Halló , velkomin við erum MAGNÚS ORRI og MARÍA RÓS
við erum algjörir grallarar og gullmolarnir þeirra mömmu og pabba


Um mig:
Ég fæddist á Indlandi 27.september 2001 og var 12 merkur og 43 cm ég var með svart hár og dökk brún augu . Pabbi minn Örn Benedikt Sverrisson (Öddi) og mamma Ingibjörg Guðný Marísdóttir (Inga) komu og sóttu mig á barnaheimilið í Kolcatta 17.júlí 2002 og komu með mig heim 22.júlí .

Systir mín María Rós fæddist í Jiangxi héraði í Kína 20. nóvenber 2003 og 13 merkur og 51 cm hún er með svart hár og brún augu eins og ég , mamma og pabbi fóru að sækja hana 14. febrúar 2005 og komu heim 3.mars með prinsessuna og nú eiga mamma og pabbi bæði prins og prinsessu og eru svakalega glöð með það . Við búum í Garðinum fluttum þangað í júní 2005 og okkur líkar það bara vel.

Endilega skrifið í gestabókina kveðja Magnús Orri , María Rós , mamma og pabbi.


slóð á magnús að syngja á 17.júní í söngvarakepni

http://www.youtube.com/watch?v=1mExjZMg9Rc




Annað:
Lilypie 6th to 18th PicLilypie 6th to 18th Ticker


MAGNÚS ORRI Litla Vogin 23.sept.-23.okt.

Börn í vogarmerkinu eru oft glaðleg og broshír og eru oftar en ekki börnin sem fá bros frá hinum sem bíða á biðstofu læknis.Þau eru sjarmerandi og heilla aðra upp úr skónum.
Félagslyndi einkennir vogina frá fyrstu tíð og litla vogin elskar að hafa margt fólk í kringum sig.
Vogarbarn sem þarf að búa við einangrun getur orðið geðstirt,innhverft og óöruggt en þegar allt leikur í lindi er það opið og hresst.Vogin á mjög erfitt með að gera upp hug sinn og virðist oft hafa lítinn viljastyrk . Þess vegna er mikilvægt að foreldrar hjálpi vogini að rækta með sér sjálfstæði og ákveðni meðal annars með því a'ð fela henni ákveðin verkefni sem reyna á ákvarðanatöku. Líklegt er að vogin spyrji álits og því er hægt að svara með því að spyrja :"Hvað finst þér?" Síðan þarf að gefa henni næði til að vega og meta hlutina áður en hún tekur ákvörðun. Vogin er listræn í eðli sínu og mikilvægt að hlúa að þeim eiginleikum og skapa henni aðstöðu til að þroska listræna hæfileika sína.





Lilypie 5th Birthday Ticker


MARÍA RÓS Litli sporðdrekin 24. oktober- 21. nóvember

Þegar barn í sporðdrekanum lítur dagsins ljós beinast öll augu að því , og barnið heldur þeirri athygli í langan tíma því það þarf mikla athygli . Foreldrar meiga búast við því að heyja valdabaráttu við litla sporðdrekann því hann ætlast oftar en ekki til þess að mamma og pabbi séu boðin og búin þegar hann þarfnast einhvers (ekki 5 mínotum síðar). Þetta er kraftmikið barn og foreldrarnir þurfa að vera á verði því þau eru snillingar í að fá fólk til að snúast í kringum sig og nota til þess alls kyns kænskubrögð . Uppeldi sporðdrekans getur skipst í tvö horn því þó hann sé ráðríkur , skapstór og þrjóskur getur hann einnig verið blíður og elskulegur . Það borgar sig ekki að skipa honum fyrir eða ætla að ráðskast með hann , þó slíkar uppeldis aðfarir séu óhentugar fyrir öll börn geta afleiðingarnar orðið sérstaklega slæmar þegar að sporðdrekinn á í hlut , hann getur lokað á umhverfið , dregið sig inn í skel og orðið stífur og jafnvel árásargjarn . Foreldrar þurfa að fylgjast vel með tilhneigingu litla drekans til að byrgja inni reiði. Best er að fá hann til að opna sig með því að tala við hann í ró og næði . Sporðdrekar eru mjög næmir á umhverfi sitt og því mjög mikilvægt að umgangast þá með varúð og hreinskilni . Sporðdrekanum er illa við yfirborðsmennsku og fals og missir auðveldlega álit á þeim sem koma ekki heiðarlega framm við hann.


alt="Click for Nanchang, Han-Kou Forecast" height=60 width=468>




alt="Click for Kolkata (Calcutta), India Forecast" height=60 width=468>


alt="Click for Keflavik, Iceland Forecast" height=60 width=468>


Staðir sem mamma hefur komið til



create your own visited country map
or check our Venice travel guide



Þú ert gestur nr. 42957