3ja ára !!!
Í dag urðum við 3ja ára. Við héldum svaka partý og fengum fullt af vinum okkar til að koma í heimsókn og borða með okkur kökur. Það var ofsalega gaman. Við vorum alveg búin á því eftir daginn og steinsofnuðum í nýju rúmmunum okkar. Á morgun ætlum við síðan að leika við dótið sem við fengum í afmælisgjöf og fara að gefa öndunum, það er búið að vera á dagskrá hjá okkur síðustu 3 dagana, en bara aldrei verið tími.

Annars er bara allt gott að frétta af okkur. Við erum bæði búin að fá hlaupabóluna, þarna rétt eftir páskana. Sindri fékk hana 2 vikum eftir að Tekla frænka fékk hana og Sandra síðan 2 vikum eftir Sindra.
Síðan fórum við í sumarbústað í eina viku, í kringum 17.júní, það var ofsagaman. Amma Inga og Svenni afi komu í heimsókn og voru í eina nótt hjá okkur og síðan komu Arna amma og Sighvatur afi líka og voru í eina nótt hjá okkur.
kv. Sindri Logi og Sandra Lísa.
Sindri líka hættur með bleyju :D
Jæja, núna er Sindri Logi líka hættur með bleyju. Það hlaut að koma að því að hann myndi fylgja eftir systur sinni. Hann ákvað sjálfur í gær (19.apríl) að það væri komið nóg með bleyjuna.
Núna í augnablikinu er Sindri hitalaus en Lísa enn þá með 38°C. Ótrúlegt hvað þessi hiti ætlar að hanga lengi í þeim. En við gátum þó notað tímann hérna heima til að hætt með bleyju ;) Gott að það kom eitthvað jákvætt útúr þessu.
Kv. Thelma.
Engin hlaupabóla !
Á páskadag komu amma Inga Lísa, Svenni afi, Henni frændi og Tekla og Gígja frænkur okkar í mat til okkar. Gígja var nýbúin að vera með hlaupabólu og síðan var Tekla orðin eitthvað slöpp um kvöldið. Þegar þau voru komin heim til sín var Tekla orðin öll út í bólum á kroppnum sínum. Síðan var Lísa send heim úr leikskólanum á þriðjudeginum með hita. Mamma var alveg viss um að núna værum við að fara að fá hlaupabólu. Morguninn eftir vorum við bæði með hita og erum enn þá með nokkrar kommur, en engin bóla :) Mamma var nú hálfpartinn að vona að við myndum bara fá þessa pest núna og þá væri hún búin, en hún er samt líka soldið ánægð að þetta sé bara kvef. Sérstaklega þar sem hún er sjálf veik líka.

Annars er allt gott að frétta af okkur, við erum alltaf að verða duglegri og duglegri að tala skírar og síðan erum við á fullu að læra stafina. Okkur finnst ofsalega gaman að vita hverjir eiga hverja stafi.
Mamma var loksins að setja inn nokkrar myndir. Einhverra hluta vegna var eiginlega ekkert tekið af myndum af okkur í mars :) en það eru komnar nokkrar í apríl. Mamma og pabbi eru eitthvað farin að slaka á í myndatökunum á okkur ... :D
Knús og kossar
Sindri Logi & Sandra Lísa.
Lísa er hætt með bleyju !!!
Þegar pabbi kom að sækja okkur á miðvikudaginn (25.mars) í leikskólann þá var Lísa ekki með neina bleyju. Fóstrurnar sögðu pabba að hún hefði ákveðið að hætt með bleyju ! Hún er búin að vera alveg ofsalega dugleg síðan að láta vita hvernær hún þarf að fara á klósettið, og þá er hlupið með hana eins og fætur toga :)
Síðan fóru mamma og pabbi til Akureyrar, á skíði, um helgina. Við fórum í pössun í Aratúnið fyrri nóttina og síðan í Úthlíðina seinni nóttina. Þetta var voða mikið ævintýri. Við fórum með Svenna afa og Ingu Lísu ömmu í fermingarveislu, bæði á laugardeginum og sunnudeginum, þ.a. það var nóg að gera hjá okkur. Síðan þegar Lísa vaknaði til að pissa um nóttina (á sunnudeginum) þá voru mamma og pabbi allt í einu komin heim. Mömmu fannst ofsa gott að vera vakin svona um miðja nóttina og fá stórt knús frá duglegu Lísunni sinni.
