Nýjar myndir 3. janúar 2012


Um mig:
Við heitum Aðalsteinn Einir Þórisson 4 ára eyjapeyi og Sigurrós Ásta 1 árs eyjapæja. Aðalsteinn Einir kom í heiminn 21. nóvember 2006 sem var rúmlega 2 vikum fyrir tímann og Sigurrós Ásta kom í heiminn 3. mars 2010 sem var líka rúmlega 2 vikum fyrir tímann. Okkur lá verulega á að komast til mömmu og pabba og vorum ekkert að láta þau bíða lengur eftir okkur. Þegar við fæddumst var Aðalsteinn Einir 13 merkur og 49 cm og Sigurrós Ásta var 11 merkur og 48 cm. Mamma okkar heitir Elena Einisdóttir og pabbi okkar heitir Þórir Aðalsteinsson. Við eigum heima í Hraunhólunum í Garðabæ. Við eigum ömmu og afa bæði í Eyjum og Breiðholtinu, þau heita Sigga og Einir í eyjum og Begga og Addi í Breiðholtinu. Svo eigum við tvær langömmur; Jana í eyjum og Alla í Grafarholtinu. Við eigum einnig langafa sem heitir Dalli. Vá það er aldeilis nóg af fólki til að stjana við okkur :)