Vefdagbók
Myndaalbúm
Kveðjur frá gestum
Gullkorn
Dagbók barnsins
Tvíburarnir Sandra
Tvíburarnir Sandra
hæhæ til hamingju með daginn um daginn;) og ekkert smá sætar myndir úr myndatökunni. kv. Andrea og co.
Andrea | 0 | 30.6.2009 09:57:36 #

3ja ára !!!

Í dag urðum við 3ja ára. Við héldum svaka partý og fengum fullt af vinum okkar til að koma í heimsókn og borða með okkur kökur.  Það var ofsalega gaman.  Við vorum alveg búin á því eftir daginn og steinsofnuðum í nýju rúmmunum okkar.  Á morgun ætlum við síðan að leika við dótið sem við fengum í afmælisgjöf og fara að gefa öndunum, það er búið að vera á dagskrá hjá okkur síðustu 3 dagana, en bara aldrei verið tími.

Annars er bara allt gott að frétta af okkur.  Við erum bæði búin að fá hlaupabóluna, þarna rétt eftir páskana.  Sindri fékk hana 2 vikum eftir að Tekla frænka fékk hana og Sandra síðan 2 vikum eftir Sindra.

Síðan fórum við í sumarbústað í eina viku, í kringum 17.júní, það var ofsagaman.  Amma Inga og Svenni afi komu í heimsókn og voru í eina nótt hjá okkur og síðan komu Arna amma og Sighvatur afi líka og voru í eina nótt hjá okkur.

kv. Sindri Logi og Sandra Lísa.

0 | 27.6.2009 23:34:18 #

Sindri líka hættur með bleyju :D

Jæja, núna er Sindri Logi líka hættur með bleyju.  Það hlaut að koma að því að hann myndi fylgja eftir systur sinni.  Hann ákvað sjálfur í gær (19.apríl) að það væri komið nóg með bleyjuna. 

Núna í augnablikinu er Sindri hitalaus en Lísa enn þá með 38°C.  Ótrúlegt hvað þessi hiti ætlar að hanga lengi í þeim.  En við gátum þó notað tímann hérna heima til að hætt með bleyju ;) Gott að það kom eitthvað  jákvætt útúr þessu.

Kv. Thelma.

0 | 20.4.2009 21:19:22 #

Ég var hætt að treysta á nokkrar nýjar myndir af sætustu tvíburunum, en með hækkandi sól komu þær. Kveðja frá gömlu á S19
Anna Jóna "skáfrænka" | 0 | 19.4.2009 21:49:24 #

Engin hlaupabóla !

Á páskadag komu amma Inga Lísa, Svenni afi, Henni frændi og Tekla og Gígja frænkur okkar í mat til okkar.  Gígja var nýbúin að vera með hlaupabólu og síðan var Tekla orðin eitthvað slöpp um kvöldið.  Þegar þau voru komin heim til sín var Tekla orðin öll út í bólum á kroppnum sínum.  Síðan var Lísa send heim úr leikskólanum á þriðjudeginum með hita.  Mamma var alveg viss um að núna værum við að fara að fá hlaupabólu.  Morguninn eftir vorum við bæði með hita og erum enn þá með nokkrar kommur, en engin bóla :)  Mamma var nú hálfpartinn að vona að við myndum bara fá þessa pest núna og þá væri hún búin, en hún er samt líka soldið ánægð að þetta sé bara kvef. Sérstaklega þar sem hún er sjálf veik líka.

Annars er allt gott að frétta af okkur, við erum alltaf að verða duglegri og duglegri að tala skírar og síðan erum við á fullu að læra stafina.  Okkur finnst ofsalega gaman að vita hverjir eiga hverja stafi.

Mamma var loksins að setja inn nokkrar myndir.  Einhverra hluta vegna var eiginlega ekkert tekið af myndum af okkur í mars :) en það eru komnar nokkrar í apríl.  Mamma og pabbi eru eitthvað farin að slaka á í myndatökunum á okkur ... :D

Knús og kossar
Sindri Logi & Sandra Lísa.

0 | 18.4.2009 10:24:46 #

hallo elskurnar minnar. latið ykkur nu fara að batna. komið fljott i heimsokn. kossar fra afa.
sveinn halldorsson | 0 | 17.4.2009 12:28:16 #

Lísa er hætt með bleyju !!!

Þegar pabbi kom að sækja okkur á miðvikudaginn (25.mars) í leikskólann þá var Lísa ekki með neina bleyju.  Fóstrurnar sögðu pabba að hún hefði ákveðið að hætt með bleyju !  Hún er búin að vera alveg ofsalega dugleg síðan að láta vita hvernær hún þarf að fara á klósettið, og þá er hlupið með hana eins og fætur toga :)

Síðan fóru mamma og pabbi til Akureyrar, á skíði, um helgina.  Við fórum í pössun í Aratúnið fyrri nóttina og síðan í Úthlíðina seinni nóttina.  Þetta var voða mikið ævintýri.  Við fórum með Svenna afa og Ingu Lísu ömmu í fermingarveislu, bæði á laugardeginum og sunnudeginum, þ.a. það var nóg að gera hjá okkur.  Síðan þegar Lísa vaknaði til að pissa um nóttina (á sunnudeginum) þá voru mamma og pabbi allt í einu komin heim.  Mömmu fannst ofsa gott að vera vakin svona um miðja nóttina og fá stórt knús frá duglegu Lísunni sinni.

