HæHæ :o)

Í dag á Snædís Eva 1 árs afmæli, enda orðin ótrúlega stór og dugleg stelpa ;o) Hún er farin að standa upp alveg sjálf og labba aðeins með og er alveg SvAkAlEgA montin með sjálfa sig ;o) Hún hoppar, skoppar og skríkir af gleði þegar mamma er að láta hana æfa sig í að labba :o) Hún er líka orðin svo stór að okkur mömmu finnst alveg vera kominn tími til að hún fari bráðum að labba ;o)

Snædís Eva er líka farin að segja nokkur orð :o) Hún kann að segja mama - mamma, dudah - dudda, disah - kisa, danda - standa, mm namm - namm namm og dah - takk ;o) Hún er ekkert að flýta sér að stækka, enda ótrúlega notalegt að eiga svona góða mömmu og duglegan stóran bróður til að hugsa um sig :o)

Ari Freyr er ótrúlega spenntur yfir jólasveinunum sem koma til okkar á hverju kvöldi. Stundum vaknar mamma klukkan 3 á næturnar við eitthvað þrusk í herberginu okkar, þá er Ari Freyr að laumast í skóinn sinn til þess að athuga hvort jólasveinninn sé búinn að kíkja í heimsókn til okkar :o) Hér er semsagt mikið hlakkað til jólanna, jólaballanna og allra pakkanna ;o)

Jólakveðja

Ari Freyr & Snædís Eva "jólanammigrísir"

19.12.2009 | 09:54

HæHæ ;o)

Í dag á Ari Freyr 3 ára afmæli og Snædís Eva er orðin 11 mánaða stór stelpa :o) Ari Freyr er búinn að syngja afmælissönginn fyrir sjálfan sig í allan dag og er ótrúlega kátur með flottu afmælisgjöfina frá mömmu, pabba og Snædísi Evu :o)

Ari Freyr er mjög ánægður í nýja leikskólanum sínum Æskukoti :o) Þar hefur hann eignast góða vini sem hann talar mikið um heima og er einstaklega lukkulegur með að vera kominn á leikskóla með Þórdísi vinkonu sinni :o)

Við ætlum að halda saman uppá afmælin okkar sunnudaginn 6. desember ;o) Þá ætlum við að bjóða öllum að koma og borða flottu kökurnar sem Anna vinkona hennar mömmu ætlar að baka handa okkur ;o)

Snædís Eva er orðin meiri villingurinn :o) Litli engillinn hennar mömmu sinnar eignaðist sínar eigin skoðanir og MIKIÐ skap :o) Hún er líka orðin svo stór stelpa, komin með 8 tennur og allt ;o) Hún er algjört matargat og ELSKAR jarðarber ;o) Hún elskar stóra bróður sinn sem er alltaf svo góður við hana, kisurnar sínar tvær og er auðvitað enþá algjör mömmustelpa ;o)

Snædís Eva er ekki enþá farin að labba neitt, skríður bara um og reynir að standa upp sem gengur alveg ágætlega :o) Mamman okkar er orðin svo spennt að Snædís fari að labba að hún er alveg ÆST ;o)

Mamma og Snædís hafa það notarlegt á daginn meðan þær bíða eftir að Ari sé búinn á leikskólanum :o) Stundum fara þær í heimsókn til Hrafnkels og stundum í heimsókn til Nóels :o) Snædísi finnst ótrúlega gaman að leika við aðra krakka "eða aðalega stela af þeim duddum og berja þau í hausinn með dóti ;o) hehe"

Okkur hlakkar mikið til jólanna :o) Við ætlum nefnilega núna að halda jólin í okkar húsi og Auja amma, Begga frænka og Jonni frændi ætla að koma og vera hjá okkur á aðfangadag ;o) Mamma segir að við fáum góðan mat, fullt af nammi og MARGA flotta pakka ;o)

Við hlökkum til að sjá ykkur öll í afmælinu ;o)

Kær Kveðja Ari Freyr & Snædís Eva "flottustu afmælis og jólaálfarnir"

19.11.2009 | 23:26

HæHæ ;o)

