við mæðgurnar sátum að snæðingi í fyrradag og allt í einu fór Klara að flissa og sagði "mamma, Viggo kyssti mig í dag". Ég spurði hvort þau væru kærustupar og þá varð daman ansi héraleg og flissaði meira og sagði jááááá. "Ha, áttu kærasta??" spurði ég alveg steinhissa. "já, sko ég var að leika við stelpurnar í kofanum á leikskólalóðinni og þá kom Viggo í gluggann og spurði, Klara skal vi være kærester og þá sagði ég ok, hvis du vil og svo urðum við að kyssast".... og svo var hún öll voðalega flissandi og hálfvandræðaleg yfir þessu öllu og ég grenjaði úr hlátri. Litla gelgjan mín urraði á mig og sagði að þetta væri ekkert til að hlæja að, ég hikstaði að ég væri ekkert að hlæja að henni, heldur með henni og þá gall í Charlottu " jú víst mamma, þú ert að hlæja að Klöru". Og hana nú! Daginn eftir spurði ég Klöru hvort hún ætlaði ekki að segja pabba sínum að hún ætti kærasta og þá sagði hún með semingi "neeeei, ég þori það ekki". Og ég spurði af hverju hún þorði því ekki. "af því hann fer bara að hlæja eins og þú"... ÚPS! Greinilega mjög viðkvæmt mál!
Klara komin á fast! Janúar 2012
Við mæðgur áttum eftirfarandi samtal á leiðinni að sækja Charlottu til dagmömmunnar:
K: mamma, ég er að hugsa, ég er að spá... við fara í sund á eftir
M: ææ Klara mín ég nenni því ekki
K: jú mamma, bara ég og þú og Charlotta og við geta ekki farið í stóru rennibrautina af því það er of "vildt" fyrir Charlottu
M: já hún er svo lítil
K: ég veit alveg hvað hún er gömul, hún er eins árs. Langamma var rosalega gömul. En núna er hún hjá engunum
M (mjög hissa yfir þróun samtalsins): já, nú er langamma engill
K: já. Ég sakna hennar svo
M: ég líka
K: já, langamma var svo góð, hún gaf mér alltaf svo mikið nammi.
M: já, langamma var sko góð
K: mamma, ég er svo heppin af því ég á svo margar ömmur. Ég á mína ömmu Charlottu, ömmu Hafdísi og ömmu Kötu og langömmu. Sille á enga ömmu.
M: á Sille enga ömmu?
K: nei, aumingja Sille. Ég á svo margar
M: já þú ert sko heppin Klara. Mamma átti aldrei neina ömmu
K:akkurru? (og þá vorum við fyrir utan hjá dagmömmunni og mamman slapp við að svara flóknum spurningum!)
Jáhá! Það er greinilega margt að grautast í litla hausnum hennar Klöru minnar! (apríl 2010)
Við fórum í svona "húsdýragarð" þegar Ásta og co voru hérna og í bílnum á leiðinni í þennan garð áttum við Klara þetta samtal: K: hvert erum við að fara mamma? M: við erum að fara í svona dýragarð. K: dýragarð?! Okkar dýragarð?! (lesist dýragarðurinn í Álaborg). M: nei þetta er svona lítill dýragarður með geitum og svona. K: Andri snyder mér (snyder=svindlar). M:ha? K: Já, Andri frændi sagði það var enginn dýragarður hérna. M: já, hann vissi ekki hvar hann var. K: Andri snyder mér (sagt í lágum rómi og greinilega ekki sátt!)
