Annað:
STEINGEITIN
22. desember - 19. janúar
Steingeitin er alvarlegasta stjörnumerkið og oft er sagt að hún fæðist gömul og verði yngri eftir því sem árin færist yfir. Steingeitin er vel skipulögð og er ung að árum farin að taka þátt í rekstri heimilisins. Hún á stundum erfitt með að hafa gaman af lífinu og ekki er ólíklegt að barnið þitt velji frekar að raða fötunum sínum í skápinn en að fara út að leika. Mikilvægt er að foreldrar kenni börnum sínum að það er í lagi að slaka á og leika sér og að fullkomnun er ekki einungis ómöguleg heldur einnig mjög ópraktísk. Steingeitin er haldin fullkomnunaráráttu og óttast fátt meira en að missa sjálfsstjórn og þar með tök á tilverunni. Hún verður mjög óörugg ef hún hefur ekki gamalgrónar reglur og hefðir til að styðjast við og ef þær eru ekki til staðar er hún fljót að búa til reglur sjálf. Börn í steingeitinni eru mjög athugul, skynsöm og metnaðargjörn og dæmigerðar geitur vita allra merkja fyrst hvað þær ætla sér í lífinu. Mikilvægt er að kenna steingeitinni að tjá tilfinningar sínar, slaka á og sjá bjartari hliðar tilverunnar og ekki síst að ýta undir skopskyn hennar
Elsku mamma og pabbi
Ég hef svo litlar hendur, ég ætlaði ekki að hella niður mjólkinni.
Fæturnir á mér eru svo stuttir, farðu hægar svo ég geti fylgt þér.
Ekki slá á hendurnar mínar þegar ég snerti eitthvað fallegt, ég skil það ekki.
Horfðu á mig á meðan ég er að tala við þig, þá veit ég að þú ert að hlusta.
Ég hef viðkæmar tilfinningar, ekki vera alltaf að skamma mig.
Leyfðu mér að gera eitthvað vitlaust án þess að þér finnist ég vitlaus.
Ekki búast við því að myndin sem ég teikna eða rúmið sem ég bý um sé fullkomið. Elskaðu mig bara fyrir að reyna.
PABBI ER MAÐURINN....
Sem verður svo montinn þegar maður fæðist að
það mætti halda það hafi ekki fæðst barn áður.
En það tekur hann bara nokkra daga að komast
niður á jörðina aftur.
Honum finnst skrítið að lítið barn skuli ekki getað
sofið alla nóttina og kúkað í klósettt eins og annað fólk.
Samt veit hann allt!! svo þegar maður verður
aðeins eldri og það er hægt að fara að leika
við mann og kenna manni ýmislegt finnst
honum rosa gaman.
Pabbi er alltaf til staðar með styrka hönd þegar
á þarf að halda.
PABBI ER BESTI MAÐUR Í HEIMI !!!!!!!
MAMMA ER KONAN...........
Sem kemur manni i heiminn með mikilli fyrirhöfn
fæðir mann og klæðir og veitir alla þá hlýju og
ástúð sem lítið barn þarf á að halda.
þegar maður eldist og ætti kannski að geta hugsað
meira um sig sjálfur, til dæmis að vera í hreinum
fötum, og laga til í herberginu sínu leyfir mamma
manni það ekki því hún er vön að hugsa svo vel
um barnið sitt. Mamma er alltaf til staðar með
útrétta hjálparhönd þegar á þarf að halda,
þerrar tárin þegar það er leiðinlegt og gleðst
með manni þegar það er gaman að vera til.
MAMMA ER BESTA KONA Í HEIMI
Núna er ég orðin 17 mánaða gömul og algjör grallari =) Ég er farin að segja nei, já, mamma, pabbi, hénna eins og ég segji það :) og svo segji ég Bubbi þegar að ég er að kalla á hundana hennar ömmu, og tiss tiss þegar að ég sé kisu =)
Ég segji líka hæ og vinka bless en það er bara sagt og gert þegar að mig hentar, ekki eftir pöntun=) svo finnst mér voðalega gaman að banka og banka =)Ég príla út um allt og upp um allt, er alltaf á fullu allann daginn og mamma hefur stundum ekki undan af að hlaupa á eftir mér =) Ég er komin með allar tennurnar mínar nema 4 endajaxla, 2 upp og 2 niðri, ég hef ekki verið nema 13-14 mánaða þegar að allra tennurnar mínar voru komnar nema þessar 4 svo að ég hef verið annsi fljót til =)
Ég er farin að kyssa líka alveg á fullu, finnst voðalega gaman að smella einu alltaf á munninn =) Ég er búna fara til útlanda einu sinni þó ung sé, fór í fyrr með mömmu og pabba þegar ég var 8 mánaða til Danmerkur að hitta ömmu Gústu og það var voðalega gaman.
22.05.02. Ég velti mér af bakinu yfir á magann í fyrsta skipið ekki nóg með að ég hafi gert það einu sinni heldur gerði ég það tvisvar sinnum á smá tíma...gat ekki hætt eftir að fyrsta skiptið kom:)
01.06.02. FYRSTA TÖNNIN FANNST!!!! Þorsteinn frændi minn fann tönsluna mína þegar að hann var að leika við mig:)
04.06.02 TÖNN NÚMER TVÖ fannst við hliðina á hinni í neðri góm, mamma fann þessa;)
TIL ALLRA MÆÐRA.
Gömul þjóðsaga segjir frá barni sem var við það að fæðast. Barnið snýr sér að Guði og segjir: Mér er sagt að ég verði sendur á jörðina á morgun, en hvernig get ég lifað eins lítill og ósjálfbjarga sem ég er?
Ég hef valið engil fyrir þig úr hópi engla og hann bíður eftir þér. Þessi engill mun sjá um þig. En segðu mér, hérna á himninum geri ég ekkert annað en að syngja og brosa og það er nóg til þess að vera hamingjusamur.
Engillinn þinn kemur til með að syngja fyrir þig, hann brosir til þín alla daga og þú verður umlukinn ást hans og þannig verðurðu hamingjusamur.
En hvernig get ég skilið þegar fólk talar við mig þar sem ég þekki ekki tungumálið sem mennirnir tala?
Engillinn þinn segjir falleg orð við þig , fallegustu orð sem þú hefur nokkur tíman hert og með mikilli þolinmæði og kærleik kennir hann þér að tala.
En hvað geri ég ef að ég vil tala við þig?
Þá setur engillinn þinn hendurnar þínar saman og kennir þér að biðja.
Ég hef heyrt að á jörðinni séu til vondir menn. Hver getur varið mig?
Engillinn þinn mun verja þig, þó svo að það kosti hann lífið.
En ég verð alltaf sorgmæddur því ég sé þig ekki oftar.
Engillinn þinn á eftir að segja þér frá mér og vísa þér veginn í áttina til mín, en þó mun ég alltaf vera við hlið þér.
Á þessu andartaki færðist ró yfir himininn og guðdómlegar raddir heyrðust og barnið sagði:
Kæri Herra, þar sem ég er að fara segðu mér, hvað heitir engillinn minn ?
Nafn hans skiptir ekki máli, þú kallar hann bara ,,Mömmu,,
|