Síðan er bara að bíða og vonað að Sindri fari að taka við sér og vilja hætta með bleyju líka ;)
Knús Lísa og Sindri.
Foreldraviðtal í leikskólanum ;)
Í dag fóru mamma og pabbi í leikskólan okkar. Stína (fóstran okkar) var að segja mömmu og pabba hvað við erum alveg ofsalega dugleg í leikskólanum. Hún var meir að segja að segja þeim að við værum ofsa dugleg að borða grænmeti og kartöflur í matnum ... við gerum það ekki heima :Þ
Mamma og pabbi halda að Stína hafi verið að rugla okkur við einhver önnur börn, en hún var alveg viss um að það værum við. Hún á auðvitað ekkert að vera að kjafta frá svona löguðu ;)

Núna erum við búin að vera alveg 2 vikur í leikskólanum, án þess að vera veik heima. Þ.a. við erum að vona að við séum hætt þessu veikinda veseni. Annars fannst okkur líka bara mjög gaman að vera heima með mömmu og pabba. Við erum orðin mjög dugleg að púsla og skoðum mikið af bókum með mömmu og pabba og öllum sem nenna.
Við vorum alltaf að spyrja mömmu og pabba um stafina, þ.a. þau eru búin að kaupa handa okkur stafabók og stafapúsluspil. Það er ofsa gaman að læra stafina, við erum mjög áhugasöm um þetta allt saman.
Síðan viljum við þakka Ólöfu Björk frænku fyrir að vera svona góð að klippa okkur í gær. Við vorum ekki alveg að leggja í að láta hana klippa okkur, en síðan fór hún að tala um að "maðurinn" yrði þá bara að klippa okkur og þá var Sindri nú fljótur að setjast í stólinn og Lísa síðan strax á eftir ;) Það er aldrei að vita hver þessi maður er eiginlega.
Knús Sindri og Lísa
Ps. mamma skellti inn nokkrum myndum.
Veikindi, veikindi ...
Lísa var með hita alla síðustu viku og fór því ekkert í leikskólann, henni fannst það bara mjög fínt. Sagði á hverjum degi: Sindri fara aleinn í geikkigólann (leikskólann) og Lísa heima með mömmu! Mjög ánægð með það. Þegar Sindri kom síðan heim voru miklir fagnaðarfundir hjá þeim og mikið knúsað. Þegar hún var síðan búin að vera með smá hita í meira en viku og Sindri með kvef, sem fór bara versnandi, var okkur hætt að lítast á blikuna og fórum við með þau til læknis.

Lísa var ekki alveg á því að fara til læknis, en vildi samt fá lyf. Hún kvartaði allan tíman á leiðinni til læknisins að hún vildi ekki hitta lækni BARA FÁ LYFIN SÍN. Það var auðvitað ekki alveg að gerast. Það var mikið orgað á læknirinn (Lísa er ekki mikill aðdáandi lækna) en útkoman var sú að Lísa var sem sagt komin með streptókokka aftur en Sindri var bara kvefaður. Lísa var þvílíkt hamingjusöm með að fá LYFIN SÍN !
Daginn eftir var hitinn horfinn og þau bæði farin í leikskólann. Lísu langaði nú samt alls ekki að fara, en það var ekkert múður með það. Þetta var mjög spennandi og sérstakur dagur í leikskólanum, þar sem þau fengu að fara í fyrsta skiptið í strætó með deildinni sinni. Það var rosa gaman, síðan kom pabbi og sótti þau og síðan var mamman sótt í vinnuna. Það er alltaf svoldið gaman að sækja mömmu í vinnuna ;)
Þ.a. núna eru við öll að koma til og vonandi fer allt að komast í sínar skorður aftur. Desember og Janúar búnir að vera í algjöru rugli vegna veikinda hjá okkur.
Mamma fer að setja inn nýjar myndir bráðum ... þegar tími gefst til ;)
kv. Sindri Logi & Sandra Lísa.
Gleðilegt Ár !!!
Nýtt ár ... vá ! Ótrúlega fljót að líða þessi ár. Við erum búin að hafa það alveg ofboðslega gott yfir jólin. Búin að sofa út, fara á 2 jóla böll og endalaust mikið af matarboðum hjá ömmum og öfum. Bara gaman !