Andri var að passa þær systur (ásamt ömmu Kötu) þegar við hjónin vorum í París, hann ætlaði með þær í dýragarðinn en vissi ekki hvar hann var svo þau fóru aldrei og þetta var greinilega geymt en ekki gleymt hjá minni konu!!! (23.maí 2010)
Klara var að nauða um ís og ég sagði að hún fengi engann ís, þá leit hún á mig og sagði "ef maður er duglegur að borða matinn sinn þá fær maður ís". Nú sagði ég, segir hver? Klara svaraði kotroskin "ég"...
og þá eru það lög eða hvað??? (21.des 2009)
Við Klara vorum að labba heim úr búðinni í dag og sáum hund sem stóð bundinn fyrir utan og áttum eftirfarandi samtal:
K: hæ sæti voffi. Mamma, við verða fæða hund
M: ha, vorum við að hræða hundinn?
K: Nei, mamma við verða fæða hundinn
M: HA? Hvaða hund eigum við að fæða? ( Skildi ekki baun)
K: Ég er með hund í maga mín
M: Já soleis, hvenær kemur hann eiginlega út? (Klara er búin að vera með hund í maganum síðan mamma var með barn í maganum en það bólar ekkert á hundinum!!)
K: Sko, þegar jólin er búin og við er flutt og ég á nýtt herbergi, þá kemur voffi út
M: já, ok ég skil.
K: já, þá fæ ég mitt herbergi
Gott að þetta er komið á hreint, með hundinn sko! ( 27.des.2009)
Klara kom til mín einn daginn á Íslandi, setti hendurnar um´hálsinn á mér og kyssti mig og sagði " Þú ert alveg yndisleg mamma"
*BRÁÐN* (nóv 2009)
Nýjasta æðið hjá Klöru er að klæða sig upp. "Mamma ég langar fara í prinsessukjólinn" kallar hún og svo finnur hún fram allt glingrið sitt og um daginn kom hún til mín og sagði "mamma, ég langar svo bara smá varalit,svona eins og amma á". Mamman varð soldið beygluð í framan og varð svo að viðurkenna að hún ætti nú ekkert svoleiðis fínerí, ekki einusinni gloss. "Ææææ mamma, amma á alltaf varalit" og vonbrigðin leyndu sér ekki
Obbbobb... greinilegt að mamma þarf að fara taka sig á í pæjudeildinni, dóttirin farin að setja ákveðnar kröfur, 3ja ára! Nóv 2009
Og talandi um flutninga, Klara veit alveg að við erum að fara flytja en við vitum samt ekki hvort hún skilur hvað það þýðir... Svo var ég að segja Klöru í morgun að þegar við flyttum þá myndi hún byrja í nýjum leikskóla. Samtalið var á þessa leið:
M: þegar við flytjum á nýja staðinn ferðu í nýjan leikskóla. K: af hverju?. M: af því við flytjum svo langt í burtu að þú getur ekki haldið áfram á þínum leikskóla. Það verður engin Clara P á nýja staðnum en þú kynnist örugglega einhverjum nýjum stelpum og strákum. K: já vonandi eignast ég nýja vinkonu.
Æææ ég fékk pínu sting í hjartað yfir að vera fara með hana í glænýtt umhverfi... en ég veit það má ekki hugsa svona! Nóv 2009
Klara grútskítuga ætlaði að fá að fara í sturtu með pabba einn eftirmiðdaginn. Pabbi fréttasjúki varð aðeins að kíkja á fréttir áður en hann fór í sturtu svo Klara labbaði um allt og kallaði á hann "Pabbi, paaaaaaabbi, pabbi litli, hvar ertu eiginlega?"
Kannski er hún búin að horfa of mikið á Litlu lirfuna ljótu... (Fyrir þá sem ekki hafa séð Litlu lirfuna þá er "Pabbi litli" er setning úr þeirri mynd). Ágúst 2009
Sagt við morgunverðarborðið: "Ég ætla verða dýralæknir af því þá get ég haldið á slangan"
Jessörí, daman er greinilega alveg búin að bíta þetta í sig! Ágúst 2009
Klara fór í bíó með ömmu og afa þegar þau voru hérna í heimsókn. Amma keypti djús og hlaup fyrir Klöru og kók fyrir sig og afa og svo keyptu þau fullt af poppi líka. Klara litla poppæta stóð alveg í poppinu og sturtaði í sig djúsnum en var svo orðin þyrst í miðri mynd svo amma gaf henni sopa af kókinu sínu. Þegar þau komu heim fór Klara á klóið og ég sat hjá henni og spurði hvort það hefði ekki verið gaman í bíóinu. "´Jú, en ég fékk ekkert nammi, bara bjór". Amma og afi sprungu úr hlátri frammi í stofu og útskýrðu málið fyrir mömmunni sem átti nú bágt með að trúa því sem barnið hafði sagt!
