| VELKOMIN Í VERÖLDINA MÍNA |
| Ég heiti Marta Björg og er 6 ára gömul |
Um mig:
Ég fæddist 3. Maí 2005 kl:03:00 og skaust í heiminn. Ég var 50cm og 3200gr. Ég er með ljósan hárlit með rauðum blæ og erfitt er að átta sig hvaðan hann kemur eflaust frá ömmu Björg, augun mín eru gráblá alveg eins og hjá mömmu og ég er víst rosalega lík mömmu minni sem að heitir Svana, pabbi minn heitir Einar og svo á ég einn eldri bróður sem að heitir Gunnlaugur Páll og er mjög góður við mig þó að hann eigi það til að stríða mér, ég kann líka að stríða þannig að oft erum við kvitt. Mér finnst rosa gaman að púsla, spila, fara í búningaleik og einnig er mjög gaman að fara í pæjuleik semsagt leika mér með dúkkunar mínar og fara í snyrtileik. Ég er nú smá prakkari og algjör sælkeri, ef að til er eitthvað sætt þá er ég komin til að fá mér það.
Við ætlum að vera dugleg að skrifa inní vefdagbókina svo að vinir og fjölskylda geti fylgst vel með mér og já bróður mínum líka. Endilega munið að kíkja á gestabókina og kvitta þar, gaman að sjá hverjir koma og kíkja á okkur. |
|
|
Annað:
Nautið
20. apríl - 20. maí Foreldrar barns í nautsmerkinu þurfa að vera næm á mikla þörf þess fyrir snertingu. Þetta eru bestu knúsarar í heimi. Besta aðferðin til að ná til lítilla nauta er að höfða til skynsemi þeirra og tilfinninga. "Elsku litla stelpan mín, viltu gera þetta fyrir mömmu?" Fá naut standast nefnilega blíðu. Þægindi er eitthvað sem nautið vill. Notalegt herbergi þar sem hvorki er of heitt eða kalt, bragðgóður matur, falleg leikföng er eitthvað sem fellur nautinu í geð. Börn í nautsmerkinu eru frekar róleg og friðsöm og yfirleitt fer kannski lítið fyrir þeim. Það borgar sig ekki að reka á eftir þeim með hluti því þau vinna á sínum eigin hraða, sem er annar en gengur og gerist. Nautið er með báða fætur á jörðinni og vill vera öruggt um að hvert skref sem stigið er sé rétta skrefið. Ef rekið er á eftir því verður það óöruggt. Það borgar sig ekki til að fá litla bolann til að hlýða með skipunum eða skömmum því nautin eru þrjósk með eindæmum og sá eiginleiki sýnir sig vel þegar slíkt er reynt. Það getur verið erfitt að eiga við nautsbarnið þegar það hefur bitið eitthvað í sig og heimtar eitthvað sem gengur þvert á vilja foreldranna. Best er þá að setjast niður með bola litla og reyna að útskýra af hverju betra sé að gera þetta eða hitt, þ.e. höfða til skynseminnar. Rökin þurfa að vera skynsamleg og nautið þarf að fá tíma til að hugsa málið. Ef nautið er af rólegu gerðinni er vissara að ræða reglulega við það og fá það til að tjá sig og vinna þannig hægt og sígandi gegn feimni þess og hlédrægni. Naut þarfnast þess að vera í öruggu umhverfi og vita við hverju er að búast þannig að mikilvægt er að foreldrar séu sjálfum sér samkvæmir gagnvart því. |
| Þú ert gestur nr. 3504 |