20. desember 2011

Það er allt gott að frétta af okkur, við búum í Hafnafirði hjá mömmu okkar eru í leikskólanum í Hraunvallaskóla og byrjuðum þar 18.apríl 2011 og aðlögun hjá Önnu Soffíu gekk mjög vel en var svolítið erfið fyrir Pétur en það tók enda og var hann líka ekki orðin 2.ára. Svo byrjaði mamma í skóla núna i ágúst og gekk henni mjög vel þessa önn á braut Grunndeild Bíliðna í Iðnskólanum í Hafnarfirði... já en ef við förum aðeins aftur í tíman þá fæddist Pétur 23.ágúst 2009 og við fluttum í Hafnafjörð til ömmu Völu og afa Pétur rétt áður, því pabbi þurfti að hjálpa þeim með vinnuna á meðan afi var veikur og Anna Soffía byrjaði þá í leikskólanum Hlíðarendi en var ekki lengi þar því við fluttum aftur heim í Keflavíka í desember 2009 og fór Anna Soffía aftur í gamla góða leikskólan Vestuberg. Í janúar 2010 fórum við til Boston og vorum þar í 2.mánuði í afslöppun og veslunarferð. Í apríl 2010 fórum við svo í sumarbústað og stóð Pétur fyrst upp sjálfur í þeim mánuði eða 7,5 mánaða. Pétur byrjaði svo að labba 11 mánaða og var því ca. 4.mánuðum fyrr að byrja labba en Anna Soffía og mamma heldar að það sé útaf Pétur var ekkert í göngugrindinni bara á gólfinu með leikteppi á með það var öfugt með Önnu Soffíu. Fyrsta tönnin hans Pétur byrtis í júní 2010 og og hann vara á brjóstamjólk í rúmlega 1.ár (var svolítið erfitt að hætta) og árið 2010 gekk mjög vel fyrir sig þangað til 22. desember 2010 þá varð pabbi hryfin af annari konu, mamma og pabbi héldu því leindu framm yfir jólin og héldu jólin heima hjá afa Pétri og ömmu Völu og svo á annan í jólum 26.des ákvaddi mamma að fara og geista með okkur heima hjá Jóa frænda og Hönnu og við vorum þar framm yfir áramót og í janúar 2011 fluttum við aftur heim á Greniteigin í Keflavík og pabbi flutti út, Anna Soffía hélt áfram að vera í Vestuberg. Í lok mars 2011 fluttum við úr húsin og settum dótið okkar í geyslu og fengum á búa hjá Hönnu og Jóa frænda þangað til íbúðin okkar losnaði sem var í Maí 2011 og við fluttum þangar með allt okkar dót og byrjuðum nýju lífi og okkur líður mjög vel hér.

Í sumar fór Anna Soffía í sundnámskeið og skemmti sér mjög vel og vorum líka hjá pabba okkar í 2.vikur og svo eftir fríið fór Anna Soffía á aðra deild í leiksólanum (en Pétur varð eftir á gömlu deildinni Hamar) hún fór í skólahóp og þá á deildina Hlíð (sem er fyrir alla elsku börnin í leikskólanum) og fór hún fyrst í gula hóp og svo var hún færð í fjólubláa hóp, svo þegar kofarnir voru loks tilbúnir flutti deildi Hlíð í þá og skiptist níður í tvær deildi, Anna Soffía fór bara með hópnum sínum fjólubláa í Norður-Hlíð og hún er búin að eignast nýja bestu vinkona sem heitir Carmen og byr í blokkinni hér hliðin á en þær eru oftast 3.saman vinkonunnar þá líka Steinun sem hún kynntist á deildinni Hamar. Núna fyrir nokkrum dögum var áhveðið að leifa þeim að vera öllum saman á deild og þá var fært Önnu Soffíu og Carmen á Suður-Hlíð í bláa hóp og Steinun er þar í gula hóp. ég vona að breytingarnar hjá henni fari nú að hætta en hún er svo opin, alltaf brosandi og allir eru vinir hennar, fyri utan erfileikana hjá henni með allar þessar breytingar þá er hún alveg ótrúlega dugleg og er aldrey í fílu og alltaf brosandi. Hún fór svo líka í aðgerð í sumar aftur því rörið öðrum meigin var dottið úr og komin vökvi á bak við og allt gekk vel þá, við fórum aftur í skoðun fyrir nokkrum dögum og rörið hinum meigin er orðin laust og dettur bráðum úr en eingin vökvi á bakvið. Ég skráði hana á dansnámskeið í Bjarkahúsinu svo vonandi byrjar hún í því í janúar því hún elskar að dansa. svo í haust byrja hún í 1.bekk prinsessan mín sem er endalaust dugleg.