Klara fær aldrei kók og í þau örfáu skipti sem Stinni hefur fengið sér kók að henni viðstaddri höfum við bara sagt að þetta sé mannakók... Hún veit að bjór er líka bara fyrir fullorðna svo þetta er sennilega einn og sami hluturinn fyrir henni, kók og bjór! (júlí 2009)
Á leið í þvottahúsið spurði ég Klöru hvar hún ætlaði að lúlla um kvöldið (þá var sko búið að ákveða að hún fengi að lúlla hjá ömmu og afa í Ernuhúsi). "Ég ætla lúlla í ömmuholu af því ég er svo dugleg"
:) þetta var semsagt í annað skiptið sem hún lúllaði án mömmu og pabba, fyrsta skiptið var 2 dögum áður!(01.ágúst 2009)
Við fórum á Kirsuberjahátíð í Kerteminde og fengum okkur að sjálfsögðu ís! Klara kláraði sinn ís á mettíma og fékk svo að borða afganginn af mínum ís. Þegar hún var búin með hann sagði hún "mamma, ég búin með ísinn, ég henti honum á jörðina" (hún borðar semsagt ísinn en hendir afgangnum af brauðforminu alltaf). Ég spurði af hverju hún hefði hent því á jörðina, svona ætti að fara í ruslið. "Nei mamma, sko fyrir fuglana". Já svoleiðis sagði ég og bætti svo við að hún væri nú alltaf svo góð við dýrin. "Já mamma, af því ég ætla lækna dýrin þegar ég verð stór". "Ætlarðu að verða dýralæknir?" sagði ég þá. "Já af því þá má ég halda á kisum"
Mömmunni fannst þetta nú voðalega sætt, að vera búin að ákveða framtíðarstarfið 2ja ára en fannst nú heldur langsótt að verða dýralæknir til þess eins að halda á kisum! (19. júlí 2009)
Ég var að smyrja nesti fyrir Klöru, Charlotta sat í ömmustólnum og fylgdist með mér en fór svo eitthvað að kvarta. Klara, sem hafði bara verið að dunda sér með dúkkurnar sínar, stökk til og náði í lítinn bangsa fyrir hana og fleygði í hana og sagði "Gjörsvovel og hættu svo að grenja". En Charlotta varð nú bara ennþá fúlari við þetta og byrjaði að orga, þá heyrðist í Klöru þar sem hún gekk í burtu með dúkkuvagninn sinn "slakaðu maður"
Hvar lærir hún þetta eiginlega!?? (04.ágúst 2009)
Við Klara vorum að borða morgunmatinn okkar og Charlotta sat í ömmustól upp á borði og fylgdist með okkur. Alltíeinu komu svaka drunur og ég ákvað að skipta strax á barninu (það fer ansi oft út um allt ef maður lætur það bíða smá!). Klara kom strax á eftir mér að aðstoða mig, klappaði systur sinni á magann og sagði "svona ástin mín, þú búin vera eitthvað ómöguleg"...
Klara vill alltaf vera halda á Charlottu en stundum þegar Charlottu er illt í maganum og ég veit það er eitthvað á leiðinni þá segi ég við Klöru að hún megi halda á henni á eftir, hún sé eitthvað ómöguleg núna. Og litla stýrið mitt fattar greinilega tenginguna þarna á milli, að Charlotta sé ómöguleg þegar hún þarf að kúka og svo líði henni betur! Já, það er margt að krauma í litlum kollum... (júní 2009)
Við að fara borða kvöldmat og Klara sagði "må jeg få en smørklat?". Pabbi tók brauðið hennar og fór að smyrja það og þá gall í Klöru "Riiiigelig smør"...
