Nýjar myndir!!! Albúm, 32,33,34 og 35 :) jei for that!!
Ég heiti Vilborg Ágústa Óskarsdóttir


Ég kom í heiminn 5. Ágúst 2006. Ég var 3055g og 50cm. Ég átti að koma 23. Ágúst en ég var aðeins að flýta mér svo hefði langa langa afi minn orðið 100 ára þann 5. ágúst svo það var bara fínt :) Lille bró hér fyrir neðan :)
Mamma okkar heitir Sigrún Áslaug RE 82 og Pabbi okkar heitir Óskar VE 78 Þeim finnst við lang sætust í heiminum :)

LYKILORÐIÐ Í ALBÚMIÐ ER ÞAÐ SEM PABBI KALLAR MÖMMU ;) .... sendið bara póst eða hringið ef ykkur vantar orðið :) bros og koss




Ég heiti Róbert Ásmundur Óskarsson og ég kom í heiminn 25. Janúar 2008 kl. 00.15. Ég var 3325g og 51cm. Ég átti að koma 5 febrúar en var á hraðferð eins og systir mín. Við systkinin veljum góða daga til því bróðir hans pabba hann Hemmi fæddist líka 25 janúar bara svoldið mörgum árum á undan mér :)


LJÓNIÐ

23. júlí - 22. ágúst

Konungurinn í frumskóginum er mættur og vill einmitt vera meðhöndlaður í samræmi við tign sína. Litla ljónið þarfnast athygli (við erum að tala um að vera alltaf miðdepill athyglinnar!) og vill láta taka eftir sér og láta dást að sér. Það getur verið mikil vinna að eiga börn í ljónsmerkinu. Börnin eru oft hávaðasöm og mjög opin í tjáningu. Ef barnið er ánægt er það yndislegasta og fallegasta barn í heimi en ef það er óánægt öskrar það og lætur öllum illum látum. Heimilislífið kemur til með að snúast mikið í kringum kraftmikinn ljónsungann sem getur verið mjög stjórnsamur og frekur. Það þýðir ekki að segja ljóninu að læðast meðfram veggjum því slíkt er andstætt eðli þess og er ekki til annars en að brjóta það niður. Vingjarnleg ákveðni er það sem dugar best. Ljónið er merki stjórnunar og foreldrar þurfa að virða þörf þess fyrir persónulegt sjálfstæði og því er gott að fela því snemma ábyrgð. Mikilvægt er að kenna því að taka tillit til annarra. Það þarf að taka tillit til þess í uppeldi að ljónið er einstakt og veita því athygli, hvatningu og ekki síst að hrósa því þegar það hefur gert eitthvað jákvætt.




Vatnsberinn
20. janúar - 18. febrúar

Vatnsberabarnið fer fljótt sínar eigin leiðir hvort sem það er í fataburði, hugsun eða hegðun. Það er uppfinningasamt, frumlegt og fullorðinslegt og lærir snemma að tjá sig og skila heim fullorðinna. Litli vatnsberinn vill sjá um sig sjálfur og fara sínu fram og er oft á tíðum mjög dramatískur. Ef honum leiðist gæti hann átt það til að stofna til vandræða bara til að fá spennu og drama inn í líf sitt. Besta uppeldisaðferðin er fólgin í umræðu og skynsamlegum fortölum. Vatnsberinn er þrjóskur og lítið þýðir að skipa honum fyrir eða beygja hann til hlýðni með skömmum. Best er að koma fram við barnið sem vitsmunalegan jafningja því vatnsberinn er hugarorkumerki og því skipa umræður og skynsamlegar fortölur fyrsta sæti. Vatnsberabörnin geta sýnt ást og væntumþykju á frekar ópersónulegan hátt. Þau eru yfirleitt vingjarnleg og yfirveguð en ekki mjög tilfinningasöm og oft illa við mikið kjass.





Guðný Birna frænka


Freyr Hugi


Sævar Þór og Júlía Björk


Brynjar Már frændi


Andri Freyr






ÞAÐ LÆRA BÖRN SEM ÞAU BÚA VIÐ!



Það barn sem býr við hnjóð, lærir að fordæma.

Það barn sem býr við hörku, lærir fólsku.

Það barn sem býr við aðhlátur, lærir einurðarleysi.

Það barn sem býr við ásakanir, lærir sektarkennd.

Það barn sem býr við mildi, lærir þolgæði.

Það barn sem býr við örvun, lærir sjálfstraust.

Það barn sem býr við hrós, lærir að viðurkenna.

Það barn sem býr við réttlæti, lærir sanngirni.

Það barn sem býr við öryggi, lærir kjark.

Það barn sem býr við skilning, lærir að una sínu.

Það barn sem býr við alúð og vináttu, lærir að elska.





Þú ert gestur nr. 10534