Núna er Snædís Eva orðin 6 mánaða StÓr stelpa ;o) Við erum ótrúlega góðir vinir, Ari Freyr er duglegur að hjálpa Mömmu og finnst skemmtilegast að sýna Snædísi Evu dót en LANG SKEMMTILEGAST Að GeFa HeNnI DUDDU ;o)

Núna erum við að fara að flytja í sveitina í svakalega fínt hús með HeItUm PoTtI á pallinum :o)

Ari Freyr er búinn að fá nýtt hjól og er ótrúlega Lukkulegur með það og ætlar að vera duglegur að hjóla í sveitinni og passa Snædísi Evu í heita pottinum ;o)

Snædís Eva er ótrúlega dugleg að læra nýja hluti :o) Hún en algjör kúrari og ELSKAR að láta tala við sig :o) Snædís Eva er engillinn eins og þeir gerast bestir, hún er alltaf brosandi og finnst stóri bróðir sinn ótrúlega mikill TÖFFARI ;o) Ari Freyr er líka besti stóri bróðir í heimi ;o)

Þegar við flytjum í sveitina byrjar Ari Freyr í nýjum leikskóla sem heitir Æskukot og okkur hlakkar mikið til að hitta alla krakkana í leikskólanum ;o)

Allt gengur ótrúlega vel hjá okkur enda eigum við bestu mömmuna í heiminum sem gerir allt í heiminum fyrir okkur ;o)

Kær Kveðja Ari Freyr & Snædís Eva "FaLlEgUsTu & BeStUsTu PöNkArArNiR í HeImInUm"

19.6.2009 | 18:00
Snædís
-
Nafn þetta merkir heilladís, - heilladís í snjó.
-
Eva 
-
 Nafn þetta er komið úr biblíunni og merkir það líf, - sú sem gefur líf.
-
Fallbeyging
-
nf : Snædís Eva 
þf : Snædísi Evu 
þgf: Snædísi Evu 
ef : Snædísar Evu
-
8.2.2009 | 15:00

Snædís fæddist á björtum og snjóþungum degi :o)

19.12.2008 | 09:54

AfmælisStrákur :o)

Í dag varð ég 2ja ára LeikskólaStrákur :o) Allir krakkarnir í leikskólanum sungu fyrir mig AfmælisLagið og svo fékk ég alveg Svakalega Flotta Kórónu líka :o)

Það er allt gott að frétta af okkur Mömmu og BumbuSystur minni :o) Ég byrjaði í leikskóla 15. september og er Mjög Ánægður með nýja leikskólann minn :o) Allir krakkarnir og Leikskólakonurnar eru svo góð við mig og við erum alltaf að gera einhvað skemmtilegt á hverjum degi :o) Í leikskólanum mínum erum við mikið að púsla, kubba, föndra, lita, mála, lesa skemmtilegar bækur, klæða okkur í búninga, leika okkur í íþróttasalnum og skemmtilegast finnst mér þegar við leikum okkur ÚTI :o) Mér finnst líka Æðislegt þegar mamma kemur að sækja mig í leikskólann af því þá er ég alltaf orðinn svo þreittur eftir að vera búinn að leika mér Allan Daginn :o)

Bráðum eignast ég litla systur :o) Ég og mamma ætlum að hugsa Svakalega vel um hana bæði, gefa henni að borða, gefa henni nýja bleyju og setja hana í bað :o) Ég ætla að sjá algjörlega um að gefa henni DUDDU, sýna henni dót og sniðuga hluti af því ég þarf að vera svo duglegur að sýna henni og kenna henni allt sem ég kann af því hún verður svo LÍTIL :o) Ég og mamma erum búin að búa um fína rúmið hennar og þvo öll litlu fötin hennar og við erum meirasegja búin að ákveða hvað hún á að heita en það fær enginn að vita strax, það er nefnilega  leyndarmálið okkar mömmu :o)

Á sunnudaginn ætlum við mamma að halda uppá 2ja ára afmælið mitt :o) Við ætlum að hafa Stóra og Skemmtilega veislu og ég ætla að fá MARGA FLOTTA PAKKA :o)

Sjáumst hress og kát á sunnudaginn :o)

Kveðja Ari Freyr "LeikskólaStrákur" (og næstum því stóri bróðir )

