![]() |
|
|
Ég er lítil dama sem fæddist þann 5. maí 2006. Pabbi minn heitir Ástmar og mamma mín heitir Íris. Ég á eina systur sem heitir Birta Líf. Hún er níu ára og hún er alltaf ótrúlega góð við mig. Svo á ég líka eina hundasystur sem heitir Tanja. Ég var skírð í höfuðið á móðurömmu minni sem heitir Linda og var hún ekki lítið montin að fá nöfnu. Við erum líka rosa miklar vinkonur. Svo fékk færeyska ættarnafnið hennar mömmu úr föðurfjölskyldunni hennar að fljóta með. Pabba fannst ekki annað hægt en að ég væri skírð því og að afi Pétur fengi svona hálfpartinn nöfnu líka:) Var ég því skírð Linda Wigelund þann 18. júní 2006. Linda er skýr og dugleg lítil stelpa sem veit alveg hvað hún vill. Hún er mjög atorkusöm lítil "vinnukona" sem er sífellt á þönum. Hún er blíð og góð og er með mikið "móðureðli" í sér. Hún bar snemma mikla umhyggju fyrir dúkkunum sínum og hugsar einstaklega vel um þær þrátt fyrir ungan aldur:) Henni finnst skemmtilegast að skoða bækur, kubba, púsla, lita og leika með dúkkurnar sínar. Þessi heimasíða er fyrir vini og vandamenn til að fylgjast með Lindunni okkar. Endilega verið dugleg að kvitta í gestabókina því það er svo gaman að sjá hverjir eru að fylgjast með okkur :)
|
|
|
|