-
4 ár síða þú lést,ég er með logandi kerti í allan dag og hugsa um þig ,alla gleðina sem þú gafst okkur ,við sökknum þín mikið elsku Jakob Örn. knús og kossar .þín amma og afi.Sigga amma|9.3.2012 23:53:26
-
Yndislega fjölskylda vil að þið vitið að ég hef hugsað mikið um hvernig Jakob Örn væri í dag meðal okkar.Drengurinn að verða fimmtán með öllu því sem fylgir unglingsárunum. Fysta ástin , fyrsti kossinn og svo auðvitað boltinn og vinirnir. Verð svo sorgmædd í hjarta mínu að þið kæra fjöskylda njótið hans ekki meira hér í þessu jarðlífi. En ég trúi því að honum hefur verið ætlað eitthvað annað hlutverk en hvað það var mun ég aldrei skilja. Hér á Norðurbrautinni kveiktum við á kertum til að minnast góðs drengs. Og meðan það ómaði stelpuskrækir og hlátur frá herbergi Agnesar þá varð ég klökk vegna þess hve heppin ég er að eiga unglinginn minn. Guð styrki mömmu, pabba og bræður þína. Guð geymi þig.Berglind Hafþórsdótir|9.3.2012 23:40:26
Sæl kæra fjölskylda, ég á sjálf einn Jakob Örn sem verður 11 ára á þessu ári og æfir fótbolta og handbolta. Mér finnst rosalega erfitt að lesa dagbókina hjá ykkur en rosalega eruð þið dugleg, haldið áfram að vera svona sterk. Takk fyrir að leyfa mér að fylgjast með. kv. ElsaElsa Jakobsdóttir | 0 | 15.1.2012 01:16:10 #
Kristófer Birkir, mjög góður vinur hans Jakobs hefur samið lag til minningar um besta vin sinn. Jakob og Krissi kynntust í 6 ára bekk, báðir nýjir í hverfinu og að byrja í Salaskóla. Fyrst um sinn voru þeir ekki saman í bekk en voru saman í Dægradvöl eftir skóla en þar lágu leiðir þeirra saman. Eftir því sem leið á skólagönguna var óskað eftir því að þeir yrðu saman í bekk sem varð úr. Vinátta þeirra var sönn og heil, þeir stóðu með hvor öðrum í hverju sem var, prakkarastrik þeirra voru ófá og sundferðirnar svo margar að engin tala er á þeim. Nánast á hverjum degi eftir kvöldmat hringdust þeir á og fóru saman í Salalaugina þar sem ærslast var og slakað á í heitum pottum og gufu. Þó oft slettist upp á vinskapinn og þeir skelltu hurðum svo foreldrarnir hrukku í kút þá leið varla nóttin þar til þeir voru aftur saman eins og ekkert hefði í skorist. Þeir fengu líka oft að gista saman. Síðustu verslunarmannahelgina hans Jakobs ákváðum við að bjóða Krissa með okkur í fellihýsið, það var frábær ferð sem við rifjum oft upp. Foreldrar hans Krissa mættu 2 nóttum síðar á tjaldsvæðið og voru með okkur það sem eftir var af helginni. Mamma hans fraus reyndar fyrri nóttina en því var reddað síðari nóttina hennar og er hún orðin nokkuð sjóaðari í útilegum í dag ;) þar fengum við tækifæri til að kynnast þeim betur en í gegnum strákana okkar. Eftir andlát Jakobs hefur Krissi alla tíð verið afskaplega góður við Rafnar yngri bróður Jakobs. Hann hefur leikið við hann og spjallað og staðið með honum í lífsins ólgusjó. Þeir sameinuðust í gegnum sorgina og söknuðinn eftir sínum besta vini og bróður.
Lagið sem Krissi samdi er afskaplega fallegt og grípandi og við þökkum honum kærlega fyrir þessa fallegu gjöf.
