|
**** 18. júní - NÝJAR MYNDIR ****
|
![]() ![]() ![]()
![]()
|
|
|
Hér eru smá upplýsingar um mig:
Ég fæddist þriðjudaginn 5.júní 2001 kl 22:44 á Landspítalanum. Þá var ég 13 merkur (3220 gr) og 50,5 cm. Ég var eiginlega sköllóttur og með dökk augu. Ég var strax rosalega skýr og forvitinn með eins mikið opin augu og ég gat. Allir töluðu um hvað ég væri svipmikill og sýndi mikil svipbrigði svona nýfæddur.
Pabbi og mamma voru að springa úr ánægju að vera loksins búin að fá mig:-) Þau heita Ketill ('73) og Ella Gitta ('76) og við búum í Breiðholtinu. Biggi afi og Ella amma búa rétt hjá okkur og ég fer til þeirra næstum því á hverjum degi. Þau hlýða mér líka betur en pabbi og mamma, sérstaklega afi. Alli afi og Anna amma búa hinsvegar ROSALEGA langt í burtu, alla leið vestur í Bolungarvík. Ég sakna þeirra mjög mikið en tala við þau í síma í staðinn. Svo á ég annan afa sem heitir Júlíus og býr á Siglufirði. Svo á ég líka svona aukaömmu í Vestmannaeyjum sem heitir Unnur. Þannig að ég er rosalega ríkur af öfum og ömmum :-D Ég er líka orðinn stóri bróðir. Systir mín heitir Karen Erla og ef þið viljið skoða síðuna hennar skuluð þið smella á myndina hérna fyrir neðan.
Elsku Róbert Örn. Áður en þú varst til þráðum við þig. Áður en þú komst í heiminn elskuðum við þig. Áður en þú hafðir lifað eina stund hefðum við fúslega dáið fyrir þig. Þú ert kraftaverk lífsins. Takk fyrir að vera til! Mamma og pabbi.
|
|
|
Og ennþá meira um mig:
Ég hafði svo lengi beðið eftir þér,
Svo kom þessi dagur - ég hélt þér í fangi mér. Ég horfði á ljósa hárið þitt, ég trúði því varla þú værir barnið MITT. Hjartað þrútnað' af ást til þín er þú horfðir svo blítt í augun mín. Ég vissi ég hafði himinninn höndum tekið að hamingjan sjálf hafð' á fjörur mínar rekið. Og síst er hún minni gleðin mín nú er ég kynnast hef fengið hvílík perla ert þú. Hver hlátur, hvert orð, hvert bros, hvert þitt skref, er það besta sem kynnst ég í lífinu hef. Þó mörgum sé gefið að eignast börn, er engan að fá eins og þig Róbert Örn. Þó leita ég ætti yfir lönd bæð' og höf, ég fynd' enga líka þér Guðs gefna gjöf.
Danía Rut; Sara Ísold og Þórey Erla Petra Rut; Katrín Tara og Erling Elí Erla Rakel Rakel Esther Bára Marín Líf Theodór Ísak Emanuel og Elizabeth
|
| Þú ert gestur nr. 71510 |