Velkominn á heimasíðuna okkar
Við heitum Laufey Sigurbirna og Magnús :)


Um okkur:
Laufey:

Ég fæddist 8. apríl 2002 kl. 06:24, sex vikum fyrir tímann. Ég var 46 cm og 2665 gr. Hárið á mér var dökkt og ég var með dökk blá augu sem eru reyndar orðin ljós blá núna. Ég fæddist á Landsspítalanum og var á vökudeildinni í 16 daga áður en ég fór heim. Ég var kölluð stóra barnið á vökudeildinni því ég var svo stór þegar ég fæddist miðað við öll hin börnin á deildinni.
Foreldrar mínir heita Elín Málmfríður Magnúsdóttir og Sigurður Ingvar Þorvaldsson. Ég er svo rík að eiga tvo pabba og heitir stjúppabbi minn Sveinn Snorri Magnússon.

Ég var skírð Laufey Sigurbirna í höfuðið á ömmum mínum. Laufey í höfuðið á mömmu Lullu og Sigurbirna í höfuðið á ömmu Gústu. Ég var skírð í Akraneskirkju í messu á Hvítasunnudag 19. maí 2002 af séra Eðvarði Ingólfssyni. Skírnarvottar voru Afi Maggi, Afi Valdi, Nenna frænka og Langamma Lóa. Veislan var haldin heima hjá ömmu Lullu og afa Valda.

Magnús:

Ég kom í heiminn 23. október 2005 og það með miklum hvell. Mamma og pabbi voru búin að bíða í 3 daga. Mér lá rosalega á að komast út og ýtti mér út úr mömmu á tæpum klukkutíma. Mér var kastað beint í fangið á pabba og var þar í góðan hálftíma áður en ég var mældur. 3885 grömm og 52 cm mældist ég og er alveg passlegur :) Mér finnst ég bara vera nokkuð mannalegur :) :)
Foreldrar mínir heita Sveinn Snorri Magnússon og Elín Málmfríður Magnúsdóttir.

Ég var skírður Magnús í höfuðið á öfunum mínum en það vill svo skemmtilega til að báðir afar mínir heita Magnús. Ég er líka alnafni annars þeirra. :) Ég var skírður heima í Asparholti laugardaginn 19. nóvember 2005 af séra Friðriki J. Hjartar. Skírnarvottar voru Cec og Össi. Veislan var líka haldin heima.

Mömmu og pabba finnst við vera yndislegustu systkini sem til eru.




Annað:
Munið að kvitta í gestabókina !!!!