Velkomin/n á heimasíðuna mína
Ég heiti Arngrímur Egill Gunnarsson og er stoltur stóri bróðir Öglu Maríu


Koma mín í þennan yndislega heim var áætluð þann 26. apríl en var pínulítið að flýta mér og fæddist kl. 21:45 þann 19. apríl 2006. Það liðu ekki nema 2 og hálfur klukkutími frá því að við fjölskyldan mættum á fæðingardeildina á Landspítalanum þar til að ég var kominn í fangið á foreldrum mínum. Ég var 2.685 gr. og 50 cm.

Agla María fæddist kl. 21.46 þann 25. ágúst 2010, aðeins 15 mínútum eftir að mamma og pabbi mættu á fæðingardeildina í Keflavík. Hún var svolítið stærri en ég þegar hún fæddist eða 14 merkur og 53 cm.

Foreldrar okkar heita Gunnar Egill Sigurðsson og Guðný María Jóhannsdóttir. Við búum í Reykjanesbæ ásamt hundinum okkar honum Finni.

Við eigum ömmu og afa á Húsavík og þau heita Sigurður og Hanna. Við erum barnabörn númer 13 og 14 hjá þeim. Svo eigum við ömmu og afa á Álftanesi og þau heita Rósa og Jóhann Arngrímur. Við erum fyrstu barnabörnin þeirra.

Foreldrar mínir völdu nafnið Arngrímur Egill handa mér. Það er eftir afa mínum í móðurætt en hann heitir Jóhann Arngrímur og langafa mínum heitnum í föðurætt en hann hét Egill Aðalgeir.

Litla systir mín fékk nafnið Agla María. Maríu nafnið er tileinkað Maju langömmu okkar sem býr á Þórshöfn. Agla María var skírð þann 17. október, á þrítugs afmælisdaginn hennar mömmu.





Nöfnin okkar fallegu
Arngrímur - örn, eða arinn, og grímur: dulbúinn maður
Egill - sennilega skylt agi og ótti, ógn: ógurlegur

Agla - dregið af Egill
María - grísk mynd hebreska nafnsins Mirjam: hin fagra. 2/2. kyndilmessa. 25/3. Boðunardagur Maríu
Þú ert gestur nr. 25429