|
|
|
Lykilorðið er götuheitið afa steina og ömmu Jósý ![]()
![]()
Mamma mín var búin að bíða pínu eftir mér, en hún var sett á afmælisdaginn hans afa Steina sem er 8. nóv, en allt kom fyrir ekki. Ég vildi sko bara eiga minn eigin dag og kom því ekki í heiminn fyrr en 14.Nóvember 2006 . Ég er orðin 2ja árs skvíza og er rosalega hress og skemmtileg alltaf. Enda á ég nú ekki langt að sækja það. Ég á yndislega mömmu, hún heitir Bryndís Þorsteinsdóttir (´86) og pabbi minn heitir Hjalti Thomas (´83) en hann býr í reykjavík. Ég er fyrsta barn mömmu minnar og er hún rosalega ánægð með mig. Við eigum heima á Siglufirði Ég bestu ömmu og afa í öllum heimi hérna á Sigló líka, enda er ég sko algjör afastelpa.
|
|
|
Þegar barn í sporðdrekamerkinu lítur dagsins ljós beinast öll augu að því. Og barnið heldur þeirri athygli í langan tíma því það þarf mikla athygli. Foreldrar mega búast við því að heyja valdabaráttu við litla sporðdrekann því hann ætlast oftar en ekki til þess að pabbi og mamma séu boðin og búin þegar hann þarfnast einhvers (ekki 5 mínútum síðar). Þetta er kraftmikið barn og foreldrar þurfa að vera á verði því þau eru snillingar í að fá fólk til að snúast í kringum sig og nota til þess alls kyns kænskubrögð. Uppeldi sporðdrekans getur skipst í tvö horn því þó hann sé ráðríkur, skapstór og þrjóskur getur hann einnig verið blíður og elskulegur. Það borgar sig ekki að skipa honum fyrir eða ætla að ráðskast með hann. Þó slíkar uppeldisaðferðir séu óhentugar fyrir öll börn geta afleiðingarnar orðið sérstaklega slæmar þegar sporðdrekinn á í hlut. Hann getur lokað á umhverfið, dregið sig inn í skel og orðið stífur og jafnvel árásargjarn. Foreldrar þurfa að fylgjast með tilhneigingu litla drekans til að byrgja inni reiði. Best er að fá hann til að opna sig með því að tala við hann í ró og næði. Sporðdrekar eru mjög næmir á umhverfi sitt og því er mikilvægt að umgangast þá með varúð og hreinskilni. Sporðdrekanum er illa við yfirborðsmennsku og fals og missir auðveldlega álit á þeim sem ekki koma heiðarlega fram við hann.
Sem kemur manni í heiminn með mikilli fyrirhöfn fæðir mann og klæðir og veitir alla þá hlýju og ástúð sem lítið barn þarf á að halda. Þegar maður eldist og ætti kannski að geta hugsað meira um sig sjálfur, til dæmis að vera í hreinum fötum og laga til í herberginu sínu, leyfir mamma manni það ekki því hún er vön að hugsa svo vel um barnið sitt. Mamma er alltaf til staðar með útrétta hjálparhönd þegar á þarf að halda, þerrar tárin þegar það er leiðinlegt og gleðst með manni þegar það er gaman að vera til. Takk fyrir að vera mamma mín.
Hún brosir Yndislega dóttir mín. Hún sefur og brosir og hlær, andlitið svo fullt af forvitni og töfrum að mér finnst heimurinn hafa verið skapaður henni til heiðurs. Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt, sem dropi breytir veig heillar skálar. Þel getur snúist við atorð eitt. Aðgát skal höfð í nærveru sálar.
Elsku Sandra Rós. Ást mín verður með þér hvenær sem þú þarnast hennar. Ást mín verður með þér Þegar gleðin ber þig ofurliði. Ást mín verður með þér Þegar erfiðleikarnir eru að buga þig. Ást mín verður með þér þegar þú óttast lífið. Ást mín verður með þér í dag og alla daga.
Bríet Stefanía Benedikt Frímann Ingvar Kristinn Sylvía Rán Sveinn Kristinn Ísabella Ósk Heimir Már Gísli Már Viktoría Unnur Guðrún Lillý Ingþór Jón Sveinbjörn Skúli Ingvi Hreiðar ![]()
|
| Þú ert gestur nr. 33960 |