Ég heiti Emílía Mist og kom í heiminn þann 5.mars 2006. Mamma mín heitir Erla Bryndís og pabbi minn heitir Gestur Örn og er ég þeirra fyrsta barn. Ég er einnig fyrsta barnabarnið mömmu megin, en föður amma mín á tvö yndisleg barnabörn fyrir. Föður afi minn er á himnunum en hann vakir yfir mér;)
Ég lét nú bíða aðeins eftir mér en loks þegar ég kom í heiminn gerði ég mömmu og pabba mjög stolt;) Ég fæddist með mikið dökkt hár og dökk falleg augu lang flottust;) ég var 14 merkur og 50 cm. algjört draumabarn;)
Síðan var ég svo heppinn að eignast lítinn bróður 6 Feb. 2009;)
Viktor Ari fæddist með mikið dökkt hár og dökk augu, hann var reyndar aðeins minni en ég og var hann 3080 gr og 51 cm en alveg jafn flottur og ég;)
Við erum gullmolarnir þeirra mömmu og pabba og erum lang flottust!
ÞAÐ LÆRA BÖRN SEM ÞAU BÚA VIÐ!
Það barn sem býr við hnjóð, lærir að fordæma.
Það barn sem býr við hörku, lærir fólsku.
Það barn sem býr við aðhlátur, lærir einurðarleysi.
Það barn sem býr við ásakanir, lærir sektarkennd.
Það barn sem býr við mildi, lærir þolgæði.
Það barn sem býr við örvun, lærir sjálfstraust.
Það barn sem býr við hrós, lærir að viðurkenna.
Það barn sem býr við réttlæti, lærir sanngirni.
Það barn sem býr við öryggi, lærir kjark.
Það barn sem býr við skilning, lærir að una sínu.
Það barn sem býr við alúð og vináttu, lærir að elska.
ELSKU BARN.
Ást mín verður með þér
hvenær sem þú þarfnast hennar.
Ást mín verður með þér
þegar gleðin ber þig ofurliði.
Ást mín verður með þér
þegar erfileikarnir eru að buga þig .
Ást mín verður með þér
þegar þú óttast lífið .
Ást mín verður með þér
í dag og alla daga.
|
Þú ert splunkuný.
Enn ertu alsæl
með þennan litla heim
-uppgötvar loftið, ljósið,
óljós andlitin.
En á hverjum degi
stækkar heimur þinn
og ég fæ að taka þátt
í fögnuði þínum yfir honum.
Ég hef öðlast nýjan tilgang
- að kynna þér heiminn!
~FISKARNIR~
19. febrúar - 20. mars
Hið dæmigerða fiskabarn er yfirleitt hæfileikaríkt og vel gefið en viðkvæmt og ekki ólíklegt að það missi stjórn á tilfinningum sínum og bresti í grát af engri sjáanlegri ástæðu. Fiskar eru gjarnir á að fórna sér fyrir aðra. Mikilvægt er að fara varlega að fiskunum og varast að særa tilfinningar þeirra með vanhugsuðum orðum. Fiskar eru mjög skapandi og þeir geta skapað sinn eigin heim þar sem þeir finna til öryggis þegar hinn harði heimur reynist þeim ofviða þá flýja þeir inn í sinn eigin. Því er mikilvægt að hvetja litla fiskinn til að koma út úr skel sinni og takast á við lífið, hvetja hann til að segja skoðun sína hreint út. Foreldrar ættu einnig að hlúa að listrænum hæfileikum barnsins ef þeir koma fram. Fiskurinn er í eðli sínu vingjarnlegur og skilningsríkur en jafnframt umburðarlyndur. Hann á t.d. erfitt með að trúa nokkru misjöfnu um aðra og er því alltaf jákvæður í fyrstu gagnvart ókunnum
~VATNSBERINN~
20. janúar - 18. febrúar
Vatnsberabarnið fer fljótt sínar eigin leiðir hvort sem það er í fataburði, hugsun eða hegðun. Það er uppfinningasamt, frumlegt og fullorðinslegt og lærir snemma að tjá sig og skila heim fullorðinna. Litli vatnsberinn vill sjá um sig sjálfur og fara sínu fram og er oft á tíðum mjög dramatískur. Ef honum leiðist gæti hann átt það til að stofna til vandræða bara til að fá spennu og drama inn í líf sitt. Besta uppeldisaðferðin er fólgin í umræðu og skynsamlegum fortölum. Vatnsberinn er þrjóskur og lítið þýðir að skipa honum fyrir eða beygja hann til hlýðni með skömmum. Best er að koma fram við barnið sem vitsmunalegan jafningja því vatnsberinn er hugarorkumerki og því skipa umræður og skynsamlegar fortölur fyrsta sæti. Vatnsberabörnin geta sýnt ást og væntumþykju á frekar ópersónulegan hátt. Þau eru yfirleitt vingjarnleg og yfirveguð en ekki mjög tilfinningasöm og oft illa við mikið kjass.
|