Síðan er bara að bíða og vonað að Sindri fari að taka við sér og vilja hætta með bleyju líka ;)

Knús Lísa og Sindri.

0 | 30.3.2009 22:55:13 #

Hæ hæ sætu ;) Vá flottar myndir af ykkur,vildum bara skilja eftir smá kveðju ;) Elín Birna og tvíburarnir Jóhanna Elín og Halldór.
Elín Birna. | 0 | 25.3.2009 09:11:41 #

Foreldraviðtal í leikskólanum ;)

Í dag fóru mamma og pabbi í leikskólan okkar.  Stína (fóstran okkar) var að segja mömmu og pabba hvað við erum alveg ofsalega dugleg í leikskólanum.  Hún var meir að segja að segja þeim að við værum ofsa dugleg að borða grænmeti og kartöflur í matnum ... við gerum það ekki heima :Þ

Mamma og pabbi halda að Stína hafi verið að rugla okkur við einhver önnur börn, en hún var alveg viss um að það værum við.  Hún á auðvitað ekkert að vera að kjafta frá svona löguðu ;)

Núna erum við búin að vera alveg 2 vikur í leikskólanum, án þess að vera veik heima.  Þ.a. við erum að vona að við séum hætt þessu veikinda veseni.  Annars fannst okkur líka bara mjög gaman að vera heima með mömmu og pabba.  Við erum orðin mjög dugleg að púsla og skoðum mikið af bókum með mömmu og pabba og öllum sem nenna. 

Við vorum alltaf að spyrja mömmu og pabba um stafina, þ.a. þau eru búin að kaupa handa okkur stafabók og stafapúsluspil.  Það er ofsa gaman að læra stafina, við erum mjög áhugasöm um þetta allt saman.

Síðan viljum við þakka Ólöfu Björk frænku fyrir að vera svona góð að klippa okkur í gær.  Við vorum ekki alveg að leggja í að láta hana klippa okkur, en síðan fór hún að tala um að "maðurinn" yrði þá bara að klippa okkur og þá var Sindri nú fljótur að setjast í stólinn og Lísa síðan strax á eftir ;)  Það er aldrei að vita hver þessi maður er eiginlega.

Knús Sindri og Lísa

Ps. mamma skellti inn nokkrum myndum.

0 | 24.3.2009 23:55:55 #

Veikindi, veikindi ...

Lísa var með hita alla síðustu viku og fór því ekkert í leikskólann, henni fannst það bara mjög fínt.  Sagði á hverjum degi: Sindri fara aleinn í geikkigólann (leikskólann) og Lísa heima með mömmu!  Mjög ánægð með það.  Þegar Sindri kom síðan heim voru miklir fagnaðarfundir hjá þeim og mikið knúsað.  Þegar hún var síðan búin að vera með smá hita í meira en viku og Sindri með kvef, sem fór bara versnandi, var okkur hætt að lítast á blikuna og fórum við með þau til læknis.

Lísa var ekki alveg á því að fara til læknis, en vildi samt fá lyf.  Hún kvartaði allan tíman á leiðinni til læknisins að hún vildi ekki hitta lækni BARA FÁ LYFIN SÍN.  Það var auðvitað ekki alveg að gerast.  Það var mikið orgað á læknirinn (Lísa er ekki mikill aðdáandi lækna) en útkoman var sú að Lísa var sem sagt komin með streptókokka aftur en Sindri var bara kvefaður.  Lísa var þvílíkt hamingjusöm með að fá LYFIN SÍN !

Daginn eftir var hitinn horfinn og þau bæði farin í leikskólann.  Lísu langaði nú samt alls ekki að fara, en það var ekkert múður með það.  Þetta var mjög spennandi og sérstakur dagur í leikskólanum, þar sem þau fengu að fara í fyrsta skiptið í strætó með deildinni sinni.  Það var rosa gaman, síðan kom pabbi og sótti þau og síðan var mamman sótt í vinnuna.  Það er alltaf svoldið gaman að sækja mömmu í vinnuna ;)

Þ.a. núna eru við öll að koma til og vonandi fer allt að komast í sínar skorður aftur.  Desember og Janúar búnir að vera í algjöru rugli vegna veikinda hjá okkur.

Mamma fer að setja inn nýjar myndir bráðum ... þegar tími gefst til ;)

kv. Sindri Logi & Sandra Lísa.

0 | 3.2.2009 23:33:51 #

Gleðilegt ár fallega fjölskylda! Það er allt gaman að skoða myndir af ofurkrútttunum. Nanna frænka
Nanna frænka | 0 | 10.1.2009 14:31:42 #