Ég heiti Jón Arnór og er orðinn stóri brói! Ég er fæddur þann 9. sept 2006 klukkan 8:40. Við fæðingu var ég 3300 gr eða 13 merkur og 49.5 cm. Litli bróðir minn er fæddur þann 14. ágúst 2008 klukkan 21:23. Við fæðingu var hann 3010 gr eða 12 merkur og 48.5 cm.
Mamma okkar heitir Heiðrún Björk og pabbi okkar heitir Pétur Veigar. Við eigum besta stóra bróður í heimi sem heitir Aron. Hann er fæddur 7. des 1998.

NÝTT LYKILORÐ INN Á HEIMASÍÐUNA!
EKKI VERA FEIMIN AÐ SENDA OKKUR PÓST OG FÁ AÐGANG :)





Jón:

Nafn þetta er stytting af nafninu "Jóhannes" sem merkir Guð er náðugur.

Arnór:

Nafn þetta er myndað af fornliðnum "Arn" sem merkir Örn eða heimili og viðliðnum Þór úr goðafræðinni.



Meyjan 23 ágúst - 22 sept.
Hér er kominn einstaklingur sem vill hafa hlutina í röð og reglu og er mjög íhaldssamur. Litla meyjan er að öllu jöfnu auðveld í umgengni, samviskusöm, dugleg og hlýðin en oft á tíðum alvörugefin. Skynsemi meyjarinnar kemur yfirleitt fljótt í ljós og ef kæruleysi er ríkjandi í kringum hana er ekki ólíklegt að hún fari að siða fólk til í kringum sig og hafa vit fyrir því. Hún byrjar snemma að hjálpa til á heimilinu og er oft mjög handlagin. Hún er yfirleitt ekki mikið gefin fyrir að draga athyglina að sér og lítil meyjubörn geta oft haft ofan af fyrir sér sjálf í langan tíma. Foreldrar þurfa að draga fram hið jákvæða því litlar meyjur hafa oft áhyggjur af því að hlutirnir séu ekki nægilega vel gerðir. Því þarf að hjálpa þeim að sjá bjartari hliðar tilverunnar og læra að trúa á eigin getu. Ekki er verra að ýta undir skopskyn þeirra.





Patrik: er upphaflega nafn á írskum dýrlingi.

Nökkvi - bátur, skip.



LJÓNIÐ
23. júlí - 22. ágúst

Konungurinn í frumskóginum er mættur og vill einmitt vera meðhöndlaður í samræmi við tign sína. Litla ljónið þarfnast athygli (við erum að tala um að vera alltaf miðdepill athyglinnar!) og vill láta taka eftir sér og láta dást að sér. Það getur verið mikil vinna að eiga börn í ljónsmerkinu. Börnin eru oft hávaðasöm og mjög opin í tjáningu. Ef barnið er ánægt er það yndislegasta og fallegasta barn í heimi en ef það er óánægt öskrar það og lætur öllum illum látum. Heimilislífið kemur til með að snúast mikið í kringum kraftmikinn ljónsungann sem getur verið mjög stjórnsamur og frekur. Það þýðir ekki að segja ljóninu að læðast meðfram veggjum því slíkt er andstætt eðli þess og er ekki til annars en að brjóta það niður. Vingjarnleg ákveðni er það sem dugar best. Ljónið er merki stjórnunar og foreldrar þurfa að virða þörf þess fyrir persónulegt sjálfstæði og því er gott að fela því snemma ábyrgð. Mikilvægt er að kenna því að taka tillit til annarra. Það þarf að taka tillit til þess í uppeldi að ljónið er einstakt og veita því athygli, hvatningu og ekki síst að hrósa því þegar það hefur gert eitthvað jákvætt.





Ég er með svo litlar hendur,ég ætlaði ekki að hella niður mjólkinni.

Fæturnir á mér eru svo stuttir,farðu hægar svo ég geti fylgt þér.

Ekki slá á hendurnar mínar þegar ég snerti eitthvað fallegt,ég skil það ekki.

Horfðu á mig þegar ég er að tala við þig,þá veit ég að þú ert að hlusta.

Ég hef viðkvæmar tilfinningar,ekki vera alltaf að skamma mig.

Leyfðu mér að gera eitthvað vitlaust án þess að þér finnist ég vitlaus.

Ekki búast við því að myndin sem ég teikna eða rúmið sem ég bý um sé fullkomið.

Elskaðu mig bara fyrir að reyna.



Sem kemur manni í heiminn með mikilli fyrirhöfn fæðir mann og klæðir og veitir alla þá hlýju og ástúð sem lítið barn þarf á að halda. Þegar maður eldist og ætti kannski að geta hugsað meira um sig sjálfur, til dæmis að vera í hreinum fötum og laga til í herberginu sínu, leyfir mamma manni það ekki því hún er vön að hugsa svo vel um barnið sitt. Mamma er alltaf til staðar með útrétta hjálparhönd þegar á þarf að halda, þerrar tárin þegar það er leiðinlegt og gleðst með manni þegar það er gaman að vera til.
TAKK FYRIR AÐ VERA MAMMA MÍN.



Sem verður svo montinn þegar maður fæðist að það mætti halda það hafi ekki fæðst barn áður. En það tekur hann bara nokkra daga að komast niður á jörðina aftur. Honum finnst skrítið að lítið barn skuli ekki getað sofið alla nóttina og kúkað í klósett eins og annað fólk. Samt veit hann allt. Svo þegar maður verður aðeins eldri og það er hægt að fara að leika við mann og kenna manni ýmislegt finnst honum rosa gaman. Pabbi er alltaf til staðar með styrka hönd þegar á þarf að halda.
TAKK FYRIR AÐ VERA PABBI MINN.