Ari Freyr kom í heiminn þann 19. nóvember 2006 klukkan 23:26 :o)
Þegar hann fæddist var hann 3790 grömm eða 15 merkur og 54 sentimetrar :o)

Hann byrjaði fyrst að láta vita af sér um klukkan tvö aðfaranótt 18. nóvember. Fæðingin var löng en gekk samt mjög vel og var hann mættur á svæðið 45 klukkustundum síðar alveg Lang Flottastur :o) Hann var með falleg blá augu, brúnt hár og ótrúlega flottan hanakamb þegar hann fæddist og er því oft kallaður LILLI PÖNK :o)

Ari Freyr er ROSALEGA mikill karakter, MJÖG ákveðinn og ALLTAF BROSANDI :o)

Snædís Eva kom í heiminn þann 19. desember 2008 klukkan 09:54 :o)
Þegar hún fæddist var hún 3245 grömm eða 13 merkur og 49 sentimetrar :o)

Hún byrjaði fyrst að láta vita af sér um klukkan þrjú þann 18. desember. Fæðingin gekk mjög vel og var hún mætt á svæðið 19 klukkustundum síðar alveg Lang Fallegust :o) Hún var með falleg blá augu og brúnt hár þegar hún fæddist og alveg SVAKALEGA lík stóra bróður sínum :o)





Barn fætt í sporðdrekamerkinu er ákaft og sýnir mikla snerpu og oft leiðir það til að önnur börn misskilja sporðdrekann. Þessi börn eru ekki að reyna að vera hávær, þau hafa bara ákafa þörf fyrir að vita allt. Þau geta verið helst til áköf þegar þau eru að nálgast skólafélaga sína, en þau eru allavega hreinskilin. Þegar barn í sporðdreka hefur tekið ákvörðun um að gera eitthvað, þá er ekkert sem fær það ofan af því. Að reyna að fá sporðdreka til að skipta um skoðun er eins og að reyna að hreyfa kletta og fjöll. Sporðdrekinn er úrræðagóður og á auðvelt með að vinna úr staðreyndum. Þetta er sá einstaklingur sem þú leitar til þegar þú ert að athuga með hvað er að gerast í bænum eða ætlar að finna besta verðið á hjólum. Hugur barns í sporðdreka heillast af vísindum og rannsóknum svo þú skalt ekki draga úr ást þeirra á efnafræðitilraunum og áhöldum. Reyndu bara að halda barninu utan dyra þegar það er að gera efnafræðitilraunir sínar heima við. Barn í sporðdreka er leyndardómsfullt og oft er erfitt að segja til um hvernig því líður og hvað það er að hugsa. Þetta veldur því einnig að félagarnir vita ekki hvar þeir hafa sporðdrekann og verða óöruggir í kringum hann. Barn í sporðdreka á það til að verða afbrýðisamt út í aðra og oft getur skapast stríðsástand yfir leikföngum og á leikvellinum. Þeir sem gefa sér tíma til að kynnast barni í sporðdreka og hleypir honum að sér, eignast góðan og traustan vin um alla framtíð.





