EVA MAREN

Ég heiti Eva Maren og er 7ára. Ég fæddist laugardaginn 24mars 2001 klukkan 8:32 á landspítalanum. Ég var 3390gr og 50.5cm.
Ég lét sko bíða eftir mér í 2 vikur því mér leið svo vel í bumbunni hennar mömmu.

Ég er fyrsta barn bæði mömmu minnar og pabba og er alger prinsessa. Mamma segir að það hafi enginn dagur verið betri en dagurinn þegar ég fæddist og við erum sko búnar að vera bestu vinkonur síðan.

Ég bý á Álftanesi hjá mömmu minni og Pétri pabba mínum og litla bróðir mínum honum Daníel. Svo eigum við líka hund sem heitir Tína og fullt af fiskum
Mamma mín heitir Sigrún Ósk og maðurinn hennar heitir Pétur en ég kalla hann pabba, enda á hann alveg ofsalega mikið í mér.
Pabbi minn heitir Jóhann og hann á konu sem heitir Hjördís og þau eiga svo líka hana systur mínar, Alexöndru Eyju og Natalíu Valey. Hjördís á líka strák sem heitir Dagur Þór og hann er bara 1/2 ári yngri en ég.
Þannig að eins og þið sjáið þá er ég alveg ofsalega rík og margföld stórasystir.




DANÍEL

Ég heiti Daníel og er 2ja ára. Ég fæddist á landsspítalanum mánudaginn 30janúar 2006 klukkan 10:54 og ég var 3395gr og 52cm. Ég átti að fæðast tæpum 3 vikum seinna en ég vildi sko flýta mér í heiminn til að skoða hvað væri að bíða mín :o)
Mamma og pabbi voru sko ofsa glöð að sjá mig

Ég bý á Álftanesi með mömmu og pabba og systir minni henni Evu Maren og líka Tínu og öllum fiskunum.
Ég er annað barnið hennar mömmu en fyrsta barnið hans pabba en hann a nú samt mikið í henni Evu systir minni.
Mamma mín heitir Sigrún Ósk og pabbi minn heitir Pétur.
Ég er sko alger prins .









Rambó leikfélaganna er mættur á svæðið. Með barn í hrútsmerkinu mega foreldrar búast við miklu fjöri á heimilinu því það ríkir engin lognmolla í kringum hrútinn. Ekki ætlast til þess að barnið sitji kyrrt með hringlu. Þetta er barnið sem veifar þér ofan af hæsta tré, alls óhrætt við að taka áhættu. Hrútsbarnið er allt annað en hljóðlátt og lætur oft vel í sér heyra. Sem eldsmerki er hrúturinn orkumikill og hefur ávallt eitthvað fyrir stafni. Verður erfitt að ráða við litla hrúta? Það er líklegra en ekki. Foreldrar ættu eins fljótt og hægt er að kenna þessu barni að vinna með öðrum börnum. Að deila einhverju með öðrum er eitthvað sem kemur ekki af sjálfu sér – það þarf að kenna litlum hrútum. Þeir eru einnig ákaflega tapsárir. Þeir þrá athygli og eiga mjög auðvelt með að verða sér úti um hana með ýmsum aðferðum. Hrútar eru fæddir leiðtogar og ef þú ætlar að hafa eitthvað að segja er betra að láta þá vita með afgerandi hætti hver er við stjórnvölinn því annars er eins líklegt að stjórnin verði tekin úr þínum höndum. Lítill hrútur er oft eins og ótemja, lítið gefinn fyrir að hlýða reglum og vera þægur nema þegar honum hentar. Vegna þess hve hann er orkumikill er nauðsynlegt að hann fái mikla hreyfingu. Hann verður að fá að hlaupa um og róta til heima hjá sér. Ef hann fær ekki útrás fyrir orkuna verður hann pirraður og ergilegur. Honum líður best í lifandi og fjörugu umhverfi. Þar sem fljótfærni og óþolinmæði eru meðal veikleika hans þarf að kenna honum að hægja á sér og telja upp að tíu áður en hann rýkur af stað. Einnig þarf að venja hann á að ljúka því sem hann byrjar á.



Vatnsberabarnið fer fljótt sínar eigin leiðir hvort sem það er í fataburði, hugsun eða hegðun. Það er uppfinningasamt, frumlegt og fullorðinslegt og lærir snemma að tjá sig og skila heim fullorðinna. Litli vatnsberinn vill sjá um sig sjálfur og fara sínu fram og er oft á tíðum mjög dramatískur. Ef honum leiðist gæti hann átt það til að stofna til vandræða bara til að fá spennu og drama inn í líf sitt. Besta uppeldisaðferðin er fólgin í umræðu og skynsamlegum fortölum. Vatnsberinn er þrjóskur og lítið þýðir að skipa honum fyrir eða beygja hann til hlýðni með skömmum. Best er að koma fram við barnið sem vitsmunalegan jafningja því vatnsberinn er hugarorkumerki og því skipa umræður og skynsamlegar fortölur fyrsta sæti. Vatnsberabörnin geta sýnt ást og væntumþykju á frekar ópersónulegan hátt. Þau eru yfirleitt vingjarnleg og yfirveguð en ekki mjög tilfinningasöm og oft illa við mikið kjass.



Salka og Kolka
Indíana Mist
Dagbjartur Elí
Thelma Karen og Stefán Einar
Ásgeir Þór
Alexandra eyja
Natalía Valey
Dagur Þór
Björgólfur Bersi
Björgvin Snær
Gabríel og Salome
Alex og Kara
Rakel Lilja og Eva María
Lilja Marín
Sara Rún









Síðan okkar er læst en er flestum velkomið að fá aðgang endielga sendið okkur bara póst og við munum svara eins fljótt og hægt er.

*KNÚS*


Þú ert gestur nr. 6684