Velkomin á heimasíðuna mína
Ég heiti Kristjana Ása Þórðardóttir Lykilorðið til að komast inn í albúmið er nafnið á hundinum mínum


Um mig:
Ég fæddist 22. apríl 2006 klukkan 00.16. Ég vó 4380 grömm þegar ég fæddist og var 56 cm á lengd. Ég fæddist með ljóst hár og dökkblá augu. Mamma mín heitir Vala Hrönn Bjarkadóttir og pabbi minn heitir Þórður Jóhann Guðmundsson. Ég var ekkert að flýta mér í heiminn og lét bíða eftir mér í tvo og hálfan sólarhring þar til ég var tekin úr maganum á mömmu. Mamma og pabbi sjá ekki sólina fyrir mér enda góð og falleg stelpa á ferð:)
Ég er skírð í höfuðið á föðurömmu minni, Kristjönu Kjartansdóttur, og Ásu frænku.
Ég byrjaði í leikskóla í febrúar þannig að nú er að opnast nýr heimur fyrir mér. Gengur rosalega vel en er alltaf ánægð að fara heim til fjölskyldunnar minnar. Vaskur er besti vinur minn og svo auðvitað allar frænkur mínar og frændur sem er enginn smá hópur:) Afa mína og ömmur met ég mikils og er alltaf ánægð að fá í heimsókn.




Annað:
Það barn sem býr við hnjóð, lærir að fordæma.

Það barn sem býr við hörku, lærir fólsku.

Það barn sem býr við aðhlátur, lærir einurðarleysi.

Það barn sem býr við ásakanir, lærir sektarkennd.

Það barn sem býr við mildi, lærir þolgæði.

Það barn sem býr við örvun, lærir sjálfstraust.

Það barn sem býr við hrós, lærir að viðurkenna.

Það barn sem býr við réttlæti, lærir sanngirni.

Það barn sem býr við öryggi, lærir kjark.

Það barn sem býr við skilning, lærir að una sínu.

Það barn sem býr við alúð og vináttu, lærir að elska.

Það læra börnin sem fyrir þeim er haft.
Heimskt er heimaalið barn.
Barn er móðurinnar besta yndi.
Bregður barni til ættar.
Spakt skyldi elsta barn og vel vanið.
Brennt barn forðast eldinn.
Barnið vex en brókin ekki.
Bragð er að, þá barnið finnur.
Á misjöfnu þrífast börnin best.
Bundinn er sá er barnsins gætir.
Lík börn leika best.
Á gólfi skyldi gott barn sitja.
Gott barn kveður góða vísu.
Þægt barn fær gott atlæti.
Blessun vex með barni hverju.
Barnalán er betra en fé.
Barna lund er blíð fædd.
Barn gefur barns svör.
Bljúg er barns lundin.
Auðginnt er barn í bernsku sinni.
Lítil er barns huggun.
Tamur er barns vaninn.
Að þykir barninu, þá það grætur.
Allir hafa börn verið.
Fáir kunna eitt barn að aga.
Blautt er barns holdið.
Margt er barna bölið.
Seint er að byrgja brunninn, þá barnið er dottið ofan í.
Lengi býr að fyrstu gerð.
Allt ungviði leikur sér.
Sjaldan er gott uppeldi oflaunað, nema illu sé.
Móðir er barni best.
Milt er móður hjarta.
Mjúk er móður höndin.
Móðir dylur barnsins bresti

ELSKU BARN.

Ást mín verður með þér
hvenær sem þú þarfnast hennar.

Ást mín verður með þér
þegar gleðin ber þig ofurliði.

Ást mín verður með þér
þegar erfileikarnir eru að buga þig .

Ást mín verður með þér
þegar þú óttast lífið .

Ást mín verður með þér
í dag og alla daga.

NAUTIÐ

20. apríl – 20. maí

Foreldrar barns í nautsmerkinu þurfa að vera næm á mikla þörf þess fyrir snertingu. Þetta eru bestu knúsarar í heimi. Besta aðferðin til að ná til lítilla nauta er að höfða til skynsemi þeirra og tilfinninga. “Elsku litla stelpan mín, viltu gera þetta fyrir mömmu?” Fá naut standast nefnilega blíðu. Þægindi er eitthvað sem nautið vill. Notalegt herbergi þar sem hvorki er of heitt eða kalt, bragðgóður matur, falleg leikföng er eitthvað sem fellur nautinu í geð. Börn í nautsmerkinu eru frekar róleg og friðsöm og yfirleitt fer kannski lítið fyrir þeim. Það borgar sig ekki að reka á eftir þeim með hluti því þau vinna á sínum eigin hraða, sem er annar en gengur og gerist. Nautið er með báða fætur á jörðinni og vill vera öruggt um að hvert skref sem stigið er sé rétta skrefið. Ef rekið er á eftir því verður það óöruggt. Það borgar sig ekki til að fá litla bolann til að hlýða með skipunum eða skömmum því nautin eru þrjósk með eindæmum og sá eiginleiki sýnir sig vel þegar slíkt er reynt. Það getur verið erfitt að eiga við nautsbarnið þegar það hefur bitið eitthvað í sig og heimtar eitthvað sem gengur þvert á vilja foreldranna. Best er þá að setjast niður með bola litla og reyna að útskýra af hverju betra sé að gera þetta eða hitt, þ.e. höfða til skynseminnar. Rökin þurfa að vera skynsamleg og nautið þarf að fá tíma til að hugsa málið. Ef nautið er af rólegu gerðinni er vissara að ræða reglulega við það og fá það til að tjá sig og vinna þannig hægt og sígandi gegn feimni þess og hlédrægni. Naut þarfnast þess að vera í öruggu umhverfi og vita við hverju er að búast þannig að mikilvægt er að foreldrar séu sjálfum sér samkvæmir gagnvart því.








Þú ert gestur nr. 10237