Hanna María kom í heiminn á sólríkum degi þann 3. júní 2006 kl. 01.50, 15 dögum eftir settan dag. Hún var 14 merkur (3570 gr.) og 50 cm þegar hún fæddist. Hanna María heitir í höfuðið á báðum ömmum sínum, ömmu Hönnu og ömmu Maríu. Nafnið var ákveðið eftir að mamma og pabbi fengu að vita í sónar að það væri lítil prinsessa á leiðinni, komin 20 vikur á leið.
Hanna María er á heilsuleikskólanum Urðarhóli á deildinni Skeljahóli þar sem hún á marga góða vini og finnst rosalega gott að vera. Hún æfir íþróttir í íþróttaskóla HK og dansar ballett í ballettskóla Eddu Scheving. Henni finnst skemmtilegast að syngja, dansa, hlusta á tónlist og sögur, föndra, perla, mála, lita, skrifa stafi og vera úti. Hanna María er skemmtileg, kröftug og dugleg stelpa, fljót að læra og kann núna 4 ára að skrifa alla stafina, er svolítill prakkari og örlítið stríðin en líka ofboðslega ljúf og góð. Þá hefur hún mikið dálæti á fötum, hefur mjög sterkar skoðanir á því hverju hún klæðist og vill helst hafa fataskipti oft á dag.
Helena Kristín kom í heiminn á fallegum degi þann 4. október 2010 kl. 04.53, 10 dögum eftir settan dag. Hún var 14 merkur (3580 gr.) og 51.5 cm þegar hún fæddist. Helena Kristín heitir í höfuðið á Elnu langömmu (og mömmu sinni) þar sem nafnið Elna er dönsk stytting á nafninu Helena. Foreldrunum finnst nafnið Kristín svo fallegt auk þess sem góðar konur í báðum ættum bera nafnið.
Helena Kristín er algjör engill, sefur allar nætur án þess að vakna og er búin að vera eins og hugur manns síðan hún fæddist. Hún sér ekki sólina fyrir stóru systur sem er alveg einstaklega barngóð og er eitt stórt bros þegar hún birtist. Hanna María kallar litlu systur sína alltaf "litla barnið mitt" :-)
Stoltu foreldrarnir eru Steinunn Elna Eyjólfsdóttir og Grétar J. Stephensen. Við fjölskyldan búum í Vesturbæ Kópavogs enda er gott að búa í Kópavogi ;-)
Takk fyrir allar heimsóknirnar og ekki gleyma að kvitta fyrir komuna í gestabókina! :-)
Börn hugsa ekki um liðna tíð né ókomna tíð. Þau njóta andartaksins, það gerum við fæst.
- Jean de la Bruyére |