Ég kom í heiminn þann 18.júlí, og var ég 16 merkur og 52 cm. Ég á eina stóra systur sem að heitir Valdís Rós og er hún 4 ára, og var hún sko alveg rosalega spennt að fá mig í heiminn, og einnig á ég einn stóran hálfbróður sem að heitir Gummi en hann á sama pabba og ég :o) Mamma mín heitir Berglind Júlía Valdimarsdóttir og er frá Akranesi og pabbi minn hetir Bjarni Jóhann Guðmundsson og er úr Hafnarfirði, en við eigum heima í Grafarvogi núna.






Þessi mynd er í milku uppáhaldi hjá mömmu og pabba





KRABBINN



21. júní - 22. júlí



Börn í krabbamerkinu eru oft mjög viðkvæm og foreldrar mega búast við að mörg tár muni falla í bernsku. Þau hafa því ríka þörf fyrir hlýju og snertingu auk þess sem öryggi skiptir þau gríðarlega miklu máli. Líf þeirra þarf að vera í föstum skorðum og umhverfið gott. Foreldrar barna í krabbamerkinu ættu ekki að rífast mikið í þeirra návist því þau taka allt mjög nærri sér og eru oft lengi að ná sér á strik eftir áföll. Krabbar byrgja oft tilfinningarnar inni og því er mikilvægt að tala við þau um tilfinningar. Dæmigert krabbabarn man alla tíð eftir því þegar það týndist í Hagkaup í tvær mínútur og tekur því sem höfnun. Krabbinn er oft mislyndur og misjafn í skapi, ýmist hress og jákvæður eða þungur og dregur sig inn í skel. Hann er oft rólegur og hlédrægur en getur gosið upp annað slagið vegna þess hve viðkvæmur hann er. Það þarf að umgangast hann af nærgætni og það er ekki sama hvað sagt er við hann og hvernig. Hann tekur margt nærri sér og er móðgunargjarn. Hann er gjarn á að geyma gremjuna innra með sér og láta á engu bera á yfirborðinu. Foreldrar þurfa því að hvetja litla krabbann til að segja frá því sem honum mislíkar. Mestu skiptir að skapa krabbanum öruggt heimilislíf, veita honum hlýju og gefa honum kost á að tjá tilfinningar sínar, t.d. með því að leyfa honum að eiga gæludýr.





Elsku Mamma og pabbi



Ég er með svo litlar hendur ég ætlaði ekki að hella niður mjólkinni

Fæturnir á mér eru svo stuttir, farðu hægar svo að ég geti fylgt þér eftir

Ekki slá á hendurnar á mér þegar ég snerti eitthvað fallegt, ég skil það ekki

Horfðu á mig þegar ég tala við þig, þá veit ég að þú ert að hlusta

Ég hef viðkvæmar tilfinningar, ekki vera alltaf að skamma mig

Leyfðu mér að gera mistök án þess að mér finnist ég vitlaus

Ekki búast við því að myndin sem að ég teikna eða rúmið sem að ég bý um verði fullkomið, elskaðu mig fyrir að reyna


Mundu að ég er barn en ekki fullorðin vera, stundum skil ég ekki það sem að þú segir


Ég elska þig svo mikið, elskaðu mig bara fyrir að vera ég ekki fyrir eitthvað sem að ég geri















Valdís Rós stóra systir
Jón Gautur og Guðlaug Gyða
Bjarni Snær
Kristinn Hrafn
Jóhann Ísak
Ýmir frændi minn
Árni Valur












Þú ert gestur nr. 11587