Velkomin á síðuna mína

Ég heiti Michael Davíð Níelsson og er 3 árs leikskóla strákur og er ég alveg að fíla mig í tætlur með öllum krökkunum:Þ


Um mig:
Ég heiti Michael Davíð. Ég fæddist kl 14:36 á sjúkrahúsinu á Akranesi 29 mars 2007.
Ég var 12 merkur, 51 cm og 3030 gr.
Mamma mín heitir Guðrún og er 28 ára og pabbi minn Níels Rúnar og er 35 ára, en hann er kallaður Rúnar.
Mamma og pabbi sjá ekki sólina fyrir mér.
Svo á ég einn bróður sem heitir Smári og er hann voða góður við mig, hann er 11 ára.

Í september verð ég stóribróðir því ég eignast systur og verður það rosalega gaman. Ég ætla sko að vera duglegur að hjálpa mömmu og pabba.
MyHotComments.com
MyHotComments

Þegar ég var 4 mánaða tók hún Minney mín eftir því að ég væri með grátt ský yfir augasteinunum mínum báðu megin. Mamma fór með mig til augnlæknis og var okkur sagt að við þyrftum að fara í aðgerð. Við fórum daginn eftir og hittum Dan upp á Lansa. Hann sagði okkur þær slæmu fréttir að ég væri með augnsjúkdóminn Cataract á báðum augum sem ég fæddist reyndar ekki með. 4 dögum seinna fór ég í aðgerð á báðum augum og var skipt um augasteina og fékk ég svona gerfi augasteina með linsu í staðinn, og heppnaðist aðgerðin vel. Ég er núna með Ég bar fyrst með +5,5 en er núna með +3,5 á báðum augum. Ég er í miklu eftirliti sem er bara jákvætt og segja læknarnir á Sjónstöðinni að ég sé heppnasti Íslendingurinn, sem mamma og pabbi segja að sé alveg satt. Svo á 5 mánaða afmælinu mínu fékk ég gleraugu sem er + 7 í styrk og gekk það bara vel. Ég er sko sönn hetja :0) Nú nota ég gleraugu með styrknum +3,5 og er ég líka rosalega duglegur að nota leppinn í leikskólanum, 6 tíma á dag :o)

Sendið mömmu og pabba mail ef þið viljið fá lykilorðið. Munið svo eftir að kvitta í gestabókina ;)




Mamma og pabbi
Lilypie - Personal pictureLilypie Fourth Birthday tickers




Þú ert gestur nr. 17392