19.11.2008 | 23:26

Hæ Hæ :o)

Það er alveg Fullt að frétta af mér :o) Fyrir það fyrsta er Ég að verða STÓRI BRÓÐIR í desember :o) Við Mamma & Pabbi erum ekkert smá spennt og bráðum fáum við líka að vita hvort Ég eignist litla systur eða lítinn bróður :o) Núna á ég heima í Reykjavík með Mömmu, Bumbuz, Tiny, Phoebe og Flugu. Ég er líka búinn að eignast mitt eigið herbergi sem er BARA með mínu dóti í :o)

Í gær byrjaði Ég á leikvellinum í Fróðengi :o) Ég og Mamma förum núna á hverjum morgni klukkan 9 og leikum okkur þar með öllum krökkunum. Ég vil hafa Mömmu mína hjá mér á meðan Ég er að kynnast öllu þessu nýja fólki sem Ég hef aldrei séð áður! En svo bráðum get ég farið og leikið við krakkana ALVEG EINN og Mamma getur bara farið heim á meðan :o)

Það er búið að vera nóg að gera hjá mér og Mömmu undanfarnar vikur, við förum líka alltaf í sund á daginn þegar það er gott veður :o) ÉG ELSKA SUND :o) Við ætlum síðan að fara í heimsókn til Sigurrósar Tönyu & Þórdísar Elvu í næstu viku og gera einhvað skemmtilegt :o) Þær eru líka að verða stóru systur :o)

Ég er orðinn svakalega duglegur að tala núna. Ég kann að segja fullt af setningum og búinn að læra heilann helling af nýjum orðum :o) Bráðum byrja Ég svo á Leikskóla og þá á Ég eftir að læra Fullt Meira :o) Ég fer á Leikskóla sem heitir Sjónarhóll, hann er svakalega flottur og okkur Mömmu hlakkar rosalega mikið til :o)

http://sjonarhollinn.is/

Kveðja Ari Freyr "villingur"

18.7.2008 | 20:00

Hæ Hæ :o)

Í dag er Ég 14 mánaða Töffari :o) Ég er orðinn Rosalega stór og sterkur strákur :o) Ég er líka búinn að læra nokkur ný orð :o)  Þegar Ég var 11 mánaða kunni Ég að segja 6 orð :o) Mama - Mamma, Baba - Pabbi, Amm Amm - Amma, Dedda - Begga, Tah - Takk og Bah - Bæ :o) En núna er Ég búinn að læra 6 orð í viðbót :o) Neni - Nenni/Peli, Dudda - Dudda/Snuð, Namm - Gott/vill borða, Danda - Standa, Datt - Datt, Om Om - Voff Voff :o) Svo segi Ég alltaf "Ahhh" þegar Ég fer í bað, milli sopa, þegar Ég er að fara að sofa og þegar Ég er að knúsa :o) Mömmunni minni finnst Ég vera Fallegasti Strákurinn í Öllum Heiminum :o)  

Í gær fór Mamma með mig út á snjóþotu og dró mig lengi lengi upp og niður götuna okkar í öllum snjónum :o) Mér fannst það Rosalega Gaman :o) Í næsta mánuði byrja Ég hjá DagMömmu í fyrsta skiptið og hlakkar mér og Mömmu alveg Rosalega mikið til :o) DagMamman heitir Guðrún og á heima í Innri Njarðvík :o)

Það er búið að vera alveg nóg að gera hjá mér síðustu mánuði :o) Ég hélt uppá 1. árs afmælið mitt sunnudaginn 18. nóvember og var það alveg Svakalega skemmtilegt :o) Það kom mikið af skemmtilegu fólki til mín með heilan helling af Pökkum HANDA MÉR :o) Ég fékk nú samt smá aðstoð frá öllum stóru krökkunum við að opna alla þessa Pakka :o)

Svo komu auðvitað Jólin okkar :o) Það fannst mér ÆÐISLEGUR tími :o) SÉRSTAKLEGA allir þessir fínu Pakkar sem lágu í hrúgu fyrir neðan svaka SKRAUTLEGA jólatréð okkar :o) Ég var semsagt byrjaður að opna Pakkana um klukkan þrjú á aðfangadag á meðan eldamennskan stóð yfir :o) Innihaldið var nú ekki það skemmtilegasta, heldur ALLT SKRAUTIÐ á Pökkunum :o) Þannig Mamman mín stóð í stappi við að bjarga Pökkunum og reyna að halda merkisspjöldunum á réttu Pökkunum :o) TeeHee

