Ég verð bráðum eins árs
nuna eru bara nokkrir dagar í afmælið mitt, hjá okkur gengur allt vel og ég er orðinn svaka stór strákur, ég byrja á Leikskólan Dalborg á þriðjudaginn 8 janúar
það verður sko gaman, að fá að leika mér með fullt af öðrum krökkum. ég verð frá 8 til 4 á daginn, deildin min heitir Grænadeild, þar verð ég ásamt krökkum á mínum aldri. og vitiði hvað? ég er farinn að labba sjálfur nokkur skref, svaka ´duglegur strákur og svo finnst mér líka gaman að klifra uppá kassa og inni skrifborðið hennar mömmu. eg er ennþá rosa duglegur að borða og borða mjög vel matinn minn. í gær fórum ég og mamma á reyðarfjörð að versla á mig skó og regnföt, fékk svaka flotta adidas skó og svo rosalega flott kuldastígvél sem eru fóðruð innan í, og svo fékk ég líka regnföt sem eru fóðruð með flís innan í, þau eru enn soldið stór en ég get samt notað þau, verð eins og lítill skoppari í þeim
hihi. nuna sef ég allar nætur án þess að vakna og stundum nenni ég alls ekki á fætur á morgnana, einu sinni svaf ég til hálf 12 þá fór mamma að athuga hvortað ég væri ekki ábyggilega lifandi, en þá var ég bara svona rosalega þreyttur, eftir öll áramótin og jólin. ég fékk marga pakka í jólagjöf, til dæmis náttföt, bangsa, peysur og buxur, dót, sokkabuxur, og líka rosalega flottan íþróttaálfs snjógalla og húfu
gallinn er soldi stór ennþá en ég á flotta hlyja úlpu sem ég fékk líka í jólagjöf sem ég get byrjað að nota i leiskólanum.. en já nuna ætlar mamma að fara gera eikkað, þannig að ég læt hana skrifa meira seinna
Bless og takk fyrir mig
Kveðja Magnús Orri og Mamma
Halló allir :) já ég er á lífi mamma nennir bara ekki alltaf að skrifa. hjá mér gengur allt rosalega vel, ég stækka og þyngist mikið, allavega er ég að stækka úr næstum öll fötin min, ég fer næstum að ná sæþóri frænda í vöxt, erum næstum jafn stórir :D en já ég er kominn með 7 tennur, vissuð þið það? haha nei ég svona ákvað að láta mömmu skrifa það inná að ég væri sko komin með sjö tennur og er orðinn stór strákur :D eg er 10 mánaða og er algjör sprellikall eða það segir hun mamma, ég kann alveg að skríða og svo kann ég sko líka að labba meðfram öllu sem ég næ í. ég stend upp sjálfur stundum án þess að fá hjálp eða halda mér í. en ég er ekki farinn að labba alveg sjálfur, ég verð að fá að halda mér i mömmu ef ég vil labba, annars dett ég bara á rassinn eða á andlitið, ég er rosalega duglegur að borða alltaf og mér finnst matur líka svo rosalega góður, bananar eru i mesta uppáhaldi hjá mer og svo finnst mér fiskur og kartöflur stappaðar saman alveg rosalega gott, ég fékk svoleiðis hjá ömmu minni í gær og ég borðaði fullan disk af fisknum :D núna erum við að flytja, flytjum á eskifjörð til garðars kærastan hennar mömmu, þar á ég stóran bróður, eða allavega þá er hann stjúpbróðir minn :D mér finnst hann rosalega skemmtilegur. það er sertsaklega gaman að skríða á eftir honum og reyna ná honum, þá hlæjum við báðir tveir :) svo á ég líka hund :D hún heitir tara og er rosalega góð við mig :) ég get tuskað hana til án þess að hun geri neitt við mig, ég hrellti hana um daginn með það að toga í skottið áhenni á meðan að hún var að borða matinn sinn en hun helt bara áfram að borða fannst þetta ekkert fyndið. en svo koma stóru fréttirnar :D ég fer bráðum að verða stóri bróðir :D svoldið srkytið en mamma mín er með lítið barn í maganum sínum :) litla barnið á að koma um miðjan júni :) og þá verð ég sko stóri bróðir :) það verður ábyggilega gaman :) núna er bara mánuður í jólin :) fyrstu jólin mín :)
