Vefdagbók
Myndaalbúm
Kveðjur frá gestum
Gullkorn
Dagbók barnsins
Elsebeth Kristína
Elsebeth Kristína
  • gaman að sjá þig hér aftur Guðrún gestó :) ætlum að reyna að halda áfram hér, , viljum ekki hætta,,þetta er orðið að heimildarriti:)
    ritarinn
    |
    25.9.2010 12:28:53
  • voða er maður samstilltur, hef ekki kikt hinað inn í mjög langan tima og viti menn loks þegar maður kikir þá er bara ný færsla :) yndislegt að hafa þessa síðu til að fylgjast "betur" með ykkur enda allir orðnir fésfíklar i dag:) kveðja Guðrún "gestó"
    Guðrún Eyrith
    |
    25.9.2010 01:09:55

ýmsar myndir jan / sept 2010

0 | 0 | 23.9.2010 20:27:55 #
Hæ hæ, vá nú er sko eins gott að vera ekki að lofa einu né neinu;) við erum svo miklir fésfíklar að þetta verður útundan hérna,, en samt finnst mér svo gott að hafa þetta, skrái oft hér inn ný meðul og hef dagsetningar á hinu og þessu, sem er mjög gott .. En annars gengur bara vel, við vorum voða stressaðar að fara í tékkið sem var í núna í ágúst, þar sem það höfðu verið breytingar á MRI myndunum í janúar, en það kom sem betur fer vel út, og hafði ekkert breyst meira.  En nú er komið í ljós að skjaldkirtillinn er ekki að virka sem skyldi,  hefur verið latur eins og það er kallað, og er nú orðin það slappur að hún byrjaði á lyfinu euthyrox 50mg 1 tbl á dag  og hefur verið á því núna frá 22 ágúst, við fáum svo bara að vita eflaust næst hvað það er að gera, nú hún þurfti svo á einu lyfinu að halda í viðbót núna í september, en þá fékk hún provera 5 mg 1 tbl , fyrst í 7 daga, ( b 10 sept og ??) Annars hefur Elsebeth það mjög gott, hún er núna í fimleikum 1x í viku og blaki 2x í viku og svo er auðvitað fiðlan á fullu,, er komin í 7 bekk og orðin næstum jafnstór og mamma sín,, og alveg yndisleg dóttir. Við erum núna búnar að vera duglegar að ferðast, en Helga Bára hún býr nú í Árósum, er í háskólanum þar, og Nicolai býr í Kaupmannahöfn og er þar í háskóla,, og við fórum þangað eftir læknaheimsóknina til Íslands í ágúst, já gleymi að segja frá því að Elsebeth tók eina bekkjarvinkonu með sér. Nú við vorum í rúmlega tvær vikur í DK og erum svo að skella okkur þangað aftur núna í haustfríinu í október.. jæja látum þetta gott heita núna.. kv ritarinn :)
0 | 23.9.2010 19:59:53 #

Lángt síðan ég hef skrifað hér (Elsebeth),hvar á ég að byrja, ohhh já á jólum fékk ég Nintendo DSi (það er blátt), ég hef sem sagt át afmæli þann 21.01.10 (fekk margar góðar gjafir Smile) takk fyrir að þið komu í afmælisveistluna hjá mér hjá ömmu annars er Nicolai í skóla í DK skólin heitir Bosei og liggur í Prestö jæja hef ekki meiri að skrifa þanneig bæ bæ ekki frá rithövindinum heldur frá Elsebeth

 

Elsebeth Wink

 

 

