Velkomin, við erum systkinin Guðbjörg Erla, Björn Ísak og ónefndur sænskur splunkunýr prins. Knús knús og munið eftir gestabókinni :o)
2.des 2011 => Nóvembermyndirnar loksins komnar inn. Njótið !!!


Um mig:
Guðbjörg Erla kom í heiminn miðvikudaginn 26. júlí 2006, kl. 18:49. Ég var 16 merkur og 52 cm, með svaka mikinn svartan lubba, slétta húð og gullfalleg dimmblá augu. Mamma mín heitir Ella og pabbi minn Steinar. Þeim finnst ég algjör rúsína og eru alveg voðalega skotin í mér.

Björn Ísak (stóri bróðir) kom svo í heiminn laugardaginn 05.apríl 2008, kl. 19:08. Hann var 16 merkur og 53 cm. Hann er algjör snúlla, með dökkt hár og sömu gullfallegu dimmbláu augun og ég hafði nýfædd. Mamma og pabbi eru alveg yfir sig ástfangin af okkur litlu rúsínubollunum.

Litli bróðir kom svo loks í heiminn þann 22.sept 2011. Hann lét sko bíða eftir sér, ákvað að vera 10 daga lengur í mallanum. Hann kom svo út, algjör sjarmör, 19 merkur og 53 cm. Hann virðist vera aðeins öðruvísi útgáfa en systkini sín; með kastaníubrúnt hár (smá rauður keimur á hárinu) og gráblá augu sem ekki eru eins dimm og systkinin höfðu. Eldri systkinin dýrka hann svo og vilja allt fyrir hann gera.




Annað:
Okkur litlu fjölskyldunni þykir mjög gaman að sjá hverjir koma
í heimsókn svo að endilega skráið ykkur í gestabókina