![]() |
|
|
|
| Hæhæ, ég heiti Eva Sóley og er 3 ára skotta. Og ég er sko að verða stóra systir í lok maí. | |
|
Um mig:
Ég fæddist í Hreiðrinu þann 25. október 2006. Þegar að ég fæddist þá vó ég 3080gr eða 12 merkur og 49 cm. Ég var voða fíngerð og sæt þegar að ég kom í heiminn. Með fullt af svörtu sætu hári og fallega brún augu. Það var hún Guðlaug Pálsdóttir sem að tók á móti mér.
Ég er fyrsta barn foreldra minna. Pabbi minn heitir Davíð Þór og mamma mín heitir Þóra Kristín. Við eigum heima í Hafnarfirði. Ég er voða hress og dugleg stelpa, alltaf full af fjöri. Ég er ákveðin, sjálfstæð og ég veit hvað ég vil:). Ég er mjög dugleg að syngja. Svo er algjör bókaormur, elska bækur. Enda á ég fulla hillu af góðum bókum. Mér finnst einnig gaman að elda mat fyrir dúkkurnar mínar, hjóla á hjólinu mínu og svo finnst mér gaman í playmó og leika mér að lego kubbunum mínum. Það er alltaf nóg að gera hjá mér og ég er alltaf eitthvað að brasa. Ég er á leikskólanum Víðivöllum í Hafnarfirði og ég er á Bangsadeild. Það gengur mjög vel í leikskólanum og ég fer alltaf ánægð í leikskólann og heim af leikskólanum. Mamma og pabbi eru mjög stolt að eiga svona flotta og duglega stelpu. Enda er ég litli engillinn þeirra. . |
|
|
|
|
Til þín frá mömmu og pabba
Áður en þú varst til þráðum við þig Áður en þú komst í heiminn elskuðum við þig Áður en þú hafðir lifað eina stund hefðum við fúslega dáið fyrir þig þú ert kraftaverk lífsins Takk fyrir að vera til
|
|
| Þú ert gestur nr. 16366 |