0 | 18.2.2010 20:31:19 #

myndir settar inn feb 2010

0 | 0 | 6.2.2010 20:25:38 #
hæ hæ, það lítur ekki út fyrir að við ætlum neitt að bæta okkur við að vera duglegar að skrifa hér ;( nú er komin febrúar 2010 og við ekki skrifað síðan í fyrra:) en það er auðvitað nóg búið að vera að gera. Jólin héldum við á Ströndum hjá Helgu Báru, Harald og Yrsu Dögg, og svo fór Pabbinn hér í húsinu á sjóinn milli jóla og nýárs, svo við héldum bara áramótin þar líka. Nicolai fór svo af stað í júdóskóla í Danmörku strax á nýju ári, og við erum nú reyndar að fara hitta hann núna á miðvikudag:) Nú Elsebeth fór svo í sína reglubundnu skoðun á Barnadeildina daginn eftir 12 ára afmælisdaginn sinn, svo við byrjuðum bara á að halda afmælisboð hjá Ömmu á íslandi, og það var bara svona lítið og nett, þar sem mamman var nýbúin að vera í uppskurði, svo var farið inn á barnadeildina á mánudeginum, og nú var það MRI á skránni, og síðan Viðar nýrnalæknir , og daginn eftir var það svo Ragnar og Sigrún. Þá fengum við að vita hjá Ragnari að við fyrstu skoðun á MRI myndunum kom allt vel út, en það átti eftir að breytast;( því á miðvikudeginum hringdi Jón læknir í okkur, þar sem Mummi afi er hættur vegna aldurs;( , en semsagt Jón sagði okkur að þegar sérfræðingur hafði farið yfir myndirnar og borið þær saman við fyrr myndir, þá kom í ljós skuggi, sem verður að fylgja vel upp, svo þetta var smá bakslag, Elsebeth fór auðvitað alveg í mínus, en við vorum samt ansi duglegar að koma okkur í jákvæða horfið aftur , og ætlum ekkert að láta þetta trufla okkur , allavega ekki á meðan engin önnur einkenni eru að sýna sig. En við fengum að vita að það þarf að kanna hana vel næst þegar við komum og ekki seinna en í júlí verður hún að fara aftur í MRI, sem annars hefur bara verið einu sinni á ári. Svo við erum nú ekkert að láta þetta trufla okkur fyrr en, og ef það verður nauðsynlegt:)Nú þegar við komum aftur til Færeyja, þá var Helga Bára og Yrsa Dögg heima hjá okkur og voru alveg yfir helgina og eina viku fram;) svo kom pabbinn líka af sjónum , svo það var rosa huggó. Og á miðvikudagin var héldum við svo afmælisveislu aftur og þá fyrir stelpurnar í bekknum, sem heppnaðist rosa vel, og í gær var svo veisla fyrir fjölskylduna, og hún heppnaðist líka frábærlega, allir mættu og voða gaman. Nú erum við bara að slappa af og horfa á júró, fyrst það danska og svo það íslenska:) og svo erum við nú farin að hlakka til að fara til Danmerkur á miðvikudag:)) 

kv ritarinn:)

0 | 6.2.2010 20:00:09 #

hæ hæ, jæja þá er komin 5 des, og við allar stelpurnar búnar að vera svo jólalegar í dag, við erum búnar að vera að baka , fleirri sortir;) og svo erum við allar búnar að gera kertaskreytingar og margt fleirra, voða huggó. Við Elsebeth pössuðum líka Yrsu Dögg aðeins í dag , á meðan Helga Bára fór í skólann hjá sér:) og hún var rosa góð hjá okkur, við reyndum að gefa henni pela með brjóstamjólk í , en hún er sko ekki að fíla pela og gervitúttur, svo við enduðum með að gefa henni úr glasi;)) gömlu meðala glasi frá Elsebeth:) og það var hún sátt við:) Annars var Elsebeth að leika í jólasöngleiknum um Maríu mey og Jósef, og þar lék hún Maríu , það gekk alveg súper vel, og sólósöngurinn hennar var alveg frábær, langar að reyna að setja það inn hér , kanski tekst mér það:) svo nú erum við bara að hugga okkur hér til jóla. við eigum svo eftir að fara á jólasýningu í tónlistarskólanum, og svo á hún að spila úti á sjúkrahúsi næstu helgi, og í katólsku kirkjunni eins og venjulega þann 28 des, jæja biðjum að heilsa öllum,  kv ritarinn
0 | 5.12.2009 21:04:24 #