Pétur er líka mjög dulgegur og hætti með bleyju áður en hann var orðin 2.ára og gengur rosa vel hjá honum í leikskólanum og algjör knúsikall

Mamma er hamingjusöm á bestu börn sem til eru og elskar þau endalaust mikið og getur ekki verið án þeirra

20.12.2011 | 14:19

Jæja nú er orðið frekar lángt síðan ég skrifaði síðast. Við fórum til New Hampsire í þriðja skipti í Oktomber 2008 og vorum út í mánuð það var mjög fínt að komast aðeins út að versla eins og mömmu finst svo gaman. Mamma og pabbi voru búin að reyna eignast annað barn síðan ég (Anna Soffía) fæddist og mamma var komin með töflur til að byrja blæðingar og svo aðrar til að láta verða egglos og svo loksins 20. desember kom já á þungunarprófið, og þá fékk bumbubúinn einn jólapakka frá jólsveininum og kom svo í heiminn 23. ágúst 2009 og það er fallegasti strákur í heimi. Meðgangan gekk mjög vel og mamma vissi strax að þetta væri stákur sem hún gekk með því hreyfinganar voru ekkert líkt og hjá þegar hún gekk með mig (Önnu Soffíu). Fæðingin gekk líka mjög vel, ég set inn fæðingardagbók seinna. Á þessu heila ári er allt búið að ganga eins og áður og hægt að skoða myndir, þær seigja mjög mikið. Það verður stittra á milli núna, Ég (Anna Soffía) er komin með 4 síðust jaxlana en það gleymdist að skrifa niður dagsettning. kv. frá fjagra manna fjölskildunni

2.10.2009 | 23:38

Sumarfrí 2008 

Jæja það er alltaf brálagð að gera og mamma er ekki búin að vera dugleg að taka myndir síðan ég byrjaði í leikskólanum því ég hef verið svo lítið heima, ég er byrjuð í Sundskóla Sólveigar og það er rosa gaman, við mamma skruppun til tannlæknis í vikuni til að vera viss að allt væri í lagi og hann sagði að ég væri með flottar tennur ekkert sjánleg nema pínu lítill tannsteinn á annari frammtönninni sem er eðlilegt og ég á að koma næst um 3. ára. já og leikskólinn geingur mjög vel, samt ekki alveg sátt þegar ég að vera ein eftir, en þegar ég sé morgunmatin er það allt í lagi, mikið fyrir mat og borða alltaf mjög vel á leikskólanum en sefur rendar bara í um klst sem mamma er ekki nógu ánægð með því þá get ég ekki að beðið eftir kvöldmatnum. Ég er rosa dugleg að herma eftir orðum sem aðrir seigja, það nýjast núna er gu=gólfið komma=koma og margt meira man ekkert þegar ég á að skrifa það niður. Annars er bara eitt að frétta í viðbót það er að við erum að fara til Boston 7. desember til 7. nóvember í einn mánuður gaman gaman.

Sjáumst þegar við komum heim Anna Fía

2.10.2008 | 17:50

Leikskólinn byrjaður!

