 
Hákon Már fæddist andvana þann 29 mai 2006 eftir 34v+3 daga meðgöngu.
Hann var 8 merkur ( 2005 gr. ) og 45,5 cm langur.
Hann fæddist með alveg rosalega mikið krullað og dökkt hár.
Við fyrstu sýn var hann svo líkur systur sinni að við tókum andköf,
með litla nefið hennar og munnsvipinn.
Hann var með langa fingur eins og pabbi sinn og tærnar hans líka.
Við fengum að hafa hann hjá okkur í 6 tíma og höfðum við ofsalega fallega
bænastund þar sem Séra Sigríður og fjölskyldan okkar kom saman upp á spítala.
Hákon Már mun alltaf lifa í minningu okkar allra.
Guð geymi þig ástin mín.
|