjölskyldan hafi það eins gott og hún getur. Þín vinkona Ólöf Tara
Ólöf Tara Smáradóttir | 0 | 16.1.2010 22:59:23 #
  • Til hamingju með daginn þinn litli fallegasti engill. Hugsa til þín og fjölskyldu þinnar á þessum degi. Knús, Sóley og fj.
    Sóley
    |
    23.10.2009 21:04:56
  • Til hamingju með afmælið engla stelpa;) höfum stundum kíkt á flottu síðuna þína og verið bara tóm hvað okkur langar að segja á síðunni þinni en höfum ástæðu til að óska þér til hamingju með daginn. Þú ert eflaust rosalega fallegur engill á himnum. Bestu kveðjur Guðmundur Sölvi og mamma
    Guðmundur Sölvi og mamma
    |
    23.10.2009 19:07:33
  • Alltaf þegar ég heyri í honum Masa hugsa ég til litlu fallegu skottunnar sem fæddist á þessum degi. Hugsa til ykkar fallega fjölskylda og sendi ykkur hlýjar hugsanir. Kveðja Lilja Kolbrún.
    Lilja Kolbrún
    |
    23.10.2009 11:55:19
  • Akkúrat núna erum við börnin í leikskólanum mínum að hlusta á Eðludansinn og alltaf hugsa ég þá til fallegu Dagmarar Hrundar, og það á þessum degi! knús á ykkur öll
    Ásta
    |
    23.10.2009 11:16:26

6 ár í dag....ótrúlegt en satt þá líður tíminn.

Við fórum eins og vaninn er á þessum degi upp að leiði þínu og settum ný blóm. Ömmur þínar, afar, frænkur og frændur og Helga Sifin okkar mættu eins og alltaf og fylltu leiðið af rósum.....mikið er nú gott að eiga svona gott fólk að. Allir sakna þín svo mikið og finnst það tilheyra að fá að koma til þín á þessum degi.  Dagur Þór vildi endilega fá að kveikja á kertinu enda tilheyrir það þegar komið er til þín.

Við söknum þín ofsalega og skilur maður ekki hvernig lífið heldur áfram en það gerir það og erum við viss um að það sé þér að þakka, þú fylgir manni áfram gegnum lífið. Við erum óendanlega þakklát fyrir að hafa átt þig og lærðum mikið af þér.

Elsku engillinn okkar elskum þið óendanlega.

Knús og kossar

Mamma, pabbi, Bjartur Þór og Dagur Þór

0 | 8.9.2009 22:31:05 #

  • Elsku vinir, samhryggist ykkur innilega í dag sem og alla aðra daga. Skrítið það séu komin 6 ár síðan Dagmar Hrund lést. Fyrir ykkur og okkur sem höfum misst barn er það enginn tími. knús og kossar, Herdís og strákarnir í Dynsölum 10.
    Herdís
    |
    8.9.2009 10:43:23
  • 6 ár eru síðan að þú fórst litla ljósið okkar og tíminn líður enn. Megir þú hvíla í friði elskan! Kveðja Sigga frænka
    Sigga frænka
    |
    8.9.2009 08:44:28
  • hæ,eg rakst inna siðuna ovart en eg veit hvernig þetta er að missa barn missti stelpu 3 ara gamla uti boston hun var með hjartagalla en do vegna þess að hun datt ur ruminu þegar hun var að fyblast og datta ona hausin og do 2 vikum siðar eg vorkenni ykkur mjog mikið eg a eldri barn sem var 6 ara þegar su litla for og hann spyr reglulega hvort hann megi heeimsækja litlu eg barðist við tarinn þegar eg skoðapi þessa siðu þetta er erfitt að þurfa að berjast við þetta litla min var 16 kilo en lettist i 10 kilo a tveim vikum eg get ekki annað en gratið vegna þess að þessi litla englaskotta var greinilega ekki tilbuinn að fara svona snemma vilti bara leysa þetta verkefni sem fyrst en fekk ekki að klara hun og litla min eru nuna a betri sað þar sem þær finna ekki fyrir sarsauka eða neitt en þær eru ennþa hja okkur við bara sjaum þær ekki guð tok þeim með opnum ormum og reynir að lata þeim liða sem best eldri minn greindist með braða astma og er eg mjog hrædd um lif hans en þið voruð hrædd vegna mikið stærri hlut hvitblæði eg vona að þið hafið það sem best kv englamoðir
    englamoðir
    |
    5.9.2009 18:41:34
  • Varð að koma hingað inn og skoða myndir af litlu skottunni. Horfði á ykkur í sjónvarpinu... ótrúleg lífsreynsla sem á ykkur er lagt. Kærar kveðjur Lilja.
    Lilja Kolbrún
    |
    28.8.2009 22:13:37
  • Hæhæ vildi bara kvitta og segja ég samhryggist ykkur og hún var sko greinilega algjört hörkutól. var að horfa á ykkur í sjónvarpinu:) Kv. 'Osk og Co
    'Osk
    |
    28.8.2009 22:06:47
Elsku vinir, var að skoða myndir af litlu stelpunni ykkar. Hann Dagur var svo sætur í kirkjugarðinum hjá Jakobi þegar hann sagði við mig að hann ætti líka systir sem væri engill. Yndislegt að heyra hann tala um hana og ég vona að ég geti kennt Óttari slíkt hið sama um bróður sinn. Kær kveðja, kossar og knús, Herdís
Herdís | 0 | 24.6.2009 10:36:38 #