Nú er leikskólinn byrjaður ég fór í fyrstu aðlögina miðvikudaginn 20 ágúst og var þá bara i heimsókn með mömmu og svo er það búið að vera stigvaxandi og núna í dag mánudag verð ég frá 10 til 16 og mamma er búin að semja um að ég verði frá 8 til 16 þetta skólaár. Ég er hætt með pela og komin úr rimlarúmin í 90x200, ég er komin aftur í samfellu og sokkabuxur og ég er að fara byrja í sundskóla núna í september og nýjasta orðið er æ sem þíðir hæ, þetta eru helstu fréttirnar af mér núna. kv Anna Fía

25.8.2008 | 11:49

Leikskólinn!

Jæja þá er ég orðin svo stór að ég er að fara byrja í Leikskólanum Vesturber í Keflavík og byrja um 1. september bara innavið 2. mánuðir í það, ég er búin að vera í pössun hjá Hönnu og Jói í viku á meðan mamma er að vinna semsagt frá 9 til 17 þægilegra en að fara til dagmömmu sem enda allar klukkan 16. Ég er hætt að vera í samfellum og sokkabuxum því ég er svo heitfengin svo stittist í að mamma láti pelan hverfa allavega fyrir leikskólann hef litla þörf fyrir hann svo það verður ekki erfitt og já ég rosalega dugleg að borða og borða allan mat það er ekkert sem ég hef ekki viljað. Ég tala mitt eigið tungumál en ég er alltaf að æfamig sagði um daginn pabba í staðin fyrir dadda og sagði líta afa um daginn og ég er algjör klifurköttur allt sem ég kest uppá fer ég uppá og labba mikið í sófanum og fera á millin sófa og stól brjálað að gera og já ég er rosalega félagslind manneskja heilsa öllum sem ég sé og það er hægt að skilja mig eftir hvara sem er. En annars fer ég í skoðun til Jóhönnu 15. Júlí (þurftum að fresta tímanum síðanst) skrifa næst eftir það

Koss og knúsar Anna Fía

7.7.2008 | 19:40

Læknisferð 

Jæja núna er allt gott að frétta af okkur, ég er orðin frísk þetta var í eina viku þessi pest, mamma og pabbi fóru með mig til læknis því um morgunin var ég hitalaus og um kvöldið komin með 40° C svo þeim leist ekkert á þetta og eina sem læknirin sagði að ég ætti að drekk pavereid (orkudrikkinn) og að þetta væri bara eðlilegur með hitan en hann skoðaði eyrun á mér og sagði að ég væri með eyrnabólu í báðum eyrum en það á að lagast sjálkrafa og ég fór heima að drekka og var orðin fín daginn eftir.

Annars er allt fínt af mér komin með tvær nýjar tennur í neðri góm hliðin á frammtönnunum dagsett sama dag 27. maí og er að fara í 18. mánaða skoðun til Jóhönnu á föstudaginn svo ég skrifa meira eftir það

kveðja Anna Soffía

3.6.2008 | 05:52

Veikindi Frown

Jæja þá er daman orðin veik, á þriðjudaginn kl 16:00 kom fyrsti niðurgangurinn og er enn, og í morgun þegar mamma vaknaði og kíkti inn í herbergi hjá mér sofani lá ég ofan í ælu og er búin að æla einu sinni í viðbót við það, vonandi fer þetta að lagast. Ég er komin með fjóra jaxla núna og er alltaf á fullu að hlaupa um allt skemmtilegast að hlaupa í sófanum fyrir utan hvað það er hættulegt og alltaf koma ný orð eins og: kók, hattusu, gott. Ég er eiginlega hætt að borða gerber krukkumat og byrjuð að fá barnabox og allt sem mamma og pabbi borða nema á morgnana fæ ég graut, þetta er fínt í bili. kv. Anna Soffía

