Hæ hæ! Ég heiti Sindri Logi og er algjör töffari.
Aðaláhugamál mitt er hnéð mitt. Í alvöru ! Það er ótrúlega spennandi og þá er ég
að tala um hægra hnéð, ótrúlega flott. Ég get eytt alveg slatta af
tíma í að skoða það, ég hef aldrei séð neitt sem er eins spennandi :)
Pabbi er að vonast eftir að ég fái önnur áhugamál þegar ég verð eldri, eins og bíladellu eða verði tölvunörd eins og hann, en eins og málin standa núna þá er það hnéð mitt. Sorrý pabbi.
Ég er mjög duglegur að borða enda ætla ég að verða stór og sterkur eins og pabbi. Á meðan Sandra systir er vakandi með mömmu og pabba á kvöldin þá fer
ég snemma að sofa og einbeiti mér að því að stækka.
Hvað þýðir nafnið mitt?
Sindri: Nafn þetta er leitt af nafnorðinu "sindur" sem merkir glóandi járnsvarf, -gjall.
Logi: Nafn þetta er fengið af nafnorðinu "logi" sem merkir eldur.
Nafnið mitt er því mjög bjart og fallegt, alveg eins og ég.
Núna er ég orðinn 11 mánaða gamall snúlli. Við erum orðin ofsalega dugleg að labba með. Síðan eru við orðin mjög hraðskreið í göngugrindunum og látum mömmu og pabba hlaupa á eftir okkur út um alla stofu. Við erum farin að reyna tjá okkur svolítið núna. Ef eitthvað dettur í gólfið þá segjum við daa (sem er auðvitað datt) og síðan segjum við auðvitað mama, mamma og baba. Uppáhaldið okkar að fara í bað. Ég vil helst halda á öllu dótinu í einu og verð aðeins of æstur. En mamma og pabbi passa mig þ.a. ég get ætt út um allt baðið og treysti því að þau grípi mig þegar ég dett.
Dótakassinn okkar er alveg frábær. Ég get farið ofaní hann og uppúr honum endalaus. Síðan finnst mér ofboðslega gott að borða - hverjum þykir það ekki :D Við erum farin að vera mjög dugleg að borða "fullorðinsmat", okkur finnst kjúklingur, svínakjöt og lambakjöt mjög gott og ÍS! Ís er æði, helst vanilluís. Ef mamma og pabbi eru ekki nóg dugleg að skópla upp í okkur þá er sko orgað eins hátt og við getum, þá fáum við sko athygli :) Síðan er ég orðin soldið viðkvæmur fyrir að Sandra Lísa stríði mér, hún getur verið soldið ýkt í stríðninni.