Ég er fædd 9. febrúar 2006 kl.07.17. Ég var 13,5 merkur og mældist heilir 51 cm og vó 3380 grömm. Ég fæddist með svaka mikið dökkt hár og dökk blá augu, en aldrei að vita nema það breytist.
Pabbi minn heitir Ásmundur Bjarni Árnason og mamma mín heitir Guðrún Helgadóttir og . Svo á ég tvö systkini þau Bjarnveigu Birtu og Þóri Snæ. Svo á ég alveg fullt af frændum og frænkum því bæði mamma og pabbi eiga fimm systkyni hvort, sem svo eiga alveg fullt fullt af börnum. Ég á tvo afa, einn sem heitir Árni og á heima á Selfossi og annan sem heitir Helgi og býr í Kjósinni.



Sollukot þar sem ég var í pössun

Leikskólinn minn

Hrafnkell

Valdimar og Tjörvi

Bryndís

Birta systir mín

Bakgrunnasíða Fanneyjar

Freyja

Andrés og Þorgeir

Dagur Leó



Vatnsberabarnið fer fljótt sínar eigin leiðir hvort sem það er í fataburði, hugsun eða hegðun. Það er uppfinningasamt, frumlegt og fullorðinslegt og lærir snemma að tjá sig og skila heim fullorðinna. Litli vatnsberinn vill sjá um sig sjálfur og fara sínu fram og er oft á tíðum mjög dramatískur. Ef honum leiðist gæti hann átt það til að stofna til vandræða bara til að fá spennu og drama inn í líf sitt. Besta uppeldisaðferðin er fólgin í umræðu og skynsamlegum fortölum. Vatnsberinn er þrjóskur og lítið þýðir að skipa honum fyrir eða beygja hann til hlýðni með skömmum. Best er að koma fram við barnið sem vitsmunalegan jafningja því vatnsberinn er hugarorkumerki og því skipa umræður og skynsamlegar fortölur fyrsta sæti. Vatnsberabörnin geta sýnt ást og væntumþykju á frekar ópersónulegan hátt. Þau eru yfirleitt vingjarnleg og yfirveguð en ekki mjög tilfinningasöm og oft illa við mikið kjass.



Elsku mamma

Ég elska þig svo mikið
og mig langar svo til að segja þér af hverju

Það eru margar ástæður fyrir því að ég elska þig
Þú ert besta mamman í öllum heiminum
Ég á þér svo margt að þakka
Ég er svo stolt yfir því að vera dóttir þín

Þú hefur alltaf verið til staðar fyrir mig þegar ég hef þurft á þér að halda
Þú lýsir upp líf mitt
Frá þér streymir kærleikur og hlýja
Þú ert skilningsrík
og viskubrunnur þinn er óþrjótandi

Það er svo margt sem þú hefur kennt mér um lífið og tilveruna
Ég veit að ég væri ekki sú manneskja sem ég er í dag
ef ég hefði ekki átt þig að

Þú veist alltaf á hverju ég þarf að halda
og hvenær ég þarf uppörvun
Þú þekkir mig svo vel
Ég veit að til þín get ég alltaf leitað

Mig langaði bara svo mikið til að segja þér hve mikils ég met þig
Ég hef allt of oft tekið þig sem sjálfsögðum hlut

En það sem máli skiptir er að þú vitir að ég elska þig

ÞÚ ERT BEST



Elsku pabbi minn

Mig langar svo til að segja þér hve kær þú ert mér
og hve mikils virði þú ert í mínum augum
Ég tel mig lánsama að hafa fengið að kynnast þér
Ég væri ekki sú sem ég er í dag nema vegna þín

Þú hefur leitt mig í gegnum lífið
þurrkað tár mín og huggað mig á slæmum tímum
Þú hefur stórt hjarta, fullt af visku
Þú hefur hjálpað mér að ná draumum mínum

Ég vildi að ég gæti gefið þér þann hæfileika að geta
séð sjálfan þig með augum annarra
Þá myndir þú sjá hve sérstakur þú í rauninni ert

Takk fyrir að vera til
Takk fyrir að vera til staðar
Takk fyrir að vera þú

Ég elska þig pabbi