Á Jóladag keyrðum svo Ég og Mamma í brjálaða veðrinu til að fara í Jólaboð til L.ömmu og L.afa í Árbænum :o) Þar voru allir voðalega glaðir að sjá mig loksins og Ég fékk mikið af knúsi og kossum :o) Á annan í Jólum fórum við svo í Jólaboð hjá Auju LangaLangÖmmu minni :o) Jólaboðið var haldið í RISASTÓRUM sal sem Ég gat hlaupið útum allt og Fiktað í allskonar dóti :o) Þar eignaðist Ég líka nokkra nýja Afa og var alveg svakalega kátur með það :o)

Kveðja Ari Freyr "Töffari" :o)

19.1.2008 | 13:00

Hæ Hæ :o)

Það er allt gott að frétta af okkur :o) Ég er orðinn alveg Svakalega Stór og Duglegur strákur :o) Ég er næstum farinn að labba alveg sjálfur og er alveg Rosalega stoltur af mér (og Mamma líka) :o) Ég er líka mjög duglegur við að Rífa og Tæta úr öllum skápum og hillum, það finnst mér skemmtilegast af öllu :o) Ég vil helst ekkert leika mér með mitt dót þegar Ég veit að það eru til Fjarstýringar, Kókflöskur, Glös, DVD spilarar eða einhvað í þá áttina :o) Nú er Ég að verða 11 mánaða bráðum og okkur hlakkar mikið til að halda upp á fyrsta afmælið mitt í næsta mánuði :o) Þá ætla Ég að fá mikið af pökkum og leika mér við alla krakkana sem ætla að koma í afmælisveisluna mína :o) Mamma er alveg að rifna úr stolti af mér því Ég er orðinn svo stór og Ég verð alltaf skemmtilegri og skemmtilegri með hverjum deginum sem líður :o) Það kemur alveg fyrir að maður sé svolítið skapstór og láti vita hvað maður vill og hvað ekki, prakkarasst í hinu og þessu, rífur í hár og öskri Rosa hátt ef maður fær ekki það sem maður vill :o) Mamma skilur ekkert í því "hvar" Ég fái þetta stóra SKAP sem Ég er með :o) En yfirleitt er Ég rosalega góður og rólegur, enda fæ Ég mikla athygli frá öllum hérna á heimilinu alla daga svo Ég er bara mjög ánægður með lífið :o)

Kveðja Ari Freyr "LabbaKútur"

11.10.2007 | 21:00

Kominn heim aftur frá Útlandinu :o)

Helsta sportið hjá mér var FlUgVéLiN, í henni var svo mikið af dóti sem er ekki dót, rosa fínt borð til að tromma á og fullt af fólki til að tala við :o) Flugfreyjurnar voru líka svaka skotnar í mér og leifðu mér og Mömmu að hafa mörg sæti svo við gætum leikið okkur mikið :o)

Það var alveg rosa stuð hjá okkur í Danmörku :o) Við fórum útum allt!

Við fórum í Dýragarðinn og skoðuðum fullt af skrítnum dýrum, en skemmtilegast fannst mér samt að stinga hausnum út úr kerrunni og láta rigna á nebbann minn :o)

Við fórum líka í Odense í heimsókn til Rögnu vinkonu hennar Mömmu og höfðum það alveg svaka kósý :o)

Svo fórum við að skoða Tívolíið og fengum okkur svaka góðan mat og sáum leikhús og fullt af sniðugu dóti :o)

Pabbi labbaði með okkur alveg rosalega mikið, við vorum rosalega mikið úti í sólinni sem var svo heit að ég gat næstum ekki verið í neinum fötum! Mér fannst alveg rosalega spennandi líka að fara í lestina, þar var svo mikið af fólki sem fannst ég alveg svaka sætur og skemmtilegur :o)