en jams núna vil ég fara fá hreina bleyju þannig að ég læt mömmu skrífa meira seinna... hafið það sem allra best allir :)
kær kveðja Magnús Orri töffari :)
Hæ Hó !!!!! loksins tókst mér að láta mömmu mína skrífa eikkað um mig afur
, ég er orðinn 8 mánaða gamall ekki mjög langt i 9 mánaða, eg er svaka duglegur nuna, því að ég er farinn að skríða um öll golf það er svaka sport finnst mér
mömmu finnst það ekkert fyndið því að ég fel mig oft undir borði eða á bakvið sófa. Svo er ég lika farinn að standa upp við stofuborðið og stóla og sofa en það er svoldið erfitt ennþá, ég held mig i en svo renna lappirnar á undan og ég heng í smá stund þar tilað mamma bjargar mér, mömmu fannst þetta svo fyndið að ég sat fastur, righélt mér i sófann en skildi ekkert akkuru ég gat ekki fært mig. mér fannst það ekki fyndið og gargaði smá á mömmu tilað fá hjálp, en ég gerði þetta samt aftur og aftur og aftur
núna erum við á eskifirði hjá kærasta mömmu. hann er rosalega góður við mig og mér finnst mjög gaman að leika við hann, hann á lítinn strák sem er 4 ára :) hann er rosalega skemmtilegur mér finnst hann vera stóri bróðir minn. svo nuna síðustu 3 helgar i röð hef ég verið hjá pabba mínum, það var svaka fjör, mamma saknaði min samt allt of mikið. eg fór i skoðun 18 september, eg er orðinn 70cm a lengd, og 8380gr. eg kann alveg að sitja sjálfur og ef eg er a maganum þá sest ég upp sjálfur án hjálpar, eg er svakalega duglegur að borða og finnst mömmu eg algjört matargat
en verður folk ekki að borða? hihi mer finnst bara svo gott að borða, serstaklega banana, þeir eru i uppáhaldi hjá mér
nammi namm... eg vil eiginlega ekkert fá að drekka hjá mömmu. bara einstök kvöld sem eg vil fá mér smá sopa. vil frekar fá pelann áður en eg fer að sofa. en jáms eg held að þetta se mest allt komið sem mamma ætlaði að skrifa um mig, svo ætlum við að reyna setja inn myndir af mer við tækifæri...
kær kveðja : Magnús Orri töffari
fyrir verslunarmannahelgina þá fór ég með mömmu til afa í reykjavík, hun fór keyrandi með vinkonu sinni og vinum mínum
ferðin gegg vel og vorum við komin um 9 leytið i bæinn... þá var ég sofandi en vaknaði þegar að afi minn tók mig upp en þá brá mér svo mikið að ég fór að hágráta
en svo lagaðist það og ég fór að spjalla við afa minn. á föstudaginum þá fórum við í sveitina á kotmót, mér fannst það rosalega gaman að hitta ættingja mina og var því skælbrosandi ut i alla mest allan tímann
mér fannst rosalega gaman að leika við lindu systur mömmu og hun helt mikið á mér uppi kotinu. Hún og afi minn og amma alveg dyrka mig og mér finnst það rosalega gaman að fá svona mikla athygli. síðan á mánudeginum þá fórum við heim til afa i borgina aftur, á leiðinni heim var ég orðinn órólegur og drakk 2 heila pela af djús á leiðinni i bilnum. en svo þegar að við komum heim þá vissi mamma afhverju ég hafði verið að gráta, þá var ´ge vist buinn að kúka rosalega mikið í bleyjuna mina og ég vil sko alls ekki hafa einhverja skítadrullu i rassinum á mér
siðan á sunnudeginum þegar að við ætluðum að fara heim austur aftur þá fékk ég rett um 40 stiga hita og við þurftum að biða með að fara þar til deginum á eftir ,en ég fekk eina framtönn þá nóttina
þannig að þarna í borgina var ég komin með 3 tönnslur. síðan lá leiðin heim á mánudeginum , við fórum af stað um 3leytið og stoppuðum mjög mikið á leiðinni, en við vorum BARA i 12 tíma á leiðinni, ferð sem tekur yfirleitt bara 5-6 tima. en svona var þetta með fullan bíl af börnum. það var ég svo var heimir vinur minn og Shahid og christofer riyyan bræður hans. og þegar að við vorum komin á vik þá blikkaði oliuljósið hjá olkkur, þá vabtaði oliu á velina, en þetta var um miðnætti og nottla engin buð eða neitt verkstæði opið, við hringjum utum allt tilað reyna redda okkur en svo endaði með það að mamma hringdi i ömmu á höfn og hun reddaði okkur með því að kalla út mann sem er i björgunarsveitina