Þetta rigelig smör er kvót úr matreiðsluþætti sem við Stinni erum alveg húkkt á, við segjum þetta oft við hvort annað og við Anne og Lasse en litlir pottar grípa greinilega allt sem við segjum... (maí 2009)
Við mæðgur vorum að labba heim úr leikskólanum einn daginn, Charlotta fór að gráta og Klara sagði "mamma, ég held hún er eitthvað óhamingjusöm"... Ég starði á Klöru og sagði bara "HA" (ég hef aldrei heyrt hana segja þetta orð, vissi ekki einusinni að hún kynni það eða skildi merkingu þess). Klara svaraði "já,mamma, hún er eitthvað óhamingjusöm". Ég sagði að hún væri nú sennilega bara svöng og þá svaraði Klara: "já, nú við flýta okkur heim og svo hún súpa hjá mömmu og svo hún ropa og svo ég halda á henni"
Þar með var það ákveðið! (Maí 2009)
Í Danmörku eru matvörubúðir nánast aldrei opnar á sunnudögum, það er bara fyrsta sunnudag í mánuði sem slíkur atburður gerist. Sl. sunnudag var ísskápurinn okkar eins og eyðimörk og ég sagði að við yrðum að fara í búðina. Stinni varð eitthvað úrillur, því það er með eindæmum leiðinlegt að fara í búðirnar á þessum sunnudögum og hann hafði ætlað að fara horfa á formúluna. Klara skynjaði þetta greinilega og sagði við mig "komdu mamma, við skulum bara fara 2 í búðina, pabbi er í fýlu við þig" !!
Já, þau eru ótrúleg þessi kríli!! (Júní 2009)
Einhvern morguninn þegar Stinni var að tygja sig í vinnuna og var að klæða sig í skó kom Klara til hans og sagði "Hvad skal du, lille ven?"
Þetta er eitthvað sem gamalt fólk segir oft við lítil börn! (Júní 2009)
Við sátum að snæðingi sem svo oft áður og Stinni spurði Klöru hvort hún vildi vatn eða mjólk að drekka. Klara svaraði "Aldrei má ég ekki fá bjór"...
Illa með hana farið blessunina! (maí 2009)
Charlotta er búin að vera lasin með hor og hita en er búin að jafna sig. Nokkrum dögum eftir veikindin kom Klara til mín þegar við vorum að vakna allar þrjár:
Klara: mamma, er Charlotta lasin?
Mamma: nei, hún er orðin frísk
Klara: Er hún ekki með hita?
Mamma: Nei, ekki lengur
Klara (lagði hendina yfir höfuð systur sinnar og strauk henni aðeins, hrukkaði ennið og setti í brýnnar og spurði svo): Er hún ekki soldið heit, eiginlega??
Henni er mjög svo umhugað um litla krílið, það verður ekki af henni skafið! (Maí 2009)
Klara sat á klóinu, hún hélt utan um hálsinn á mér og sagði "Amma er vinkona mín, alveg eins og Kristina"
Mikið var amma glöð að heyra það! (maí 2009)
Charlotta var lasin og um miðja nótt ældi hún í rúmið okkar, við Stinni vorum að skipta á rúmi og barni þegar Klara vaknaði við bröltið í okkur og spurði hvað við værum að gera. Ég sagði að Charlotta væri lasin og hefði gubbað yfir allt. Þá kom skeifa á Klöru, hún sagði "Af hverju er mín litla systir lasin?" og svo fór hún að hágráta yfir þessu.
