Vefdagbók
Myndaalbúm
Kveðjur frá gestum
Gullkorn
Dagbók barnsins
Kolbrún, Alex
Kolbrún, Alex

##Sumar 09##

0 | 0 | 18.8.2009 15:35:25 #

Feb, Mars & Apríl 09

0 | 0 | 10.4.2009 09:36:48 #

Komið þið sæl og Gleðilegt nýtt ár þó það sé komin febrúar.

Loksins kom ég með nýjar myndir og nýjar fréttir. Ef við byrjum bara á Alex Breka þá gengur honum ótrúlega vel í skólanum og hann er nokkuð sáttur. Hann er að tileinka sér fótboltann hann verður ekki ánægður ef hann missir af æfingu, en hann er búinn að keppa 2 sinnum og það er æðislegt að horfa á litla barnið sitt hlaupa þarna um og slást um boltann. hehe.

Aron Máni er duglegur í talþjálfun og hann er búinn að læra mörg orð og núna fyrst hefur hann náð að tengja orðin saman og tala í setningum en þetta er allt að koma hjá honum. hann er ótrúlegur fjörkálfur og elskar að stríða stóra bróður..

Kolbrún líf........... hún er orðin svo mikil frekju mús... hún ræður ríkjum hér...þarf ég að segja meira.

Nú húsið gengur sæmilega, okkur tókst að flitja í neðri hæðina fyrir jólin, en öll efri hæðin og húsið að utan er allt eftir... svo ég veit ekki hvenar það kemur en miðað við ástandið í dag þá segi ég aldrei.. en maður verður víst að halda í vonina. Nú við urðum að láta fugl greyið okkar fara, hann beit svo svakalega og ég var orðin hrædd um litla putta svo hann fór. en búrið stendur hérna ennþá og það kemur annar.... bara þarf að vera þolinmóð og finna rétta fuglinn eða bíða eftir að ungar komi, best að ala þá upp frá byrjun.

Nú svo er það bara stóra spurningin..... erum við að flitja til noregs um næstu jól????????? kanski að verði að veruleika. erum að skoða málið!

0 | 16.2.2009 11:40:34 #

Des & jan 2009

0 | 0 | 16.2.2009 10:20:26 #
Hæhæ fallega fjöldskylda:) TAKK ÆÐISLEGA fyrir fatasendinguna... Þetta er ekkert smá magn af fötum:) Bara æðislegt!¨:) Flottar myndirnar af ykkur.. en Elmar, ég er með leiðinlegar fréttir, held að það hafi verið gert vitlaust tattú á þig, ég veit voða sárt... en þú getur alltaf falið þetta, farðu bara ekkert úr að ofan :) hehe:) Knús til ykkar:) Sjáumst voandi fyrir jólin :) verðum að knúsa ykkur fyrir þetta allt saman :)
Eva María, Sveinn Kristinn og Eyþór Ingi | 0 | 4.12.2008 14:17:16 #
  • hæhæ alltaf jafn yndislegar myndirnar ! allir stækka svo fljótt! kveðja Elísa
    Elísa butt davíðsdottir
    |
    25.11.2008 15:04:40
  • Það er naumast aðdáandi :) :) bara allt bakið :) Krakkarnir ekkert orðin smá stór og flott.
    IRI
    |
    14.11.2008 16:05:45

Ágúst, sept og okt bland

0 | 0 | 12.11.2008 10:44:04 #
hæhæ mikið áttu flott skott !!! gaman að skoða myndirnar hja ykkur eins og alltaf . en ja það er vona á kríli 25 feb læt vita hvort það er kanski kemur stelpa??? hafið það sem allra best kveðja elisa og alexander
Elísa butt davíðsdottir | 0 | 26.8.2008 10:02:13 #

Júlí 2008

0 | 0 | 17.7.2008 13:26:48 #

Júní 08

0 | 0 | 8.6.2008 19:50:53 #

Mai 2008

0 | 0 | 21.5.2008 20:45:51 #

Jæja loksins nýjar myndir..

við fórum á bílasýninguna í fífunni...voða gaman hjá okkur (sjáið myndirnar)Laughing svo er nýr fjölskyldumeðlimu á leiðinni til okkar....já nei ég er ekki ólétt aftur....... hann heitir Vírus og er Amasone fugl... okkur hlakkar mikið til en hann kemur til okkar 25 mai... við erum að farast úr spenningi eða þá aðalega ég....Smile svo er bara að kenna honum að segja "matta sexý" hahahahaha ég setti mynd af honum neðst í nýju möppunni..

Þanga til næst.... síja

0 | 21.5.2008 20:31:23 #

Halló krakkar rosalega er gaman að skoða myndirnar af ykkur og nýja flotta húsinu ykkar. Vírus er fer nú alveg að koma til ykkar og þá verður sko fjör. kv. Edda, Björn, Eyþór, Björn Svanberg, Snorri og Vírus
Edda Lóa Phillips | 0 | 15.5.2008 07:53:24 #
Gott að það gengur vel með drenginn :) og gaman að heyra að allt er á uppleið :) Eruð þið ekki orðin spennt að komast í stærra pláss ;):):) Það verður frábært.
IRI | 0 | 21.4.2008 11:33:49 #

Jæja loksins nýjar myndir.. það er ervitt að smella myndum af börnunum þessa dagana.. því Aron Máni er búinn að rústa þremur myndavélum takk fyrir.