, en þeir voru svo góðir og almennilegir að þeir settu oliu á velina og gáfu okkur fullan brúsa af oliu
og þá um 1 leytið lögðum við af stað frá vik, vorum komin um 3 hálf 4 leytið um nóttina. ég var steinsofandi á meðan að öllu stóð og svaf þangað til að ég vaknaði næsta morgun :) svaka duglegur að sofa. en síðan að við komum heim hefur voða lítið skeð, ég er komin með 4 tönnslur núna:) fyrsta tönnin fannst i neðri góm 19 júlí, önnur tönnin i neðri góm fanns 21 júli, og þríðja um miðjan águst og sú fjórða fannst í gærkvöldi :) mamma svaka stolt af mér að vera komin með fjórar tönnslur en hun er samt ekki ánædð því að ég á það til að' vera smá vondur og bíta hana
en hvað á ég að gera mér klæjar bara i munninum mínum. núna um helgina kom vinur mömmu og mér fannst rosalega gaman hjá honum. og svo i þokkabót kom pabbi minn og amma og stóri frændi minn i heimsókn seinasta sunnudag og mér fannst það líka rosa gaman, syna pabba hvað ég er orðinn stór strákur og ég kann sko alveg að sitja sjálfur núna, en þó er best að hafa grjónapokann fyrir aftan ef ég ske skyldi að ég myndi detta, en það er voða sjaldan núna sem ég dett.mer finnst líka rosalega gaman að leika mér i göngugrindinni heima hjá ömmu minni, það er svo gaman að geta komist ferðar sínar sjálfur og skríkja og leika... en jæja haldiði ekki að mamma sé ekki bara orðin þreytt i puttunum
ég bara skil það ekki
en ætli maður verði ekki að leyfa henni að hætta núna ? hun er buin að skrifa svo mikið núna, verður ábyggilega gaman að sjá hvað margir koma inn og skoða hvað hun hefur skrifað um mig. :) Bæbæ allir saman
Kær Kveðja Magnús Orri tönnslustrákur
'Eg er orðinn stór strákur
núna er ég orðinn 60cm og 6580g. ég stækka og stækka alveg rosalega mikið er eilla bunað stækka úr öllum fötunum mínum, allavega tók mamma til í skápnum mínum áþur en ég kom austur aftur og þar var nu bara troðfullur innkaupapoki af fötum sem eru allt of lítil á mig. en ég er svo rosalega heppinn að fá föt af Sæþóri stóra frænda mínum sem eru orðin of litil á hann. ég á alveg fullt af fötum en mjög mikið af þeim fötum passa ég ekki i fyrr en þegar að ég verð eins árs heldur mamma... en já ég var í reykjavík með mömmu hjá afa og ömmu, það var rosaæega gaman og finnst mér rosalega gaman að spjalla við afa minn ég get verið rosalega góður hjá honum og spjallað við hann og líka hjá ömmu hún gerir svo rosalega skemmtileg hljóð til mín
núna er ég rosalega duglegur að sofa i vagninum mínum, sef voða vært þegar að ég læt mömmu labba með mig
við löbbuðum heilmikið í gær og í fyrradag. en núna er mamma víst komin með eitthvað ofnæmi heldur hún, allavega þá var hun að taka til og hjálpa vinkonu sinni að færa þurrkara úr kompu og þvottavél úr baðherbergi og þar var víst svona rosalgega mikið ryk og mamma stíflaðist alveg i nefinu og gat varla andað og núna þá gerir hún ekkert annað en að hnerra allan tímann. en hún er víst með ofnæmi fyrir ryki sem er virkilega leiðinlegt. en hún ætlar að reyna fá ofnæmistöflur þannig að hun verði ekki alveg svona slæm i sumar þar sem að hun er líka með grasaofnæmi
en svona eru þessar mömmur víst allavega mín tihi
en jæja haldiði ekki að ég se komin með soldið núna af ritum, allavega er mömmu að verða illt í puttunum af öllu þessu takka pikki.
