| Velkomin á heimasíðuna okkar! |
| Við erum sætustu systkinin Brynjar Snær og Sunneva Dís..:) |
|
|
Um mig:
Brynjar Snær fæddist á FSA miðvikudaginn 25. janúar 2006 kl. 22:37. Það var nú búið að bíða eftir honum í tíu daga, en það var allt í lagi. Hann var 4140 gr eða 16 og 1/2 mörk og 53 cm, flottur strákur. Hann var með mikið dökkt hár og dökkblá augu. Brynjar Snær var skírður í Sauðárkrókskirkju 4. mars.
Sunneva Dís fæddist á FSA föstudaginn 7. des 2007 kl. 16:01. Það var nú beðið eftir henni í tvær vikur en það var allt í lagi. Hún var 4835 gr eða næstum 19 og 1/2 mörk og 58 cm, svakalega stór og flott. Hún fæddist með dökkt hár og blá augu. Sunneva Dís var skírð í Sauðárkrókskirkju 20. janúar á afmælisdegi Pálmars afa. Mamma okkar heitir Jónína Pálmarsdóttir og pabbi okkar heitir Halldór Svanlaugsson og við búum á Sauðárkróki.
|
|
Ég á stóra fjölskyldu, mamma á tvær systur og einn bróður og pabbi á líka tvær systur og einn bróður. Ég á ömmu og afa sem búa í sveitinni en þau heita Sigurbjörg og Pálmar og svo á ég ömmu og afa á Selfossi en þau heita Ásdís og Svanlaugur. Svo á ég langömmur og langafa og fullt af frændum og frænkum sem alvag dýrka mig. Abba systir mömmu var svo heppin að fá mig í afmælisgjöf, en hún á tvær stelpur og Dóra systir mömmu á þrjú börn. Og svo varð ég stóri frændi því Þórður bróðir mömmu eignaðist lítinn strák 28. mars.
Vatnsberabarnið fer fljótt sínar eigin leiðir hvort sem það er í fataburði, hugsun eða hegðun. Það er uppfinningasamt, frumlegt og fullorðinslegt og lærir snemma að tjá sig og skila heim fullorðinna. Litli vatnsberinn vill sjá um sig sjálfur og fara sínu fram og er oft á tíðum mjög dramatískur . Ef honum leiðist gæti hann átt það til að stofna til vandræða bara til að fá spennu og drama inn í líf sitt. Besta uppeldisaðferðin er fólgin í umræðu og skynsamlegum fortölum. Vatnsberinn er þrjóskur og lítið þýðir að skipa honum fyrir eða beygja hann til hlýðni með skömmum. Best er að koma fram við barnið sem vitsmunalegan jafningja því vatnsberinn er hugarorkumerki og því skipa umræður og skynsamlegar fortölur fyrsta sæti. Vatnsberabörnin geta sýnt ást og væntumþykju á frekar ópersónulegan hátt. Þau eru yfirleitt vingjarnleg og yfirveguð en ekki mjög tilfinningasöm og oft illa við mikið kjass.
![]()
|
| Þú ert gestur nr. 9179 |