Hæ hæ! Ég heiti Sandra Lísa og er algjör snúlla.
Ég er skírð í höfuðið á mömmu hennar mömmu sem heitir Inga Anna Lísa. En Sandra er bara út í loftið.
Mér finnst ofsalega gaman að vaka frameftir með mömmu og pabba þegar brósi er farinn að sofa. Þá horfum við saman á sjónvarpið eða förum í tölvuna. Stundum er mamma reyndar orðin þreytt og fer að sofa með Sindra, þá eru það bara ég og pabbi eftir á fótum og það er ofsagaman.
Eins og þið sjáið þá er ég algjör dúlla, þó ég segi sjálf frá :)
Uppáhaldsliturinn minn er auðvitað bleikur og uppáhalds fígúran mín og mömmu er Hello Kitty.
Aðaláhugamál mín núna eru að róla í nýja stólnum sem ég og Sindri bróðir fengum í skírnargjöf. Það er ótrúlega gaman, Sindri er ekki eins áhugasamur fyrir stólnum þannig að ég fæ að vera enn þá meira í honum. His loss is my gain!
Hvað þýðir nafnið mitt?
Sandra: Nafn þetta er ítalskt að uppruna og er stytting á nafninu "Alessandra" sem á Íslandi mundi útleggjast Alexandra, sem kemur frá karlmannsnafninu Alexander sem merkir verndari.
Lísa: Nafn þetta er stytting á nafninu "Elísabet", sem er leitt af hebreska orðinu "elisheba" sem merkir Guð er fullkominn, -Guð hefur svarið.
Núna er ég orðin 11 mánaða gömul skvís. Ég er farin að babla alveg heilmikið og er alveg að fara að labba. Við systkinin eru ofsa dugleg að standa upp við allt og labba meðfram öllu, en skemmtilegast er samt að halda í hendurnar á einhverjum stórum og labba með honum, þá erum við alveg að springa úr monnti.
Það sem mér finnst skemmtilegast er að fara í bað það er alveg æðislega gaman. Við systkinin buslum og buslum og skríkjum allan tíma. Það er alveg geðveikt, en það er ekki eins gaman þegar mamma og pabbi taka okkur upp úr baðinu. Það sem mér finnst allra leiðinlegast samt er þegar verið er að skipta á mér, það er alveg ömurlegt, og líka þegar verið er að klæða mig. Mamma og pabbi hlakka svo mikið til þegar ég get farið að gera það sjálf.
Það sem mér finnst best að borða er kjöt, gularbaunir og ís, hann er langbestur. Það er rosalega gaman að tína gulubaunirnar upp í sig. Síðan finnst mér mjög gaman að stríða brósa og eiginlega öllum bara. Það er alveg frábært að þykjast ætla að láta einhvern fá eitthvað og hætta svo við á síðustu stundu :D það er alveg toppurinn. Mér finnst það alltaf jafn fyndið - en brósi skilur ekki hvað er svona fyndið við það - hann fer bara að grenja. Hann fattar bara ekki húmorinn !