15.5.2008 | 15:47

New Yourk og New Hampsire

Já og einu sinni enn erum við að skreppa aftur til New York og munum keyra til New Hampsire og aftur til baka, við fjölskildan förum saman með afa og verðum frá 14. apríl til 25.apríl í um 11. daga. Annars er lítið af frétta af okkur ég er byrjuð að reina segja fleiri orð og bendi á alskona nýtt til að fá að vita hvað það heitir hér eru nokkur dæmi um orðin mín: ti dur = Tindur, dada = pabbi, tak = takk, dat = datt, brum = bíllinn, mmm = ég er svöng, da (og bendir) = sjáðu þetta, og svo man maður ekki meira í bili, það eru orðið rosa stutt þángað til næsti jaxli lætur sjá sig og það tekur miklu leingri tíma fyrir jaxlana að koma upp heldur enn frammtenurnar (Það er enn bara lítið horn sem sérs af hinum) annar er allt gott að frétt

kær kveðja Anna Soffía

10.4.2008 | 14:22

Boston, Páskar, Labba og Jaxl 

Jæja þá loksins er netið komið aftur búið að vera eitthvað vesin á þessu síðan í byrjun mars, en allavega skruppum við til Boston og keyrðum til New Hampsire og vorum þar í 11. daga með mömmu, pabba, afa, ömmu, Ástu og Völu Krisínu, ferðin byrjaði ekki mjög vel fengum matareitrun í flugvélini og það veiktust allir eitthvað en mest ég (Anna Soffía), pabbi og afi og það kom úr öllum endum svo helmingur af ferðini var inn á móteli en annars var mjög gaman og auðvita keypt alveg hellingur.

Fyrstu almenu páskarnir fékk egg nr.2 og hafði eingan áhuga á að seta bita upp í mig vildi bara leika með þetta og sulla með mjól í glasi.

Búin að sleppa mér og byrjuð að LABBA á stuðnings dagsett 29 mars 2008

Fyrsti jaxlin í neðri góm hægra meigin sást í dag dagsett 2 apríl 2008

kv. Anna Soffía

2.4.2008 | 21:29

Skruppum til Boston!

Vildi bara lata vita af okkur, skruppum til Boston 8 mars og komum heim 19 mars keyrdi til New Hampsire med afa, ommu, Astu og Volu, og audvita mommu og pabba, skrifa meira heima med islenskt lykklabordi

17.3.2008 | 02:35

Fyrsta skrefið og fullt hús af fólki

Jæja það er allt fínt að frétta héðan, Ásta og Vala voru að fá herbergið mitt í láni þángað til herbergið hans Tinds er tilbúið, svo ég og Tindur verðum bráðum saman í herbergi. Frikki flutti til okkar fyrir jól svo núnar eru öll herbergi að vera full að fólki orðin 4 fullornir og 5 börn þegar mest er, en nóg um það.

Ég tók fyrsta skrefið hjá ömmu og afa föstudaginn 22. febrúar rétt svo eitt skref og síðan lét ég mig detta á rassinn, svo í gær labbaði ég til pabba reinda bara þrjú skref allt að koma hjá mér. það vöru nú gaman er amma Fía gæti verið hér hjá okkur og fylgst með littlu nöfnuni sinni, okkur þikir rosa vænt um þig Anna Fía. Ástarkveðjur Anna Fía junior

25.2.2008 | 13:03

Klipping og fleira

Já ég fór í fyrstu klippingu hjá pabba þann 20. janúra 2008 rétt aðeins að særa og jafna hárið, stillt á 18 mm háið var fyrir  mm þar sem það var stiðst. Ég fékk tönn nr. 6 þann 27. janúar frammtönn vinstra meigin uppi, það sem er í uppáhaldi hjá mér núna er að klifra upp um allt og ofan í allt, og ef ég sé eitthvað lítið korn á gólfinu til dæmis lítinn stein þá tek ég hann og set upp í mig, við fjölskilda fórum upp í storm að skoða í gær þeir eru með Polaris umboðið (Vélsleða og Fjörhjól) og ég fékk að prufa barnasleða sem er fyrir 6 ára og upp úr held ég, annar er voða lítið að frétt bara það sama og venjulega.

kveðja Anna Soffía

P.S. Það eru komnar inn fleiri myndir

2.2.2008 | 12:16

Ég gat það!

