Matthildur og Halla Marín
Síða uppfærð síðast 3. okt 2009


Um okkur Eyjapæjur:
Matthildur fæddist 10. júní 2006 á sjúkrahúsinu í Vestmannaeyjum klukkan 10:21. Hún var 17 merkur og 55 cm eftir 42 vikna meðgöngu.

Halla Marín fæddist einnig í Eyjum tæpum 20 mánuðum síðar eða þann 7. febrúar 2008 klukan 09:07. Hún var 15 merkur og 52 cm eftir rúmar 38 vikur í maganum á mömmu sinni. Halla Marín er nefnd í höfuðið á ömmusystur sinni sem hét Hallgerður en var yfirleitt kölluð Halla en Marínar nafnið er bara út í bláinn.

Foreldrar Matthildar og Höllu Marínar eru Sigurjón Gísli Jónsson og Þóra Matthildur Þórðardóttir en þau eru bæði fædd og uppalin í Neskaupstað.

Fjölskyldan flutti frá Eyjum sumarið 2009 og býr núna í Kópavogi og líður mjög vel þar. Það er gott að búa í Kópavogi:-)





Annað:
Gömul þjóðsaga
Gömul þjóðsaga segir frá barni sem var við það að fæðast.
Barnið snýr sér að Guði og segir:
Mér er sagt að ég verði sendur á jörðina á morgun: en get
ég lifað eins lítill og ósjálfbjarga sem ég er ?
Ég hef valið engil fyrir þig úr hópi engla, og hann
bíður eftir þér.Þessi engill mun sjá um þig.
En segðu mér, hérna á himninum geri ég ekkert annað en
að syngja og brosa og það er nóg til þess að vera
hamingjusamur.
Engillinn þinn kemur til með að syngja fyrir þig, hann
brosir til þín alla daga og þú verður umlukinn ást hans og
þannig verðurðu hamingjusamur. En hvernig get ég skilið þegar fólkið talar við mig þar
sem ég þekki ekki tungumálið sem mennirnir tala ?
Engillinn þinn segir falleg orð við þig, fallegustu orð
sem þú hefur nokkur tíma heyrt, og með mikilli þolinmæði og
kærleik kennir hann þér að tala. En hvað geri ég ef ég vil tala við þig ?
Þá setur engillinn þinn hendurnar þínar saman og kennir
þér að biðja. Ég hef heyrt að á jörðinni séu til vondir menn. Hver getur varið mig ?
Engillinn þinn mun verja þig, þó svo það kosti hann
En ég verð alltaf sorgmæddur því ég sé þig ekki oftar.
Engillinn þinn á eftir að segja þér frá mér og vísa þér áttina til mín, en þó mun ég alltaf vera við hlið þér.
Á þessu andartaki færðist ró yfir himininn og guðdómlegar raddir
heyrðust, og barnið sagði:
Kæri Herra, þar sem ég er að fara segðu mér; Hvað heitir engillinn minn ?

Nafn hans skiptir ekki máli, þú kallar hann bara "Mömmu"
Þú ert gestur nr. 36081