jæja over and out segi ég nú bara núna.
kær kveðja Magnús Orri og mamma♣
jæja núna er ég 2 mánaða og 2daga gamall
ég er kominn í stórborgina til afa míns þar er rosalega gaman, ég er búin að vera hérna síðan á föstudag þá fór ég með mömmu minni í flugvél
ég svaf nú alla leiðina í kengúrupoka á maganum hennar mömmu, þar var rosalega hlytt og gott að vera. ég fór í 8 vikna skoðun seinasta fimtudag, og er ég búinn að þyngjast um heil 680gr á 2 vikur
ég þýngist betur núna eftir að ég hætti að drekka með mexikóska hattinn.´mamma er voða stolt af mér. svo fer eg ekki í skoðun fyrr en 3 mánaða, en þá á ég að fá sprautu
eg er samt voða duglegur núna, brosi alltaf útí eitt og hjala mikið meira. mer finnst rosalega gaman að tala við afa minn, honum finnst ég líka alveg rosalega skemmtilegur, og er voða stoltur yfir mér. loksins orðinn afi kallinn
mamma setti inn fullt af nýjum myndum af mér áðan, svo núna getið þið séð hvað ég er orðinn mannalegur
. við fórum til Hrefnu langömmu á laugardaginn hún var voða kát að hitta mig, og við tókum myndir af okkur saman, rosalega flottar. þið getið séð þær í albúmið mitt. og þar eru líka nokkrar myndir sem mamma mín breytti, þær eru sko flottar
en jæja núna fer ég að verða svangur, þannig að ég læt mömmu skrifa meira seinna.
Kær kveðja Magnús Orri og Mamma
'Eg er orðinn stór strákur
í dag fór ég í 6 vikna skoðun, ég er orðinn 56cm búinn að stækka heila 5cm síðan að ég fæddist og er búinn að þyngjast um 395g á 15 dögum, núna er ég 4395g og höfuðmálið mitt er 38cm, ég stækka og stækkog er voða duglegur. ég held höfði næstum alveg sjálfur og er farin að fylgjast mikið með hvað mamma gerir heima og svoleiðis. ég fer næst i skoðun 22mars. þá vona ég að ég verði búinn að stækka meira. mömmu minni líður vel og er rosalega stolt yfir litla stráknum sínum
jæja ég læt þetta duga núna.
kær kveðja: Magnús Orri
jæja kominn tími að skrifa smá færslu hérna, seinasta mánudag kom 'Aslaug ljósmóðir að skoða Magnús, og er hann nú orðinn 4 kíló :) hann dafnar vel og henni fannst hann hafa stækkað á þessari einu viku. Mér finnst hann stækka með hverjum degi. hann er farinn að nota galla nr62. sumir eru pínu of stórir en annars smellpassa þeir yfirleitt. Núna er hann líka farinn að taka eftir og fylgjast meira með :) og er meiri vakandi yfir daginn. 'Eg byrjaði á að láta hann sofa á bakinu fyrir 2 dögum og ég læt hann sko allataf sofa á bakinu núna, hann sefur miklu betur og vaknar ekki jafn oft til að drekka á nóttunni, þó svo að hann fór að sofa um 2 í nótt og vaknaði kl 3 aftur til að drekka en honum var eitthvað íllt í mallanum sínum. en svo vaknaði hann ekki fyrr en kl hálf 7 og fór að sofa aftur um hálf 8 og sefur enn. 'Eg er farin að gefa honum AD dropa, hann ybbir sig ekkert upp við það og smjattar bara á þessum dropum. 'Eg er líka farin að fara með hann út að labba í vagninum :) hann sefur mjög vel í honum og mér finnst mjög gott að geta loksins verið úti að labba. Var áður en ég átti alltaf úti að labba en svo var ég inni i 3 vikur án þess að fara út að labba, fór bara af og til út í búð og þá var mamma mín með Magnús. En ég er svo ánægð að ég geti verið að labba með hann úti...en ég fer bara ef það er gott veður, ekki ef það er vindur eða rígníng. 'Eg er bara búin að labba með hann 4 sinnum úti, en á eftir að labba miklu oftar. 'Eg verð miklu hressari á þessu og svo verð ég nú að losna við þennan maga eftir allt puðið. Magnús er aðeins farinn að brosa, en það er ekki mikið, koma smá viprur þegar að ég geri einhver hljóð og kitla hökuna á honum. En honum finnst líka roslaega gaman að liggja á teppinu með Sæþóri frænda sínum hann reynir mjög oft að grípa í eyrað á honum Sæþóri en það tekst nnú ekki alltaf, Sæþór fer voða varlega í hann en grípur stundum í hendina á honum Magnúsi og reynir að stínga upp í munninn (bara aðeins að smakka) en jæja ég ætla að fara reyna gera eitthvað, ætla að reyna skella nokkrum myndum inn. jæja við látum heyra í okkur bráðlega aftur.