Við gátum samt bara verið í Útlandinu í 10 daga því ég varð pínu lasinn og Mamma ákvað bara að fara með mig heim aftur, en okkur fannst við alveg búin að vera þarna nógu lengi og það var rosalega gott að koma heim og lúlla í Mömmu rúmi :o)

Kveðja Ari Freyr "FeRðAlAnGuR"

26.8.2007 | 13:00

Hæhæ :o)

Loksins, Loksins, Loksins TóKsT MéR ÞaÐ :o) Ég er orðinn svo GóÐuR í að fara útum allt :o) Mér til MiKiLlAr HaMiNgJu get ég fiktað í öllu og rifið og tætt allt sem verður á vegi mínum :o)

Ég er líka kominn með fimm Tönnslur og sú sjötta á leiðinni, svo það er brjálað að gera hjá Mér & Mömmu í andvöku bæði daga og nætur :o)

Nú styttist óðum í að Ég & Mamma förum til Kaupmannahafnar, Ég er meira að segja búinn að fá svona fínt Vegabréf með rosa flottri mynd af mér í :o) Við ætlum að gera alveg svakalega mikið þar, fara í dýragarð, tívolí og allt mögulegt, enda verðum við þarna alveg í 17 daga eða einhvað :o) Við kíkjum líka í heimsókn til Rögnu og Bumbuz í Odense í nokkra daga og gerum einhvað skemmtilegt þar líka :o)

Kveðja Ari Freyr "Á LEIÐ TIL KÖBEN"

26.7.2007 | 10:00

Hæ Hæ :o)

Það er bara allt gott að frétta af okkur :o)

Ég er orðinn Svakalega Stór :o) Ég er núna kominn með 3 Tönnslur, Ég kann að sitja ALVEG SJÁLFUR og Ég er NæStUm búinn að fatta hvernig maður á að fara svona "áfram" þegar maður er kominn á fjórar! Svo mér fer FlJóTlEgA að takast að henda öllu niður úr hillunum og slíta blöðin af blómunum :o)

Núna erum við búin að flytja í nýtt hús og það er alveg RISASTÓRT :o) Mér finnst skemmtilegast að hlaupa útum allt í göngugrindinni minni og rífa dót uppúr kössunum sem liggja hér og þar um allt húsið :o) Svo það er nóg að gera hjá Mömmu að hlaupa á eftir mér og taka af mér dót sem ekki má leika með :o)

Kveðja Ari Freyr "TætiBuski"

4.7.2007 | 20:00

Hæhæ :o)

Ég er orðin svo Stór & Duglegur Strákur :o) Mamma er farin að vinna og ég er alveg SvAkAlEgA Duglegur að borða með ÖLLUM "Tveim" Tönnunum mínum :o)

Ég er nú samt ekkert alltof hress með það þegar Mamman mín þarf að fara í vinnuna. Ég er rosalega duglegur við að vakna klukkan 4 á nóttunni þegar Mamma er að fara frammúr og þá þarf Mamma að vekja Beggu frænku sem er ekkert svakalega hress svona snemma á morgnanna :o) Svo er ég Alltaf svo glaður og ánægður þegar Mamma kemur aftur heim úr vinnunni og Ég fæ stóra knúsið og kossana hennar :o)

Ég er sko Algjört MaTaRgAt :o) Mesta Sportið er þó að borða það sama og hinir eru að borða, kjöt, kartöflur, pasta, pulsur og margt fleira gott :o) Mamma setur matinn minn alltaf í svona vél svo ég geti borðað hann, það er soldið erfitt að vera bara með Tvær Tennur :o) Teehee

Kveðja Ari Freyr "MömmuSjúki"

8.6.2007 | 14:00

Gúggú Rúú :oD

Það er Allt Gott að frétta af mér eins og ALLTAF :o)

Ég stækka og stækka og er orðinn þvílíkt klár í göngugrindinni minni! Ég er búinn að fatta svona ýmislegt sem hún getur gert að gagni, eins og að taka tilhlaup í gegnum fallega hengið hennar Mömmu og grípa í spottana og hanga í þeim :o) Ég get líka hent ÖLLU niður af stofuborðinu, hent niður snúrunum með öllum þvottinum á gólfið, stolið veskjum og peysum af stólum til að naga, opnað skúffur og kámað á speglum og glerskápum :o) Mér þykir líka ískápurinn alveg frábær, ÉG VEIT að þar er MATUR :oD