Hæ hæ, jæja þá er jóla jóla stússið að fara að byrja;) Elsebeth hefur reyndar alveg nóg að gera, er að æfa fyrir sýningu í Hoyvíks kirkju, jólasýning og hún á að leika Maríu Mey, það verður núna á sunnudaginn í kirkjunni. Nú svo á laugardeginum þá verður kveikt á jólatréinu, og kanski ég fæ einn koss frá lítilri jólanissu:) eins og frá jólasveininum forðum daga, þegar Elsebeth var sko ekki sátt við að hann væri að kyssa mömmu sína:) en ég reikna með að þekkja allavega eina jólanissu þar, því ég hef grun um að hún sé hálf íslensk:) Annars við í Klaksvík í gær, svona til tilbreytingar þá kom Elsebeth með mömmu sinni í skoðun á sjúkrahúsið:)) við fengum bara ágætan bíltúr úr því:)) Það gengur allt mjög vel , það er auðvitað fullt að gera í fiðluni líka, en nú erum við mest spenntar að Helga Bára og Yrsa Dögg eru að koma heim frá Ástralíu:)) það verður á laugardaginn, svo ætli við förum ekki að vera voða jólalegar upp frá því:)) eigum annars eftir að gera fullt:)) frekar seinar, segir fröken Elsebeth, en það er annars hún sem er svo upptekin:))

kv ritarinn:)

0 | 26.11.2009 09:35:19 #

Hæ hæ, við erum nú komnar heim til Færeyja;) og allt gekk mjög vel á barnadeildini á Íslandi, augnprófið kom líka mjög vel út, en það kom svo illa út seinast. Við erum nú að komast aftur í okkar rútínu, og á morgun fer Elsebeth í skólann eins og venjulega og ég í vinnu;) Hún hefur haft nóg að gera síðan hún kom, fór í píanó tíma á laugardag og fór síðan og svaf hjá Silju frænku sinni og Ly gúmmu sinni;) og í dag þurfti hún aðeins að taka eina verkjatöflu við höfuðverk , sem þýðir eflaust að hún þarf að fara aftur að  drífa sig í sjúkraþjálfun, enda vildi Ragnar læknir mæla með því, svo vildi hann líka að hún fari í forgang í þessa flensusprautu h1n1, og á morgun eftir vinnu drífum við í að fá þetta allt í lag. Við höfum heyrt frá HB , og þær eru komnar í öllu góðu til Söru, svo nú er bara hugg í þrjár vikur áður en þær þurfa að ferðast svona lengi heim aftur:))

Vit eru nú komnar heim í öllum góðum, og tað gekk gott á hospitalinum, kanningin hjá eygnalæknanum gekk eisini væl, men tað var kaningin vit stúrdu sindur fyrir, hon kom so illa út síðst. Men Ragnar lækni hevði nakrar instrúksur fyrir hana, hon skal aftur í fysotherapi, og so skal hon í forgang við at fáa h1n1 sproytuna, so tað mugu vit fara at orna í morgin. Blóðtrýstið var gott hesa ferð og vit skula aftur í janúar,tann 22 og tá skal hon í MRI skannan. Hon er nú við at koma aftur í rútínu, fór í klaver tíma í gjár, og so er skúlin í morgin, tað gleður hon seg nógv til, hon fekk so fítt bræv frá klassanum tá ið hon var í íslandi og bleiv so glað, rættiliga fítt av teimum:))ellars allt gott og nú bliva vit aftur raskari at koyra inn her:))))