Kær kveðja:
Freydís og Magnús Orri♥
Hæ Hó
ég er orðinn 19 daga gamall. ég breytist liggur við með hverjum degi segir mamma, þið sjáið það kannski á myndunum. mamma var að setja inn nyjar myndir af mér. það er mikill munur síðan að ég fæddist, eg er ekki lengur með þessa stóru kúlu á hausnum. 'I gær kom 'Aslaug ljósmóðir að skoða mig, ég er búinn að þyngjast um 150gr og höfuðmál mitt er núna 37cm. en ég veit ekki hvað ég er langur, það fæ ég að vita þegar að ég fer til áslaugar á heilsugæsluna...en núna á meðan að ég er svona lítill þá kemur hún heim til ömmu a skoða mig. ég bý nebbla hjá ömmu minni með mömmu þangað til að hún er tilbuin að fara með mig heim. það er voða gott að geta verið hjá ömmu...mér finnst rosalega gott að kúra í fanginu á ömmu sef oftast voða vært hjá henni. 'Eg tek syrpur á nóttinni, sef stundum frá 1 til 6-7 á morgnana, en stundum er ég prakkari og vaki langt fram á nóttu, ég sofnaði um 5 leytið í nótt, mamma var orðin voða þreytt á að ekki fá að fara sofa en ég ætlaði sko ekki að fara sofa. núna síðan að ég fæddist þá eru næstum 6 pakkar af bleyjum farnar, ég nebbla kúka alveg heilan helling, oftast þegar að mamma er búin að skipta um bleyju og er ny sest niður þá hrelli ég hana og kúka meira i bleyjuna. allavega eru bleyjurnar voða fljótar að fara. 'Eg drekk mikið, en mamma þarf að nota mexico hatta svo að ég geti drukkið, ég nebbla get ekki tekið brjóstið sjálft :( en eg er farinn að geta tekið það núna af og til inn á milli. 'Eg er búinn að fá fullt af gjöfum frá ættingjum og vinum. og vill mamma þakka öllum sem eru búin að gefa mér svona mikið. þetta er allt roalega flott. jæja núna er ég orðinn svangur! mamma verður bara að skrifa meira seinna eg vil nebbla fá matinn minn núna!