Já,þó það sé erfitt að vera stóra systir þá finnst henni nú fjarska vænt um litlusystur sína! (maí 2009)
Klara: "mamma, ég þarf að pissa"
Mamma: "já komdu, við skulum pissa"
Klara: "já, alveg eins og pabbi"
Mamma: "Ha?"
Klara: "já, pissa alveg eins og pabbi, svona standa"
Já nei, ekki einusinni að ræða það, að hún fái að prófa það! (maí 2009)
Við þurftum að koma við á einni skrifstofu á leið heim frá vuggustuen einn daginn, þetta fannst Klöru mikið erfitt og vældi nokkrum sinnum "ég vil bara fara heim". Svo breyttist tónninn og varð doldið frekjulegri: " ég VILL fá ís". Við sögðum að hún fengi engan ís, við værum að fara heim að borða eftir smástund. Þá komu krókódílatár og hún sagði "ég VILL ekki vera stórasystir lengur!"...
Ææææ, það hlaut að koma að því! Hún er farin að fatta að litlasystir er komin til að vera og ekki hægt að skila henni aftur þegar maður nennir þessum stórusysturleik ekki lengur! (apríl 2009)
Charlotta byrjaði að gráta í rúminu sínu og ég var að taka hana upp þegar Klara kom, klappaði systur sinni á lærið og sagði "svona svona elsku engillinn minn"
Það læra börnin sem fyrir þeim er haft! (apríl 2009)
Charlotta hnerraði, Klara kom hlaupandi og sagði "Guð hjálpi þér litla prinsessa"
Krúttlegt (apríl 2009)
Klara er alltaf að raula, stundum syngur hún "alvöru" lög og stundum eru lögin frumsamin eins og lagstúfurinn sem hún raulaði í baði um daginn: "Pabbi minn, elsku pabbi minn, pabbi minn elskar mig. Mamma góð, mamma mín, mamma mín elskar mig"
Maður fær nú alveg tár í augun (apríl 2009)
Við Stinni og Charlotta komum heim af spítalanum (eftir fæðinguna) kortér yfir sjö á sunnudagsmorgni. Ég var ekki með lykla svo ég hringdi á dyrabjölluna og það var lítil stelpa með stírur í augunum og mikið úfið hár sem opnaði, brosti út að eyrum þegar hún sá mig og leit svo á bílstólinn og spurði hissa "Hver er þetta, mamma?"
Bara sætust (apríl 2009)
Við vorum að borða með Aarhusarfjölskyldunni og tvíburasysturnar Hafdís og Guðrún sátu hlið við hlið og borðuðu rúgbrauð. Klöru varð allt í einu litið á þær og svo sagði hún "þeir, þeir eru alveg eins".
Skarplega athugað! (mars 2009)
Klara var að leika með bangsann sinn og knúsaði hann. Mamman spurði hvort hún mætti líka fá knús, Klara hoppaði í fangið á henni, setti hendurnar um hálsinn og knúsaði fast og kyssti mömmu sína svo rembingskoss og sagði "maður á alltaf að knúsa mömmu sína, og pabba líka".
Krúttulína (mars 2009)
Klara er draslari af guðs náð (skil ekkert hvaðan það kemur!) og finnst fátt betra en hella úr öllum dótakössunum í einu. Ég segi alltaf við hana að hún megi alveg sturta úr þeim ef hún bara tekur til eftir sig, það er samt oft hægara sagt en gert... Í gær var ég búin að biðja hana margoft um að taka saman dótið, hún hendir nokkrum hlutum oní kassann en fer svo að leika sér með eitthvað sem hún finnur í tiltektinni. Ég bað hana einusinni enn og hún byrjaði aftur að taka saman og tautaði "helvítis drasl hérna á gólfinu hjá mér!"