kv ritarinn

0 | 8.11.2009 17:38:40 #

ýmsar myndir frá jun til okt 2009

0 | 0 | 1.11.2009 13:05:46 #

Hæ hæ, vá hvað það er langt síðan við skrifuðum hér, og ég sem hélt að Elsebeth nennti að skrifa sjálf, en það er svo gott að minna bara mömmu á :))) "mamma nú verður þú að fara að setja inn:))" en mamman er svo upptekin á fésinu:)) Annars er allt gott að frétta , við erum nú staddar á Íslandi mæðgurnar, þar sem  Elsebeth er að fara í tékk á barnaspítalann, á að fara til Ragnars og Elínborgar, erum svolítið spenntar hvernig könnunin hjá Elínborg kemur út, þar sem hún var ekki nógu góð síðast. Við komum á föstudag til landsins og verðum hér í í viku, þar sem Atlantic flýgur ekki nema tvisvar í viku á ísland;( hefðum alveg viljað sloppið fyrr heim, því Helga Bára og Yrsa Dögg (já litla snúllan hennar HB er komin með nafn , Yrsa Dögg:)þær eru að fara til Ástralíu, og svo kom pabbinn heim, og stoppar bara til fimmtudags, svo við hefðum gjarna viljað vera komnar heim til þó ekki nema að kveðja þau;)enn svona er það bara stundum. Nú  í augnablikinu er Elsebeth í heimsókn hjá Jóni Kristjáni, og seinna í dag skreppum við eflaust í heimsókn til Sigrúnar frænku. Svo byrjar spítalaheimsóknin á morgun, þurfum  einmitt í apótek á eftir og kaupa smá tilraunaglös:) Nú við erum búnar að fá miða í  leikhúsið frá SKB, förum að  sjá Kardimommubæinn í Þjóðleikhúsinu á þriðjudag;)) það verður eflaust gaman, Elsebeth elskar að fara í leikhús:)  Annars þökkum við fyrir öll sms´in sem við höfum fengið í gær og í dag, okkur skilst á þeim að sendingin í útvarpi færeyja í gærmorgun og myndbrotið í sjónvarpsendinguni í gærkvöldi hafi verið mjög gott, og það var bara gaman að geta stutt við það:)) til hamingju með árangurin :)) // vit takka fyrir öll sms´boðin vit hava fingið í gjár og í dag, vit skilja á lagnu at sendingin í uf og kringvarpinu hafi verið góð, og vit ynskja krabbameinsfelagnum tillukku, tað var bara stuttligt at kunna stuðla teimum:))  Nú það er aldrei að vita nema við skellum inn einhverjum myndum hérna, og kanski við verðum svolítið duglegri, humm þar að segja ritarinn:))

kv ritarinn:))

0 | 1.11.2009 12:40:17 #

  • Góða, sum tað er gott at hoyra teg. Eg kenni teg ikki, men tú ljóðar at vera ein ógvuliga røsk og skilagóð genta. Jesus pápin verður hjá tær og familju tíni. Bestu heilsur Laila
    Laila Rólantsson
    |
    31.10.2009 10:53:41
  • Sum tað er stuttligt at lurta eftir so skilagóðum børnum. Takk fyri og alt tað besta.
    Ingun Joensen
    |
    31.10.2009 10:48:57
  • Sæl frænka ! Bara að kvitta fyrir innlitið. Alltaf gaman að kíka hér inn. Hafðu það gott og ég biða að heilsa ykkur öllum. Kveðja Anna frænka á Egilsstöðum
    Anna, Jón Þór ,Sandra og Erla
    |
    7.10.2009 15:29:39

Hæ hæ, jæja þá er sumarfríið af alvöru byrjað, á fimmtudaginn var síðasti skóladagur hjá Elsebeth. Það hefur bara verið sól og blíða hér síðustu daga, og Elsebeth haft nóg fyrir stafni,í gær sváfu hún og vinkonur hennar, þær Karin og Elísabet í tjaldi hér úti í garði, enda súper gott veður til þess. Nú svo í dag erum við bara búnar að sóla okkur hér fyrir utann í 24 stiga hita;puha, alveg steiktar, enn duglegar að nota sólarvörn, enda að æfa okkur fyrir spán:)) á morgun ætlum við að skreppa til Strendur, og kíkja á litluna hennar Helgu Báru:) ætluðum í dag, en ritarinn slæmur í fæti , og lá bara með lappirnar uppi í dag, hér úti í sólinni. Nú annars er bara allt gott að frétta, veislan hjá Nicolai heppnaðist súper, og nú er hann farin til Álandseyja á Oyggjaleikina, á morgun á hann svo að keppa, vonandi gengur honum bara vel. Jæja við biðjum bara að heilsa öllum og sendum sólarkveðjur héðan.

