Barn í ljónsmerkinu elskar að vera á sviði meira en nokkuð annað. Ef þú ert að leita að barni til að leika aðalhlutverkið í skólaleikriti þá skaltu ekki leita frekar því að ljónið er til! Barn í ljónsmerkinu er mjög skapandi og það er líklegt til að setja sjálft upp leikrit og þá sér það um allar hliðar sjálft, þ.e. leikmyndina, leikinn, tónlistina o.s.frv. Þar sem ljónið er ávallt í forystu, þá á barn í ljónsmerkinu marga vini, eða eru þetta fylgjendur? Allavega, þá fer það ekki fram hjá neinum hver ræður hér! Ljónið er gjafmilt og líkar vel að deila frægð sinni með félögum sínum. Þú getur bókað að þetta barn slær í gegn, hvernig á það annars að verða Lion King? Helstu kostir ljónsins eru bjartsýni og gott lundarfar. Þetta barn trúir því almennt að lífið sé yndislegt og að hlutirnir gangi upp fyrir það. Barn í ljónsmerkinu hefur andstyggð á gagnrýni og vill helst ekkert af henni vita. Ljónið er einnig mjög stolt og vill standa sig vel, svo að þegar það kemur fram fyrir áhorfendahóp þá leggur það sig 100% fram. Einnig þegar barn í ljónsmerkinu fer í skóla þá stendur það sig vel, því það vill alltaf vera best. Ljónið er vinsælt og sjarmerandi og þú getur treyst lífi og fjöri í kringum þessi börn