Kær kveðja Magnús Orri Þorgrímsson
já núna er litli prinsinn minn kominn í heiminn. hann fæddist 18janúar kl 20:58 hann vó 3600gr og var 51cm, höfuðmálið hans var 36cm... núna er hann 8 daga gamall...en mér finnst hann vera bara fæddur í gær þetta líður svo rosalega hratt. viðstödd fæðinguna voru 'Aslaug ljósmóðir og mamma mín (amma Helga) :) og svo í lokin var Björn læknir. ég byrjaði að fá verki kvöldið áður og svo fékk ég samdráttarverki uppúr 2 um nóttina. þá voru þeir með 20-30 minutna millibili svo um 4-5leytið þá voru þeir á 5-10 minutna millibili en svo um hálf7 þá voru þeir með ca 2-5 minútna millibili, en kl 08:30 þá hringdi mamma í áslaugu ljósmóður því að þá var ég með verki innan við 2minútna millibili. við fórum til hennar kl 9 og ég var bara lögð beint inn...þetta gekk allt vel þangað til að allt datt niður allir verkir og allt, en hann var fastur í 4 tíma greyjið. eftir að við vorum búin að þramma um gangana uppá heilsugæslu þá loks gerðist eikkað :) þá hafði höfuðið á honum rétt verið á ská þannig að hann komst ekki út en svo loks eftir siðustu þrömmunina þá snéri hann sér og var kominn i heiminn eftir klukkutíma rembingar...hann var með alveg svakalega stóra kúlu á höfðinu og var svoldið blár þar,, en sú kúla hjaðnaði fljótt og er hann núna bara með smá mar... ég bað mömmu mína um að klippa á naflastrenginn og held ég að hún hafi verið mjög ánægð með það... :) ég er orðin mikið hressari núna en ég var komin á vara vara orkuna þegar að þetta var allt afstaðið, núna þá er ég bara aum að neðan enda var ég saumuð alveg heilmikið...ég rifnaði svo svakalega mikið...áslaug hélt að annar barmurinn væri naflastrengurinn :S en þá var hann bara rifinn svo rosalega mikið... núna þá er þetta að gróa saman en það tekur um 2-3 vikur að gróa saman almennilega. svo ákvað ég að skíra hann daginn eftir og var hann skírður Magnús Orri Þorgrímsson. Pabbi minn (afi Hlynur) kom ásamt konunni sinni og lindu systur minni austur 19jan til að skoða litli prinsinn, pabbi var og er voða stoltur afi :) og Gerður (stjúpamma) er voða stolt líka held ég. svo kom Þorgrimur pabbi Magnúsar þegar að ég var búin að eiga og var hann voða stoltur yfir syni sínum... en já þetta gengur allt rosalega vel núna og er Magnús voða vær yfirleitt, þó svo að hann gráti inná milli þá er hann algjör engill... en jæja ég held að þetta sé lengsta færsla sem ég rita hér inn. en jæja þá er þetta komið í bili...
já ég fór í skoðun núna i morgun...allt í góðu lagi nema núna var meiri blóð í þvaginu og leghálsinn er rett um 1/3 af en venjulega... blóðþrýstingurinn var 120/80, 3+ af sykri...en annars var allt í góðu lagi... ég er farin að fá enn meiri verki núna og svo er ég núna með bindi því að það er farið að blæða smá...en ég á að taka því rólega og hvíla mig mikið í dag... ég fekk einu sinni ekki tíma aftur hjá ljósmóðurinni aftur ég á að hafa samband við hana fyrir kl 4 i dag og láta hana vita hvernig gengur... ég byrjaði að fá verki í gærkvöldi, stingi að neðan um leið og ég tók skref áfram þá fekk ég þessa stíngi, og svo sofnaði ég ekki fyrr en um 4 því að hvernig sem ég lá þá gat ég ekki komið mig fyrir og sofnað... en svo í morgun þegar að ég vaknaði þá var pínu blóð þegar að ég fór á klósettið og núna er ég bara með þessa þvíliku verki... ég vona að hann fari að koma i heiminn því að ég er orðin þreytt á þessa verki sem koma...en þessvegna þá getur hann komið i heiminn i dag eða nótt... hehe vinkona mín avonar að hann komi í dag því að hún á afmæli í dag...þannig að hún bíður spennt eftir að eitthvað gerist... en já ætli þetta sé þá ekki komið í bili... allavena veit ég ekki hvað ég á að skrifa meira... en ég set inn færslu við tækifæri þegar að eikkað gerist...
Kveðja Freydís og bumbustrákur ♥
jæja í gær 15januar þá fór ég í skoðun aftur...það var allt í góðu lagi bara, blóðþrystingurinn var 105//70 minnir mig og svo voru 2+ af sykri og svo var reyndar eikkað smá blóð í þvaginu sem er merki þess að slímtappinn er farin... núna er ég farin að fá enn meiri fyrirvaraverki þvílikan þrysting eins og að allt ætli bara niður og út... ég er farin að vonast til að hann fari að koma i heiminn svo að ég sleppi við þessa verki... en já ég á að fara í skoðun aftur á morgun kl 10... þarf að fara oftar núna í skoðun fyrst að það er svona stutt i að hann eigi að koma i heiminn og þessar breytingar... en núna eru bara 4 dagar i að hann eigi að koma i heiminn ♥ en jams ég bæti ábyggilega inn einni færslu á morgun eftir skoðun ef ég man eftir því... og já það eru komnar nyjar bumbumyndir...þær voru teknar í gær 15 jan...kúlan er vel sigin og ég er komin með ótrulega mikil slit :( hann stækkaði svo rosalega hratt... en jams þá er þetta komið i bili...