Svo má auðvita Alls Ekki gleyma öllu svona dóti sem MÁ EKKI leika sér með, það er að sjálfsögðu alveg MEST spennandi :o)

En EKKERT af þessu er þó jafn spennandi og TÖLVAN :o) Teehee

Frábær þessi göngugrind, ég get sko ekki lifað án hennar, með henni get ég ferðast um allt hús og ELT alla sem mig langar að elta, ég fæ að fara með á klósettið og skoða ALLT dótið þar inni líka :o) Þvílíkt Lukkulegur með það :o)

Já, ég er sko orðinn meiri PrakkaraRassinn og þvílíkt hand "Óður" :o) Teehee

Ég er svo Findinn Gaur :o) Í gær fórum við Mamma í dýragarðinn með Rögnu vinkonu hennar. Mamma keyrði mig um í kerrunni að reyna að sýna mér fullt af dýrum. Hún reyndi að sýna mér beljur og svín, en ég bara tók ekkert eftir þeim. Þá fór hún með mig að sýna mér kindur og geitur, en ég tók ekkert eftir þeim heldur. Svo fórum við að skoða hestana, Mamma gerði sitt besta í að reyna að vekja einhvern áhuga hjá mér á þessum dýrum en ekkert gekk. Einn hesturinn meira segja kom með hausinn inn í kerruna og beit í gallann minn og togaði í mig. En allt kom fyrir ekki, ég bara hreinlega hafði mikið meiri áhuga á að leika mér með böndin í kerrunni, svo mamma bara gafst upp! Síðan á leiðinni til baka ákvað Mamma að kíkja aðeins á kanínurnar sér til skemmtunar, þær voru í svona glerbúri og fyrir ofan þær voru litlir nagGrísir. Mamma lagði kerrunni fyrir framan búrið og fór að klappa kanínunum, ALLT Í EINU heyrir hún Svaka Öskur í mér og ég var alveg þvílíkt spenntur með brosið út að eyrum. Þá hafði ÉG rekið augun í NAGGRÍSINA! Mamma skellihló af mér, henni fannst þetta ekkert smá findið, ég tók EKKERT eftir einhverjum RISAvöxnum skepnum sem reyndu að éta mig en ÞETTA SÁ ÉG! Teehee

Já, annars er ekki mikið meira að frétta! Bráðum fer Mamman mín að vinna, og þá ætlar Begga frænka mín að passa mig á daginn :o) Hún er BESTA frænkan mín, hún er alltaf að leika við mig og hún leyfir mér alltaf að vera með sér í Tölvunni :o)

Ég er nú samt ekkert viss um að Ég verði einhvað Hress með að Mamman mín fari að vinna. Ég er soldið skotinn í þessari Mömmu sem ég á, hún er auðvita LANG BEST :o)

Kveðja Ari Freyr "NagGrís"

15.5.2007 | 22:00

Fimm mánaða Gaur á Sumardaginn fyrsta :o)

Ég & Mamman mín fórum í bæinn í dag að heimsækja Aþenu & Elías Breka STRÁKAVININN MINN :o) Mér fannst það alveg SVAKALEGA gaman :o)

Við fórum út að labba í góða veðrinu í Mosó og stoppuðum í sjoppunni þar sem fullt af vinunum hennar Mömmu og Aþenu voru að skoða okkur Gaurana :o)

Svo voru teknar ALVEG FULLT AF MYNDUM af okkur PrAkKaRaRöSsUnUm saman :o)

Við erum auðvitað ALVEG LANG SÆTASTIR svo það er kannski ekkert skrítið að þessar Mömmur og þessir Pabbar séu alveg að missa sig yfir okkur :oD

Kveðja

Ari Freyr "PrAkKaRaRaSs"

19.4.2007 | 23:00



desember '09 | nóvember '09 | júní '09 | febrúar '09 | desember '08 | nóvember '08 | júlí '08 | janúar '08 | október '07 | ágúst '07 | júlí '07 | júní '07 | maí '07 | apríl '07 | mars '07 | janúar '07 | nóvember '06