| Elvar Snær & Elísa Sif |
| Nýjar myndir 1 jan 2010 ! |
|
|
Um okkur:
Elvar Snær fæddist á Landspítalanum í Rvk
laugardaginn 3 September '05 Klukkan 22.40. 13 merkur og 50 cm. Yndislegur ! Elísa Sif fæddist á Landspítalanum í Rvk miðvikudaginn 21 maí 08 klukkan 14.04. 17 merkur og 53 cm. Algjör bjútíbolla :) Smá frá Elvari Snæ... Ég er ofsa ánægður með að vera loksins búinn að fá litlu systir mína ;) ég kallaði hana Hello Kitty þegar hún var í bumbunni á mömmu en núna segi ég sko bara nafnið hennar "Elísa Sif" og litlan mín ;) Ég kyssi hana og knúsa og veiti henni mjög mikla athygli! Mér finnst hún vera "sæt "og líka "dúlla" Og ÉG á Elísu ! Ég er besti og duglegasti stóri bróðir í öllum heiminum ! Elvar Snær fékk nafnið sitt þann 22 Október 2005. Elvar eins og Elva vinkona mömmu :) og Snær því mömmu og pabba fannst það líka svo fallegt. Elísa Sif fékk nafnið sitt þann 15 júní 2008. Elísa alveg út í loftið og Sif í höfuðið á Sif vinkonu mömmu :) Mamma og pabbi eru að springa úr monti með okkur, enda erum við þau allra flottustu ;) |
|
|
Elsku barn.. Ég veit að ég á ekki alltaf auðvelt með að tjá tilfinningar mínar. En nú langar mig að segja þér hvað ég elska þig mikið. Mig langar til að segja þér hug minn. Ég veit ekki hvar ég væri ef ég hefði ekki fengið þig inní líf mitt. Þú ert mér allt. Þú ert súrefnið mitt, andardráttur minn og löngun mín til að lifa. Hamingjan mín hófst með komu þinni inní þennan heim. Í dag horfi ég á þig og er hissa á því hvað þú ert raunverulegur. Ég er svo ótrúlega heppin að hafa fengið þig inní líf mitt, og að fá að hafa þig mér við hlið í gegnum lífið. Þú ert gullið mitt,fjársjóðurinn minn. Ég hef reynt að læra sem mest af þér í gegnum tíðina. Ég reyni að meta þig að verðleikum. þú hefur kennt mér svo margt um lífið, sem ég annars hefði farið á mis við. Hvar væri ég án þín? Ég elska þig elskan mín ,nú og að eilífu þín mamma. ELSKU ELVAR SNÆR & ELÍSA SIF... Ást mín verður með þér hvenær sem þú þarfnast hennar. Ást mín verður með þér þegar gleðin ber þig ofurliði. Ást mín verður með þér þegar erfileikarnir eru að buga þig . Ást mín verður með þér þegar þú óttast lífið . Ást mín verður með þér í dag og alla daga. ELSKU MAMMA OG PABBI..... Ég er með svo litlar hendur, ég ætlaði ekki að hella niður mjólkinni Fæturnir á mér eru svo stuttir, farðu hægar svo ég geti fylgt þér eftir Ekki slá á hendurnar á mér þegar ég snerti eitthvað fallegt, ég skil það ekki Horfðu á mig þegar ég tala við þig, þá veit ég að þú ert að hlusta Ég hef viðkvæmar tilfinningar, ekki vera alltaf að skamma mig Leyfðu mér að gera mistök án þess að mér finnist ég vitlaus Ekki búast við því að myndin sem ég teikna eða rúmið sem ég bý um verði fullkomið, elskaðu mig fyrir að reyna Mundu að ég er barn, ekki fullorðin vera, stundum skil ég ekki það sem þú segir Ég elska þig svo mikið, elskaðu mig bara fyrir að vera ég, ekki fyrir eitthvað sem ég geri. MAMMA ER KONAN Sem kemur manni í heiminn með mikilli fyrirhöfn fæðir mann og klæðir og veitir alla þá hlýju og ástúð sem lítið barn þarf á að halda. Mamma er alltaf til staðar með útrétta hjálparhönd þegar á þarf að halda. Þerrar tárin þegar það er leiðinlegt og gleðst með manni þegar það er gaman að vera til. Mamma er besta kona í heimi. PABBI ER MAÐURINN Sem verður svo montinn þegar maður fæðist að það mætti halda það hafi ekki fæðst barn áður en það tekur hann bara nokkra daga að komast niður á jörðina aftur. Honum finnst skrítið að lítið barn skuli ekki getað sofið alla nóttina og kúkað í klósett eins og annað fólk. Samt veit hann allt !! Svo þegar maður verður aðeins eldri og þá er hægt að fara að leika við mann og kenna manni ýmislegt þá finnst honum rosa gaman. Pabbi er alltaf til staðar með styrka hönd þegar á þarf að halda. Pabbi er besti maður í heimi ! |