Mamma og pabbi voru alveg fáránlega sein með jólakortin í ár, ekki alveg að fatta að það á að senda þau fyrir jól ... en þetta reddast nú samt alltaf einhvern veginn. Það segir pabbi allavega alltaf.
Fengum líka að skála fyrir nýja árinu eins og allir hinir, fengum ofsa gott jarðaberjagos.
Við fórum öll á læknavaktina kl.16 á aðfangadag og fengum loksins rétta greinigu á Lísu. Hún var búin að vera svo lengi með streptókokka greyið að hún var komin með Skarlattsótt :( það var búið að segja við okkur fyrr í mánuðnum að það væri ekkert að henni, bara einhver flensupest! Okkur var hætt að lítast á þetta þegar við tókum eftir að hún var farin að flagna öll á fingurgómunum. Mamman á heimilinu var vissu um að þetta væri skarlattsótt og það var auðvitað rétt. Ekki sátt við læknabarnið sem skoðaði okkur öll um daginn.
Við fórum loksins í leikskólann á föstudaginn, fóstrurnar voru næstum búnar að gleyma okkur ;) samt ekki alveg. Við vorum nú ekki alveg á því að leyfa mömmu og pabba að skilja okkur eftir, en síðan þegar þau komu að sækja þá var auðvitað búið að vera alveg rosa gaman hjá okkur. Þ.a. við ætlum aftur á mánudaginn og vonandi getum við verið eitthvað meira í janúar en við vorum í desember :D
Mamma var að klára að setja inn áramótamyndirnar okkar, endilega að kíkja :D
Knús og kossar Sindri Logi & Sandra Lísa.
Gleðileg Jól !
og farsælt komandi ár !
Við fengum fullt af ofsa fínum gjöfum, þar á meðal fengum við þessi fínu píanó frá ömmu Örnu og Sighvati afa. Okkur finnst geðveikt gaman að glamra á þeim.
Síðan fengum við eldhús/þvottahús frá ömmu Ingu og Svenna afa. Þ.a. við getum loksins farið að elda það sem okkur langar í og mamma þarf ekki lengur að þvo allan þvottinn á heimilinu :) Hún er mjög þakklát fyrir það ;)
Síðan fengum við fullt af fleiri góðum gjöfum sem við eru mjög ánægð með.
Mamma var að skella inn fullt af myndum af okkur og síðan koma vonandi fleiri jólamyndir ;)
Knús og kossar
Sindri Logi & Sandra Lísa í Jólaskapi.
Hó hó hó, fyrsti í aðventu.
Já, jólin nálgast með öllu tilheyrandi jólastandi. Mamma og pabbi fóru á jólahlaðborð í gær. Amma og afi í Úthlíðinni voru að passa okkur allan daginn og fram á kvöld. Lísa byrjaði að kvarta undan í mallanum seinni partinn. Við höfum aldrei fengið ælupest áður, en auðvitað kom að því og akkúrat þegar afi og amma voru að passa :( Sindri er reyndar ekki enn þá búinn að gubba en núna er hann kominn með hita og mamma og pabbi óttast hvað í stefni ... alltaf svona fyrst annar tvíburinn veikur síðan hinn smá á eftir. Við skruppum nú samt í smá laufabrauðsskurð til ömmu og afa í Aró, en við vorum ekkert að kíkja á þetta brauð. Okkur fannst kubbarnir miklu meira spennandi ;)
Við ætlum ekki að fara í leikskólann á morgun, þar sem við erum bæði með smá hita. Það verða bara einhverjir aðrir krakkar að stjórna á morgun ;) ;)
knús Sindri Logi & Sandra Lísa.