Jahá, litlir pottar eru sko með blakandi eyru því þetta er nánast orðrétt komið frá pabbanum þegar hann er að urra yfir draslinu á gólfinu! (mars 2009)
Ég að klæða Klöru einn morguninn, það er venjulega valdabarátta á morgnana, þarf yfirleitt að slást við hana til að fá hana í föt en þennan dag var það ekkert mál. Ég kyssti hana og sagði að það væri sko munur að klæða hana svona góða, þá leit Klara á mig og sagði "er ég yndisleg?"
Ég segi oft við hana að hún sé yndisleg og amma Charlotta gerir það líka... Það læra börnin sem fyrir þeim er haft, það er nokkuð ljóst! (mars 2009)
Klara var bitin í nebbann(!) af einni stelpunni í leikskólanum, hún var alveg stokkbólgin svo ég sótti hana snemma og ákvað að láta pabbann kíkja á nebbann. Ég var að leggja bílnum fyrir framan spítalann og var að rétta bílinn af þegar gall úr aftursætinu "kanntu ekkert að keyra mamma?"
Engar smá plammeringar! (mars 2009)
Við familían að labba að bílnum okkar einn morguninn, mamma að fara keyra pabba í vinnuna og Klöru í leikskólann. Klara sá ekki bílinn alveg strax og sagði "hvar er eiginlega litli bíllinn okkar?"
Pabbinn var nú ekki alveg sammála þessu, að kalla bílinn LÍTINN! (mars 2009)
Klara:Áttu ekki nammi mamma?Mamma: Nei það er ekki nammidagur í dag.Klara: Nei það er á laugardaginn. En áttu ekki ís mamma?Mamma: Nei þú mátt ekki fá ís.Klara: En ég vill fá ís, ég langar í ís (sagt með miklum frekjutón)
Já, það má alltaf reyna að finna smugu á "ekki-nammidögum"... (mars 2009)
"En, to, tre, fire, fem, seks, otte, ni, ti, elleve, tolv, ni, ti..."
Klara að telja, hún harðneitar að segja "syv"! (mars 2009)
Karíus og Baktus er í uppáhaldi þessa dagana og er mikið lesin á kvöldin. Og svo þegar Klara vill ekki láta bursta tennur þá er auðvitað vitnað í bókina góðu. Í gærmorgun þegar ég var búin að bursta Klörutennur fékk hún tannburstann til að bursta aðeins sjálf ("ég ætla gera þetta, ég kann alveg sjálf"). Alltíeinu leit hún á mig, benti á tannburstann og sagði "Ég sérð einn baktus mamma, sérðu?". Auðvitað sáu bæði mamma og pabbi Baktus líka og Klara var mikið ánægð að hann var ekki lengur í munninum hennar.
Fínt ímyndunarafl (mars 2009)
Klara veit orðið að það er barn í maganum á mömmu, talar um litla barnið sitt og spyr oft hvort hún megi ekki kíkja á það. Ég reyndi að útskýra fyrir henni að hún gæti ekki séð það strax en hún sagði þá "má ég ekki kíkja á það?" og svo lyfti hún upp bolnum mínum og potaði í bumbuna, "þarna er litla barnið, ég pota í það" og hló hrossahlátri. Annars held ég hún hlakki mest til að fá að skipta á krílinu, það er amk það sem hún tilkynnir öllum. "mamma með barn í maganum, ég verða skipta það" . Og ef einhver er í vafa þá er þetta stelpa! Allavega hjá Klöru, hún er alveg handviss.
(janúar 2009)
Við Stinni vorum að fara út eitt kvöldið á Íslandi og Klara ætlaði að vera hjá ömmu og afa í Garðabæ en þegar við vorum að labba út fór hún að gráta svona frekjuvæli með krókódílatárum. Við sögðum henni að við kæmum fljótlega aftur og hún skyldi bara leika við ömmu og afa. Klara frekjaðist aðeins og þá þóttist amma verða leið og fara gráta af því Klara vildi ekki vera hjá henni. Klara leit snöggt á hana og sagði "ekki þú gráta, ÉG er að gráta!!" Og hananú, ekkert að stela athyglinni neitt... Það var hún sem átti bágt þarna!