Drengir eru breytilegir að stærð, þyngd og lit. Þeir eru alls staðar - uppi á öllu og niðri í öllu, klifrandi, hlaupandi og stökkvandi. Mæður elska þá, eldri systur og bræður umbera þá, fullorðnir virða þá ekki viðlits, og Drottinn verndar þá.
Drengur er sannleikur með óhreinindi í andlitinu, viska með tuggugúmmí í hárinu og von framtíðarinnar með ánamaðk í vasanum. Drengur hefur matarlyst eins og hestur, meltingu eins og sverðagleypir, orku eins og vasaatómsprengja og rödd eins og einræðisherra.
Hann er gæddur forvitni kattarins, ímyndunarafli skáldsins, feimni fjólunnar, viðbragðsflýti veiðibogans, funa flugeldsins og þegar hann býr eitthvað til hefur hann fimm þumalfingur á hvorri hendi. Hann kann vel að meta rjómaís, hnífa, sagir, myndabækur, skóga, vatn (í sínu náttúrulega umhverfi), stór dýr, bíla, laugardagsmorgna, brunabíla og PABBA.
Hann er lítið fyrir sunnudagaskóla, barnaskóla, myndalausar bækur, spilatíma, hálsbindi, rakara, stelpur, frakka, fullorðna eða háttatíma. Enginn er eins árrisull og enginn eins síðbúinn til matar og hann. Enginn nema hann getur troðið í einn vasa ryðguðum hníf, hálfétnu epli, þriggja feta snærisspotta, þremur blossateinum, tuttuguogfimmeyringi, vatnsbyssu og dularfullu áhaldi sem enginn þekkir nema hann.
Drengur er sannkölluð töfravera - þú getur lokað hann úti úr vinnustofunni þinni, en þú getur ekki lokað hann út úr hjarta þínu. Þú getur fengið hann burtu úr skrifstofunni þinni, en þú getur ekki fengið hann burtu úr huga þér.
Það er eins gott að gefast upp strax - hann er fangavörður þinn, húsbóndi og herra - freknóttur ólátabelgur. EN þegar þú kemur heim á kvöldin með allar borgir vona þinna og drauma hrundar, getur hann reist þær aftur með tveim töfraorðum -





Barn fætt í bogamanni er trúðurinn í bekknum og er ávallt glatt og mikið fjör í kringum það. Passaðu að hafa ekki glas fullt af vökva í kringum það, því bogamaðurinn á eftir að hella því niður. Þetta barn þarf mikið pláss í kringum sig og getur ekki ímyndað sér heiminn án frelsis. Bogamaðurinn elskar frelsið og ferðalög eru í uppáhaldi. Þú mátt búast við að þetta barn sé fyrst til að skrá sig í allar ævintýraferðir og ekki reyna að svipta því frelsinu. Orkan og ákafinn gera bogamanninn að góðum íþróttamanni. Barn í bogamannsmerkinu er stórhuga og opið fyrir öllu mögulegu og ómögulegu! Bogamaðurinn á mikið af vinum og finnst það yfirleitt gera lífið áhugavert. Það lítur jákvætt á heiminn og fólk og þetta er sennilega sá einstaklingur sem berst fyrir því að allir séu jafnir. Mikilvægt er fyrir bogamanninn að finna fyrir réttlæti og þetta barn vill heyra sannleikann í öllum málum. Barn í bogamannsmerkinu kemur sér oft í klandur vegna þess að það segir eitthvað óhugsað og stundum særir bogamaðurinn þig óafvitandi. Hann meinar ekkert slæmt með þessu! Getur stundum verið erfitt að vera foreldri bogamanns, því hann getur kjaftað óvart frá öllum helstu fjölskylduleyndarmálum. Þrátt fyrir þetta fyrirgefur þú þeim auðveldlega, því bogamaðurinn er svo glaður og gaman að vera í kringum hann. Barn í bogamannsmerkinu er svo ánægt með lífið að það getur ekki beðið eftir að vakna í fyrramálið og byrja nýjan dag.





Sem kemur manni í heiminn með mikilli fyrirhöfn, fæðir mann og klæðir og veitir alla þá hlýju og ástúð sem lítið barn þarf á að halda.

Þegar maður eldist og ætti kannski að geta hugsað meira um sig sjálfur, til dæmis að vera í hreinum fötum og laga til í herberginu sínu leyfir hún það ekki því að hún er svo vön að hugsa vel um barnið sitt.

Mamma er alltaf til staðar með útrétta hjálparhönd þegar á þarf að halda.

Þerrar tárin þegar það er leiðinlegt og gleðst með manni þegar það er gaman að vera til.







Sem verður svo montinn þegar maður fæðist að það mætti halda að það hefði ekki fæðst barn áður. En það tekur hann bara nokkra daga að komast niður á jörðina aftur.

Honum finnst skrýtið að lítið barn skuli ekki geta sofið alla nóttina og kúkað í klósett eins og annað fólk. Samt veit hann ALLT.

Svo þegar maður verður aðeins eldri og það er hægt að fara að leika við mann og kenna manni ýmislegt finnst honum rosa gaman.

Pabbi er alltaf til staðar með styrka hönd þegar á þarf að halda.













Þú ert gestur nr. 20154