Mamma var að setja inn nokkrar myndir :)
Bættust við nokkrar myndir í október möppuna og síðan eru nokkrar komna í nóvember ;)
Knús Sindri Logi & Sandra Lísa
Sindri með hita :(
Í dag var Sindri Logi með hita og fór því ekki í leikskólann. Sandra Lísa var ofsa dugleg og fór samt í leikskólann :) Það er ótrúlegt en þetta er í fyrsta skipti sem þau eru svona lengi í burtu frá hvort öðru. Sindri var ekki alveg sáttur við þetta og grét öðru hverju "Sand Issa heim". Ég var farin að hafa áhyggjur af litlu skvísunni, hvort hún væri kannski alveg ómöguleg "ein" í leikskólanum. Þ.a. ég hringdi í leikskólann, til að athuga með hana. Það var auðvitað ekkert að hjá henni ! Hún var bara að stjórna hinum strákunum á deildinni, svona til að hafa allt "under control". Síðan þegar Sandra Lísa kom loksins heim, þá hljóp Sindri til að taka á móti henni og rétta henni dót, 5 sek seinna - farin að rífast. ÓTRÚLEGT !!!
Annars er allt gott að frétta hérna, búið að vera mikið að gera hjá okkur. En ég er að fara í 5 daga frí á fimmtudaginn, þ.a. við getum vonandi tekið því rólega saman þá og vonandi koma þá nýjar myndir hjá okkur.
Knús thelma.
Var að setja inn myndir að litlu sexburunum henna Mayu
Ofsa flott mamma :) Krílin komu á laugardaginn 1.nóv´08
kv.thelma.
Til hamingju með afmælið Gígja og Mæja til hamingju með hvolpana !
Mæja eignaðist 6 litlar tíkur laugardagsmorguninn. Ótrúlegt hvað svona lítið kríli gat gengið með marga hvolpa og eignast þá alla svo til hjálparlaust. Hún er algjör hetja. Hvolparnir vorum 80 - 108 gr. pr. stykki og algjörar dúllur.
Í gær fórum við í afmæli til Gígju frænku, hún varð 6 ára gömul í dag! Hún hélt uppá afmælið sitt í Ævintýralandi í Smáralindinni. Þetta var skemmtilegast afmæli sem við höfum farið í til þessa. Við fórum að renna okkur og leika í boltalandi, síðan tókum við eftir að allir stóru krakkarnir fóru eitthvað annað. Mamma og pabbi vildu nú helst ekki að við færum að elta stóru krakkana, en síðan komu Tekla, Gígja, Axel og Victor og fengu að fara með okkur. Þar voru miklu stærri rennibrautir, trambólín og fullt hægt að klifra. Síðan fengum við pizzu og köku, það var nú ekki leiðinlegt :) og síðan fórum við auðvitað aftur að renna okkur eins og brjálæðingar. Þegar mamma og pabbi vildu fara heim þá vorum við nú ekki alveg sátt við það og fengum að renna nokkrar ferðir í viðbót, síðan fengum við ís á leiðinni út ;) það spillti nú ekki fyrir deginum.
Annars er bara allt gott að frétta héðan og okkur líður ofsa vel í leikskólanum.
Kv. Sindri Logi & Sandra Lísa.
Var að setja inn nýjar myndir!
Komnar myndir úr Barcelona ferðinni um helgina. Já, já, ég fór til útlanda í kreppunni! En það var löngu búin að borga fyrir allt saman, þ.a. það var ekkert hægt að hætta við. Endilega kíkið á myndirnar.
Ótrúlega skrýtið að fara til útlanda og strauja kredit kortið ekki einu sinni :D Það hefur bara aldrei komið fyrir mig, síðan ég fékk kredit kort þ.e.a.s.
Það sem er sætast ...
... þegar Sindri kallar á Lísu "Sand Issa kondu" og hún svarar "ég er að koma Sindi minn, Sindi baby"
... þegar Latibær byrjar í sjónvarpinu og þau hlaupa upp að sjónvarpinu, Sindri: "Kondu Solla og knústu Sinda og Söndu"
... mamma spyr: "hver á þig?" Sandra Lísa: "mamma, pabbi, amma, afi og Sindi" en hver á Sindra? "SANDA á Sinda"
... þegar Sandra Lísa er að stríða Sindra Loga og tekur af honum bangsan hans og Sindri fer að gráta. Lísa kemur hlaupandi til baka og segir: "Sindi ekki gáta"
... þegar Sandra Lísa hnerrar og Sindri segir: "Blessi i"
... þegar pabbi segir:"Sindri, heitir þú Sindri Logi Andrésson?" Sindri: "Já, Sindi Lói Andesson", Pabbi: "Sandra, heitir þú Sandra Lísa Andrésdóttir?" Sandra: "Nei, Sanda Issa Mikki Mús"