Jæja loksins náði ég í dag að standa ein út á gólfi án stuðning Smile

og í gær fann mamma tönn nr.5 dagsett 18. janúar efri frammtönn hægra meigin.

Annars er ekkert að frétta, skrifa meira seinna.

19.1.2008 | 23:04

Tönn 4 og 1 árs skoðun

Jæja 4 tönnin fanst á trettándanum 6. janúar 2008 mamma var reindar búin að áhveða að hún ætti að koma á gamlárskvöld miðað við hvenær hinar komu (20 dagar á milli). Svo fór ég í 1 árs skoðún ?? janúar (mistum af fyrri tímanum) og er orðin -kg og -cm og í fyrsta skiptið fór ég að gráta eftir sprautuna (byrjuð að fatta hvað er vont). Annar er voða lítið að frétta af okkur, ég get gert meira og meira með hverjum deginum sem líður, nú get ég skriðið, staðið upp, labbað með og stend ein út á gólfi reindar bara í nokkrar sekontur og er alltaf á fullu að leika með dótið inn í herberji. Svo fórum við litla fjölskilda í myndatöku fyrir jólin hjá Gamanmyndum, set inn nokkrar myndir frá þeim, ef ykkur langar í einhverja mynd stækkaða í ramma látið okkur vita við getum reddað því. kveðja Anna Fía

18.1.2008 | 12:02

Afmælisveislan og Jólin

Afmælisveislan gekk mjög vel og góð mæting það vantaði bara 3 fullorna annar mættu allir 28. mans og að sjálfsögðu fékk helling af fallegum gjöfu til dæmis Flugvél, Dúkkur, Kúluormur, Borð og Stóla (Í herbergi mitt) og helling af fallegum fötum og margt fleira. En í miðri veislunni þurftum við mamma að skreppa aðeins frá því ég var komin með svo mikla sýkingu í augað að við urðum að láta kíkja á þetta þannig Hanna skutlaði okkur upp á sjúkrahús og ég fékk sýklalif sem heitir Flemoxsin og tók það inn í 4 daga tvisar á dag og það lagaðist allt. Annars gekk allt mjög vel og ég þakka Ömmu Völu, Hönnu Rósu og Ástu fyrir hjálpina á kökunum/réttunum og auðvita öllum hinum fyrir komuna.

Á Aðfangadagur vorum við hjá Ömmu og afa og fengum Lambahrigg í matinn sem var mjög góður og svo var farið að opnið alla pakkana og ég fékk helling af fínu dóti til dæmis Bíl, Síma, Tösku, Kubba, Stóran Bangsa og Föt, dagurinn gekk bara mjög vel og takk kærlega fyrir okkur. Á Jóladag vorum við líka hjá Ömmu og afa og fengum Kalkún í matinn og hittum þar Ástu, Árna og Völku Kristínu, og Íris, Sigga, Söru og Júlíu. 30. Des fórum við svo í Jólakaffiboð í Diddu frænku og hittum þar ættingjan frá pabba ætt. Gamlárskvöld vorum við heima og buðum Friðrik, Íris, Jói, Alex og Koli komu í mat og sprengdu upp fullt af flugeldum en því miður erum við ekki enþá búin að tengja loftnetið svo við verðu að horfa á Áramótaskaupið seinna.

5.1.2008 | 00:25



desember '11 | október '09 | október '08 | ágúst '08 | júlí '08 | júní '08 | maí '08 | apríl '08 | mars '08 | febrúar '08 | janúar '08 | desember '07 | nóvember '07 | október '07 | september '07 | ágúst '07 | júlí '07 | júní '07