Freydís og bumbustrákur heilsa öllum...
Vá hvað tíminn líður hratt...núna samkvæmt reikninginn á ég að eiga eftir 10 daga... ég trúi þessu varla að það er komið að þessu... já í seinustu skoðun sem ég fór i 3januar þá var 1+ af eggjahvítu og 1+ af sykri... blóðþrýstingurinn var fínn..og allt var í góðu lagi...ljósmóðirin ákvað að gera kjallaraskoðun á mér því að hún þurfti að fara suður yfir helgina.,..en nei í skoðunina kom í ljós að leghálsinn var búinn að styttast um helming og einn til tveir í útvíkkun... þannig að ljósmóðirin vildi ekki fara suður útaf mér...:S en jams svona er þetta...hún sagði að ég myndi liklegast ekki ganga fram yfir timann...og að stráksi litli gæti verið kominn innan við 10 daga...en það var fyrir 7 dögum síðan...
ég fór í skoðun í dag 10 janúar...allt var í góðu lagi nema núna rauk blóðþrýstingurinn upp allt í einu...ég er vön að vera i 110//60 en núna var hann kominn upp í 129//96 þannig að hún mældi mig aftur þegar að skoðunin var búin og þá var ég komin niður i 120//87 þannig að ég á að taka því mjög rólega núna næstu daga...en ég fékk að skoða fæðingarstofuna í dag og var bara mjög sátt við hvernig þetta er... virðist allt vera í góðu standi og rólegheit þarna...en jams núna i skoðunina mældist engin eggjahvita en nokkrir plúsar af sykri mældust samt...já litli strákurinn minn kemur liklegast i heiminn eftir nokkra daga :) en jams ég held að þetta dugi i bili...ég á að fara í skoðun aftur á mánudag ef ég verð ekki búin að eiga þá...þannig að ég set inn færslu þá ef ég verð ekki búin að eiga...
Freydís og bumbustrákur kveðja í bili...
Já Gleðilega Hátíð allir saman
já í dag fór ég í mæðraskoðun...það gekk mjög vel og legið er núna orðið 37 cm...það mældist enn og aftur sykur í þvaginu en ég þarf ekki að fara í sykurþolspróf aftur 
ég er fegin því... núna er ég komin með heljarinnar bjúg á lappirnar...það er ekki gott eg er ekki lengur með ökkla, ég sem var svo ánægð yfir að enginn bjugur var kominn en neinei svo allt í einu kemur þetta leiðinda vesen...en já áfram með hátíðina...sá litli i bumbunni fékk 4 jólagjafir þó svo að hann er ekki fæddur... hann fékk frá langömmu sinni i kef: buxur, peysu og snjókallabangsa, frá ara pál og lilju útí frakklandi fékk hann buxur og peysu... og frá langömmu sinni i svíðþjóð þá fékk hann peysu og buxur og svo líka samfesting og peysu
þetta er allt rosalega sætt og ég þakka fyrir mig... en svo fékk ég nokkrar gjafir sjálf fékk: flísteppi, mynd af fjölskyldunni i ramma, glös, skál bolla og disk (fyrir strákinn), englakertastjaka, engil tilsað hengja uppá vegg, ullarsokka, eyrnalokka, skrín, hálsmen, peysu, rúmföt x2, tösku og svo var það eikkað fleira sem ég man ekki akkurat núna... en já þá er þetta komið í bili...á að mæta aftur í skoðun 3 jan... þá kemur í ljós hvortað sykurinn haldi áfram að pirra mig eða þá að hann hverfi...en hef ég grun um það að hann verði bara áfram...
♥Freydís og Bumbustrákur kveðja að sinni ♥