Aroni Mána gengur vel í þjálfuninni hann er farin að segja svo mörg orð og farin að sýna miklar frammfærir frá áramótum.. eða síðan við skiptum um mataræði.. heilsumatur eingöngu. hann er duglegur í grófhreifingum og í samleik og nú er byrjað að þjálfa hann í fínhreyfingum.. þetta kemur allt með tímanum og miðað við þessar frammfærir þá hef ég engar áhyggjur af honum.. hann verður snillingur einhvern daginn...(vonandi)

Alex er á fullu í fótboltanum.. þrisvar í viku og það stittist í útifótboltann... hann er svo spenntur, getur ekki beðið eftir að fá takkaskó og hlífar.. svo er hann búinn að suða pínu um nýtt hjól, nýjan hjálm, línuskauta og hlífar og fleiri íþróttarbúninga og latabæ galla... það á sko að taka sumrinu með trompi.. hehehehe

Allt fínt af okkur, Elmar er loksins byrjaður að vinna á fullu og nú fer allt að lagast hjá okkur.. 1mai verða góð mánaðarmót hjá okkur loksins.

Húsið gengur vel.. það er búið að vera vinna í neðri hæðinni hjá okkur núna í 3 vikur og neðri hæðin verður tilbúin um 1 júlí eða 1 ágúst til innflutningar með þessu áframhaldi. sem eru gleðifréttir. vont að vera í litlum bílskúr með 3 börn en okkur líður samt vel þrátt fyrir þrengslin. jæja ég kveð í bili.

P.s. ÉG VIL BARA MINNA ALLA Á ÞAÐ SEM LESA...  ALLTAF KAFFI Á KÖNNUNNI, ÞAÐ TEKUR EKKI NEMA 40 MÍN AÐ RENNA TIL OKKAR ÚR BÆNUM VIÐ ERUM EKKI HINUM MEGIN Á HNETTINUM SKO......... HEHEHEHE....... OG VIÐ BÍTUM EKKI!!

0 | 4.4.2008 15:29:29 #

Apríl 08

0 | 0 | 4.4.2008 11:37:47 #

Jæja góðan daginn!!!

loksins kem ég með smá fréttir... ognýjar myndir koma á morgun.  Alex er byrjaður að æfa fótbolta og honum finnst það rosa gaman..  hann er líka að bíða eftir að komast að í fimleikum.. hann vill vera næsti íþrótta álfurinn.. hann er alltaf úti að leika sér allan daginn hann er dreginn inn blautur og þreittur kl 8 á kvöldin.. og hann elskar að vinna mikið með pabba, það má segja að hann sé að allan daginn... svo mikið að gera hjá mér mamma... segir hann alltaf

Aron Máni hann er kominn á nýtt mataræði og nú er það bara hollustan.. engar mjólkurvörur engin sykur og ekkert hveiti..  bara soja, spelt og sykurlaust heilsufæði.. sem hjálpar honum mikið.. hann er farin að syna góðar frammfarir og er farin að taka þátt í samleik með öðrum börnum, hann er farin að tala smá... eitt og eitt orð eins og mamma, hæ,bæ,epli og fl.. hann skilur miklu meira og er duglegur í nánast öllu.. mikill áhugi hjá honum að gera þrautir og að vera í þjálfun. ég hugsa að með þessu frammhaldi verður hann í venjulegum skóla með sýnum jafnöldrum.. eða það vona ég svo sannarlega.

Kolbrún hún lætur strákana ekki vaða yfir sig.. hún er farinn að sýna þeim hver ræður á þessu heimili.... hún er alltaf brosandi og hlæjandi allan daginn.. á það til að sýna mömmu sinni smá frekju og vill tæta í skápunum.. en hún er samt algjör mús. hún kemst inn í leikskólann í ágúst. vá hvað þetta er fljótt að líða!!!!

Annars er allt gott að frétta af okkur, við erum að klára gestabað, forstofu og þvottarhúsið í húsinu okkar.. þetta er allt að smella saman.. rosa flott. þá er bara stofan og eldhúsið og sundlaugin eftir þá er neðri hæðin búin.. vona samt að við verðum búin að selja húsið áður.. ef ekki þá reynum við að stefna á að neðri hæðin verði búin fyrir næstu jól.. jæja ég ætla að kveðja í bili..   sjáumst!!

0 | 7.3.2008 17:49:02 #

febrúar 2008

0 | 0 | 27.2.2008 10:32:33 #
Var að lesa ,,gullkornin" sem þið skrifuðuð um börnin ykkar. Þar skein ástin og gleðin svo sterkt í gegn. Yndislegt að geta tjáð sínar tilfinningar á þennan hátt og ég tali ekki um það veganesti sem þið gefið börnunum út í lífið. Megi hinn hæsti himnasmiður blessa ykkur. Kveðja Magga amma
Margrét Jónsdóttir | 0 | 26.2.2008 22:05:07 #