Elín Birna og Emilía Björk
velkomin í heimsókn :)


Um mig:
Elín Birna kom í heiminn 04.04.2006 kl. 19:41. Hún var 3740gr og 54cm.
Emilía Björk kom í heiminn 18.11.2009 kl. 03:44. Hún var 3580gr og 51cm.
Við vorum báðar með mikið dökkt hár og blá augu.
Mamma okkar heitir Jakobína Gunnarsdóttir og pabbi heitir Rafal Ulatowski.




Annað:
Til þín.
Áður en þú varðst til, þráðum við þig
Áður en þú komst í heiminn elskuðum við þig.
Áður en þú hafðir lifað eina stund
hefðum við fúslega dáið fyrir þig.
Þú ert kraftaverk lífsins.
Takk fyrir að vera til.



MAMMA ER KONAN
Sem kemur manni i heiminn með mikilli fyrirhöfn
fæðir mann og klæðir og veitir alla þá hlýju og
ástúð sem lítið barn þarf á að halda.

Þegar maður eldist og ætti kannski að geta hugsað
meira um sig sjálfur, til dæmis að vera í hreinum
fötum, og laga til í herberginu sínu leyfir mamma
manni það ekki því hún er vön að hugsa svo vel
um barnið sitt.

Mamma er alltaf til staðar með útrétta hjálparhönd
þegar á þarf að halda, þerrar tárin þegar það er leiðinlegt
og gleðst með manni þegar það er gaman að vera til.

MAMMA ER BESTA OG KLÁRASTA KONA Í HEIMI!!!


PABBI ER MAÐURINN
Sem verður svo montinn þegar maður fæðist að
það mætti halda það hafi ekki fæðst barn áður.
En það tekur hann bara nokkra daga að komast
niður á jörðina aftur.

Honum finnst skrítið að lítið barn skuli ekki getað
sofið alla nóttina og kúkað í klósett eins og
annað fólk.

Samt veit hann allt!! svo þegar maður verður
aðeins eldri og það er hægt að fara að leika
við mann og kenna manni ýmislegt finnst
honum rosa gaman.

Pabbi er alltaf til staðar með styrka hönd þegar
á þarf að halda.

PABBI ER BESTI OG KLÁRASTI MAÐUR Í HEIMI









Þú ert gestur nr. 17164