kv ritarinn

0 | 27.6.2009 19:21:41 #

  • Hæ hæ. Þetta var nú nokkuð skondið, jú sjáðu til ég fór inná google og var að leita að mynd af víravirkiskrossi og upp kom myndaalmbúmið þitt. Sá þar myndir af ömmum og frænkum með litla prinsessu umvafða í teppa sem er kallað Báruteppi á mínu heimili og öll mín börn eiga og sum hafa átt fleirri en eitt. Nú ég fór að skoða betur andlitin á myndunum og komu þið þá í ljós. haha. Til hamingju elsku Inga með ömmustelpuna og þú með litlu frænku. Kveða úr Miðvági. Solla og fam.
    Sólveig Birgisdóttir
    |
    24.6.2009 19:00:37
  • Hæ hæ frænka ! Takk fyrir síðast, það var gaman að fá ykkur í heimsókn til okkar á Egilsstaði. Nýju myndirnar af þér og litlu frænku eru ekkert smá fínar, hún er heppin að eiga svona góða frænku. Kveðja til ykkar allra frá okkur hér.
    Anna, Jón Þór ,Sandra og Erla
    |
    22.6.2009 14:56:31

hæ hæ, jæja þá eru það nú aldeilis stórfréttir, Helga Bára stóra systir og Harald kærastinn hennar búin að eignast lítið stelpukrútt, hún fæddist þann 18 júní kl 05;30 , og var 2720 gr og 52 cm. Elsebeth fékk að fara fyrsta dagin og skoða litla undrið , og kolféll fyrir henni, eins og við öll reyndar:) Hún fékk smá erfiðan start litla skinnið, naflastrengurinn var þrívafin um hálsin , og líkamshitinn hennar var orðin mjög lágur, en hún braggast vel. Hún byrjaði á hitakassa, og svo var henni pakkað inn til mömmu sinnar með hitateppum og hitapokum í húfu og ullarfatnaði, hún þurfti líka að fá sondu , svo hægt væri að gefa henni smá næringu beint niður í mallan, til að auka styrk hennar og þrek, þar til mömmu mjólk setur sig til. En vinkonan er orðin svo sterk þegar þetta er skrifað , að í nótt var hún ekkert að nenna þessu lengur og dró sonduna úr , ormurin litli:))) Elsebeth er eins og stolt hæna, getur varla dregið andan , yfir aðdáun á litlu frænku og hlakkar til þegar hún getur farið að hnoðast smá:))) Það gengur annars mjög vel hjá Elsebeth, nú var hún að fara í sumarfrí í fiðluni, það endaði veturinn með tónleikum í gær, og gekk svona strjúkandi vel:))) pabbi auðvitað bara duglegur og tók það upp, og nú stríðist ég við að reyna að fá það hér inn:)) það fer eflaust að taka sinn tíma. Annars er bara ein vika nú eftir af skólanum, og það verður sko nóg að gera, því á miðvikudag fær Nicolai stúdentaprófið og um kvöldið verður veisla, nú svo er amma/langamma nú komin frá Íslandi, og ætlar að dúllast hérna með okkur, þar til við förum til Íslands saman. En annars bestu kveðjur og takk fyrir kveðjurnar á fésinu :)))

kv ritarinn

0 | 20.6.2009 08:30:24 #

litla frænkan komin í heiminn

0 | 0 | 20.6.2009 08:08:01 #