Velkomin á heimasíðuna okkar
Við heitum Rebekka Rut Rúnarsdóttir og Rakel Rut Rúnarsdóttir


Um mig:
Rebekka Rut Rúnarsdóttir fæddist 28. febrúar kl 20.13. Hún var 14 merkur 3440 gr og 50 sentimetrar
Hún er fyrsta barn mömmu og pabba.
Mamma mín heitir Karen Haraldsdóttir '76 og Pabbi minn heitir Rúnar þór Karlsson '76.

Fiskarnir 19. febrúar - 20. mars
Hið dæmigerða fiskabarn er yfirleitt hæfileikaríkt og vel gefið en viðkvæmt og ekki ólíklegt að það missi stjórn á tilfinningum sínum og bresti í grát af engri sjáanlegri ástæðu. Fiskar eru gjarnir á að fórna sér fyrir aðra. Mikilvægt er að fara varlega að fiskunum og varast að særa tilfinningar þeirra með vanhugsuðum orðum. Fiskar eru mjög skapandi og þeir geta skapað sinn eigin heim þar sem þeir finna til öryggis þegar hinn harði heimur reynist þeim ofviða þá flýja þeir inn í sinn eigin. Því er mikilvægt að hvetja litla fiskinn til að koma út úr skel sinni og takast á við lífið, hvetja hann til að segja skoðun sína hreint út. Foreldrar ættu einnig að hlúa að listrænum hæfileikum barnsins ef þeir koma fram. Fiskurinn er í eðli sínu vingjarnlegur og skilningsríkur en jafnframt umburðarlyndur. Hann á t.d. erfitt með að trúa nokkru misjöfnu um aðra og er því alltaf jákvæður í fyrstu gagnvart ókunnugum.

Lilypie 1st Birthday PicLilypie 1st Birthday Ticker

Rakel Rut Rúnarsdóttir fæddist 23. september 2010 kl. 05:13. Hún var 2732 gr. ca 11 merkur og 49 cm.

Vogin 23.september - 23. október

Börn í vogarmerkinu eru oft glaðleg og broshýr og eru oftar en ekki börnin sem fá bros frá hinum sem bíða á biðstofu læknisins. Þau eru sjarmerandi og heilla aðra upp úr skónum. Félagslyndi einkennir vogina frá fyrstu tíð og litla vogin elskar að hafa margt fólk í kringum sig. Vogarbarn sem þarf að búa við einangrun getur orðið geðstirt, innhverft og óöruggt en þegar allt leikur í lyndi er það opið og hresst. Vogin á mjög erfitt með að gera upp hug sinn og virðist oft hafa lítinn viljastyrk. Þess vegna er mikilvægt að foreldrar hjálpi voginni að rækta með sér sjálfstæði og ákveðni meðal annars með því að fela henni ákveðin verkefni sem reyna á ákvarðanatöku. Líklegt er að Vogin spyrji álits og því er hægt að svara með því að spyrja: “Hvað finnst þér?” Síðan þarf að gefa henni næði til að vega og meta hlutina áður en hún tekur ákvörðun. Vogin er listræn í eðli sínu og mikilvægt að hlúa að þeim eiginleikum og skapa henni aðstöðu til að þroska listræna hæfileika sína


Lilypie Premature Baby tickers



ELSKU BARN.

Ást mín verður með þér
hvenær sem þú þarfnast hennar.

Ást mín verður með þér
þegar gleðin ber þig ofurliði.

Ást mín verður með þér
þegar erfileikarnir eru að buga þig .

Ást mín verður með þér
þegar þú óttast lífið .

Ást mín verður með þér
í dag og alla daga.








Annað:
ELSKU MAMMA OG PABBI...

Ég er með svo litlar hendur,ég ætlaði ekki að hella niður mjólkinni.

Fæturnir á mér eru svo stuttir,farðu hægar svo ég geti fylgt þér.

Ekki slá á hendurnar mínar þegar ég snerti eitthvað fallegt,ég skil það ekki.

Horfðu á mig þegar ég er að tala við þig,þá veit ég að þú ert að hlusta.

Ég hef viðkvæmar tilfinningar,ekki vera alltaf að skamma mig.

Leyfðu mér að gera eitthvað vitlaust án þess að þér finnist ég vitlaus.

Ekki búast við því að myndin sem ég teikna eða rúmið sem ég bý um sé fullkomið.

Elskaðu mig bara fyrir að reyna.

___________________________________________________


PABBI ER MAÐURINN

Sem verður svo montinn þegar maður fæðist að

það mætti halda það hafi ekki fæðst barn áður.

En það tekur hann bara nokkra daga að komast

niður á jörðina aftur.

Honum finnst skrítið að lítið barn skuli ekki getað

sofið alla nóttina og kúkað í klósettt eins og

annað fólk.

Samt veit hann allt!! svo þegar maður verður

aðeins eldri og það er hægt að fara að leika

við mann og kenna manni ýmislegt finnst

honum rosa gaman.

Pabbi er alltaf til staðar með styrka hönd þegar

á þarf að halda.

PABBI ER BESTI MAÐUR Í HEIMI




MAMMA ER KONAN

Sem kemur manni i heiminn með mikilli fyrirhöfn

fæðir mann og klæðir og veitir alla þá hlýju og

ástúð sem lítið barn þarf á að halda.

þegar maður eldist og ætti kannski að geta hugsað

meira um sig sjálfur, til dæmis að vera í hreinum

fötum, og laga til í herberginu sínu leyfir mamma

manni það ekki því hún er vön að hugsa svo vel

um barnið sitt.

Mamma er alltaf til staðar með útrétta hjálparhönd

þegar á þarf að halda, þerrar tárin þegar það er leiðinlegt

og gleðst með manni þegar það er gaman að vera til.

MAMMA ER BESTA KONA Í HEIMI

___________________________________________________

Vinir Mínir


Rúnar Gauti & Jenna


Karl Jóhann



Magnús, Halldís og Kristján Hjaltested


Kristján Rafn og Leví Rafn


Bergsveinn & Helena Rós Ellertsbörn
Jóhann Friðrik Ellertsson


Ingvi Hrafn Hafsteinsson og Esther Sara Hafsteinsdóttir


Diddi og Vigdís Anna


Þórarinn Sigurður (Tóti) og Karitas Guðrún


Andri Snær og Gústaf Logi


Eysteinn Bessi og Björgvin


Andreas Berglindarson Røstad


Sölvi Hrafn og Hilmir Örn


Guðlaug Sigurrós Gunnþórsdóttir


Vignir Steinn Stefánsson


Sóldís Malla og Þórður Már

Þú ert gestur nr. 29179