Velkomin á heimasíðuna þeirra Emilíu og Daníels
Lykilorðið er bærinn sem Elvar er frá....


Emilía fæddist á sjúkrahúsinu í Odense, Danmörku þann 10. ágúst 2006, kl. 19:47. Hún vóg 3590 gr. og var 50 cm. að lengd.
Daníel fæddist á Hreiðrinu í Reykjavík þann 16.nóv. 2010, kl. 8:49. Hann vó 3805 gr. og var 51 cm að lengd.
Mamman heitir Harpa Dröfn Georgsdóttir og pabbinn Elvar Daníelsson. Við búum í Kópavoginum.

Nafnið Emilía kemur úr latínu og er dregið af nafninu "Aemilia". Emilía getur einnig verið víxlmynd við nafnið Amalía, sem kemur frá Danmörku.
Amalía er sú sem er iðin/dugleg

Nafnið Daníel er biblíunafn, ættað úr hebresku: danijjel og merkir "Drottinn er minn dómari".




LJÓNIÐ

23. júlí - 22. ágúst

Konungurinn í frumskóginum er mættur og vill einmitt vera meðhöndlaður í samræmi við tign sína. Litla ljónið þarfnast athygli (við erum að tala um að vera alltaf miðdepill athyglinnar!) og vill láta taka eftir sér og láta dást að sér. Það getur verið mikil vinna að eiga börn í ljónsmerkinu. Börnin eru oft hávaðasöm og mjög opin í tjáningu. Ef barnið er ánægt er það yndislegasta og fallegasta barn í heimi en ef það er óánægt öskrar það og lætur öllum illum látum. Heimilislífið kemur til með að snúast mikið í kringum kraftmikinn ljónsungann sem getur verið mjög stjórnsamur og frekur. Það þýðir ekki að segja ljóninu að læðast meðfram veggjum því slíkt er andstætt eðli þess og er ekki til annars en að brjóta það niður. Vingjarnleg ákveðni er það sem dugar best. Ljónið er merki stjórnunar og foreldrar þurfa að virða þörf þess fyrir persónulegt sjálfstæði og því er gott að fela því snemma ábyrgð. Mikilvægt er að kenna því að taka tillit til annarra. Það þarf að taka tillit til þess í uppeldi að ljónið er einstakt og veita því athygli, hvatningu og ekki síst að hrósa því þegar það hefur gert eitthvað jákvætt.

SPORÐDREKINN
24. október - 21. nóvember

Þegar barn í sporðdrekamerkinu lítur dagsins ljós beinast öll augu að því. Og barnið heldur þeirri athygli í langan tíma því það þarf mikla athygli. Foreldrar mega búast við því að heyja valdabaráttu við litla sporðdrekann því hann ætlast oftar en ekki til þess að pabbi og mamma séu boðin og búin þegar hann þarfnast einhvers (ekki 5 mínútum síðar). Þetta er kraftmikið barn og foreldrar þurfa að vera á verði því þau eru snillingar í að fá fólk til að snúast í kringum sig og nota til þess alls kyns kænskubrögð. Uppeldi sporðdrekans getur skipst í tvö horn því þó hann sé ráðríkur, skapstór og þrjóskur getur hann einnig verið blíður og elskulegur. Það borgar sig ekki að skipa honum fyrir eða ætla að ráðskast með hann. Þó slíkar uppeldisaðferðir séu óhentugar fyrir öll börn geta afleiðingarnar orðið sérstaklega slæmar þegar sporðdrekinn á í hlut. Hann getur lokað á umhverfið, dregið sig inn í skel og orðið stífur og jafnvel árásargjarn. Foreldrar þurfa að fylgjast með tilhneigingu litla drekans til að byrgja inni reiði. Best er að fá hann til að opna sig með því að tala við hann í ró og næði. Sporðdrekar eru mjög næmir á umhverfi sitt og því er mikilvægt að umgangast þá með varúð og hreinskilni. Sporðdrekanum er illa við yfirborðsmennsku og fals og missir auðveldlega álit á þeim sem ekki koma heiðarlega fram við hann.







MORGUNBÆNIR

Nú er ég klæddur og kominn á ról,
Kristur Jesús veri mitt skjól,
í guðsóttanum gef þú mér
að ganga í dag svo líki þér.
(?)



Vertu, Guð faðir, faðir minn
í frelsarans Jésú nafni,
hönd þín leiði mig út og inn,
svo allri synd ég hafni
(Hallgrímur Pétursson)



KVÖLDBÆNIR

Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil svo ég sofi rótt.
(Foersom/Sveinbjörn Egilsson)



Vertu nú yfir og allt um kring
Með eilífri blessun þinni
Sitji Guðs englar saman í hring
Sænginni yfir minni.
(Sigurður Jónsson frá Prestshólum)



Þú ert gestur nr. 20096