Bara hafa á hreinu hver var píslarvotturinn hérna! (des 2008)
Klara er alltaf í mömmó í leikskólanum og skiptir á hverri dúkkunni á fætur annarri og fær að hjálpa fóstrunum þegar þær skipta á litlu börnunum. Hún tók svo málin í sínar hendur um daginn þegar henni fannst vera einhver kúkalykt af Viktori, hann er tæplega 1ns árs og algjör bolti, hugsa þau séu svipað þung! Hún lagði hann á leikdýnuna í leikskólanum og spurði "Har du lavet pølser, Viktor?" og tók hann úr buxum og bleyju til að tékka! Sem betur fer hafði Viktor ekki verið búinn að gera neitt í bleyjuna og fóstrurnar fylgdust bara með þeim. Viktor hreyfði engum andmælum við meðferðinni en var hinn sáttasti við þetta umstang, og fannst víst bara notalegt þegar Klara ákvað að skoða í eyrun og munninn og klippa hann líka (með pottloki).
Jaaa ætli daman sé ekki bara að undirbúa sig fyrir stórusystur hlutverkið!? (janúar 2009)
Ég var að sækja Klöru í leikskólann einn daginn og við vorum að labba út þegar við mættum einni mömmunni, þetta var svona slæðukona, doldið gömul og ekki alveg sú fríðasta. Klara horfði lengi á hana og spurði svo "mamma, er þetta Grýla?"...
Mér fannst mjög gott að konan skyldi ekki íslensku! (janúar 2009)
Heima hjá afa og ömmu í Garðabæ, við sátum öll við eldhús borðið þegar mamman sagði að hún væri að spá í að fara ræða við páfann. Klara, sem var inn í stofu að leika, greip þetta strax á lofti og vildi ólm koma með, "mamma, komdu, komdu að tala við páfann". Þegar mæðgurnar komu tilbaka spurði afi Klöru hvað páfinn hefði sagt. "Hann var leiðinlegur"...
(desember 2008)
Pabbi nýbyrjaður í átaki í gymminu og var mikið stirður þegar við fórum á fætur einn morguninn og kveinkaði sér eitthvað, Klara var fljót til og kyssti pabba sinn og knúsaði og sagði "aumingja pabbi".
(Janúar 2009)
Við sátum og borðuðum kvöldmat þegar Klara sagði allt í einu upp úr eins manns hljóði "aumingja Klara". Við sprungum úr hlátri og spurðum af hverju hún ætti svona bágt. Þá hló hún bara og endurtók setninguna og sagði svo "andskotans"...
Hún veit sko alveg hvernig á að fá athygli! (13. janúar 2009)
Sunnudagsmorgun í rúminu, Klara hoppar og hoppar, bleyjulaus og berrössuð. Pabbi: "Klara, getur þú ekki verið kyrr? Ertu með orma í rassinum eða hvað?". Klara: "Ég orma í rassinum, ég finna orm" (beygir sig fram og reynir að kíkja á bossann). Pabbi :"Nei, ég var bara að plata, það er enginn ormur". Klara "jú, ég finna orminn"...
Mamma og pabbi hlógu mikið en gátu að lokum sannfært barnið um að það væri enginn ormur í rassinum! Hún hefði alveg verið líkleg til að sýna öllum í leikskólanum orminn ef misskilningurinn hefði ekki verið leiðréttur!
Við vorum í kaupstaðarferð og hittum Emblu og Eirík. Klara: "Ég ekki leiða mömmu, ég leiða Emblu og den der" og benti á Eirík.
Klöru virtist finnast asnalegt að fleiri en einn aðili gæti heitið sama nafninu, sbr Eiríkur bangsi heitir Eiríkur og þá getur Eiríkur hennar Emblu ekki líka heitið Eiríkur og Klara Lind frænka heitir bara frænka, ekki Klara því Klara okkar heitir það!(Október 2008)