Sæl(l), ég heiti Gunnar Smári Sigurjónsson :)


Um mig:
Sæl(l),

ég fæddist á Sjúkrahúsinu á Akranesi þann 15. ágúst 2006 klukkan 12:14 og er því ljón. Ég var tæplega 18 merkur og 53 sentimetrar að lengd og því stór og myndarlegur strákur. Mamma og pabbi segja allavega að ég sé sá myndarlegasti í heiminum, ég veit það svo sem ekki.
Mamma mín heitir Anna Sólveig Smáradóttir og hún er fædd á Akranesi en pabbi minn heitir Sigurjón Jónsson og fæddist hann í Bolungarvík en hefur verið á Akranesi í mörg ár.
Ég á ömmu og afa á Akranesi sem heita Gulla og Smári og svo á ég afa í Bolungarvík sem heitir afi Nonni. Svo á ég langömmur og langafa og svo aragrúan af frændfólki útum allt.

Munið að skrifa í gestabókina er þið komið, mér finnst svo gaman að fá kveðjur frá ykkur.





Annað:
Ljónið
23. júlí - 22. ágúst
Konungurinn í frumskóginum er mættur og vill einmitt vera meðhöndlaður í samræmi við tign sína. Litla ljónið þarfnast athygli (við erum að tala um að vera alltaf miðdepill athyglinnar!) og vill láta taka eftir sér og láta dást að sér. Það getur verið mikil vinna að eiga börn í ljónsmerkinu. Börnin eru oft hávaðasöm og mjög opin í tjáningu. Ef barnið er ánægt er það yndislegasta og fallegasta barn í heimi en ef það er óánægt öskrar það og lætur öllum illum látum. Heimilislífið kemur til með að snúast mikið í kringum kraftmikinn ljónsungann sem getur verið mjög stjórnsamur og frekur. Það þýðir ekki að segja ljóninu að læðast meðfram veggjum því slíkt er andstætt eðli þess og er ekki til annars en að brjóta það niður. Vingjarnleg ákveðni er það sem dugar best. Ljónið er merki stjórnunar og foreldrar þurfa að virða þörf þess fyrir persónulegt sjálfstæði og því er gott að fela því snemma ábyrgð. Mikilvægt er að kenna því að taka tillit til annarra. Það þarf að taka tillit til þess í uppeldi að ljónið er einstakt og veita því athygli, hvatningu og ekki síst að hrósa því þegar það hefur gert eitthvað jákvætt.





Guðrún Inga stóra frænka mín;)
Elli Kári vinur minn
Gígja Kristný
Jón Gunnar frændi minn
Hjörtur Smári og Þóra Kolbrún
Eydís Ósk
Guðmundur og Sigrún Camilla
Kristján Uni
Andri Snær
Héðinn
Óli og Almar frændur mínir
Kristinn Hallur
Bergþóra Sól


Þú ert gestur nr. 19882