Lagið heitir "Þú vakir yfir mér" og spilar Krissi sjálfur undir á gítar. Heyra má lagið hér
-
var að vinna í salarlaug þegar þetta áfall gerðist og man vel eftir honum Jakobi, alltaf svo lífsglaður og ljúfur. er búin að vera lesa vefdagbókina og ég fæ bara gæsahús og tár í augun. En hann er með ykkur alla daga. knús á ykkur fallega fjölskylda og gangi ykkur velBerglind|27.12.2011 04:18:39
-
Hugurinn er hjá þér elsku Jakob Örn við sökknum þín mikið og minningin um þig er ljós í lífinu,við elskum þig .Gleðileg jól. amma og afi.Sigga amma.|24.12.2011 15:07:29
-
Fallega skrifað og yndislegar minningar um flottan strák, hugur minn er oft hjá honum og ykkur þó það sjáist ekki alltaf. Ég á ómetanlegar minningar úr ferðinni okkar til Calpe og kíki oft á myndirnar þaðan, ferð sem stendur uppúr öllum öðrum ferðum sem ég hef farið í með börnin mín og ég veit að Elías lifir á þeim minningum og fleirum um Jakob Örn. Milljón knús og kossar á ykkur flotta fjölskylda. Kærleikskveðja, SibbaSibba|22.6.2011 18:33:34
-
Mikið er þetta falleg dagbókarfærsla. Þið hafið verið óskaplega dugleg við að skapa ómetanlegar minningar með drengjunum ykkar. Við tölum oft um útileguna í Húsavík, rigninguna og fortjaldið! Kveðja, Heiða og BjöggiBjarnheiður M|21.6.2011 22:13:39
-
Fallegur dagur í dag heiðrar minningu um góðan dreng. Alltaf jafn yndislegt að lesa færslurnar ykkar um hann og stundirnar ykkar saman þótt það sé líka erfitt. Kærleikskveðja úr BorgarnesiMaj-Britt|21.6.2011 22:00:15
-
Hufurinn er hjá elsku Jakobi og ykkur elsku Herdís,Siggi og strákarnir. takk fyrir yndislegan dag.Sigga amma.|21.6.2011 21:06:35
-
Megi guð og góðar vættir fylgja ykkur.Gunnar Þórarinsson|21.6.2011 20:39:04
-
Elsku fjölskylda. Fallegar ferðasögur af flottum dreng. Minningin lifir. Sjáumst á eftir á leiknum:-)Herdís|21.6.2011 18:00:01
-
Elsku Herdís,Siggi og fjölskylda mikið rosalega voruð þið dugleg að ferðast og gaman að fá að lesa þessa ferðasögu,þið eruð sko hetjur í mínum huga.hugsa til ykkar á þessum fallega degi.sólrún steinarsdóttir|21.6.2011 16:15:20
-
Ég hugsa stöðukt um þennan sorglega atburð sem átti sér stað. Og hugsa hvort þetta geti verið satt eða hvort þetta hafi verið skelfilegur draumur. Ég samhryggist ykkur innilega og gangi ykkur sem allra best í lífinu. Samúðarkveðja Skúli :(Skúli Eggert Kristjánsson Sigurz|21.6.2011 16:01:22
-
Hugur minn er hjá ykkur elsku Herdís og fjölskylda.Helga Skúla|21.6.2011 15:24:32
-
Maður bara tárast við að lesa færsluna. Endalaust knús á ykkur elsku Herdís, Siggi og strákar.Sigga|21.6.2011 15:19:21
-
Kæra fjölskylda Hamingjuóskir með stærsta strákinn ykkar í dag. Ég get bara ímyndað mér hvernig það er að missa barnið sitt, og samt er ég viss um að það er miklu verra en maður nokkur tíman getur ímyndað sér. Sendi ykkur hlýjar hugsanir. Kveðja Rakel aprílmammaRakel|21.6.2011 13:20:06
-
Hugsa til ykkar. kveðja BryndísBryndís Valdimarsdóttir|21.6.2011 12:29:36
-
Elsku Herdís og Siggi. Ég fékk tár í augun og kökk í hálsinn við að lesa nýju dagbókarfærslurnar. Sé fyrir mér glaðværan dreng sem kemur og spyr eftir Sigga :) Guð blessi ykkur og alla strákana ykkar fjóra.Álfheiður|21.6.2011 12:27:07
Jakob Örn elskaði ferðalög, það var hans uppáhalds. Við foreldrarnir vorum ekki minna áhugasöm svo við notuðum hvert tækifæri til að ferðast.
Mjög ungur byrjuðum við að fara í sumarbústaðaferðir saman, hann fékk t.d. fyrstu tvær tennurnar í sumarbústað 9 mánaða gamall.
2ja ára, árið 1999 fórum við í fyrsta skipti erlendis með Jakob Örn. Þá fórum við til Mallorca í 3 vikur. Jakob veiktist mikið snemma í þeirri ferð og tveim dögum síðar var hann lagður inn á einkasjúkrahús með okkur foreldrunum. Ekki er almennilega vitað hvað amaði að honum en það var leitað að heilahimnubólgu, lungnabólgu og fleiru en niðurstaðan var vírus ásamt gin og klaufaveiki. Við dvöldum í 4 daga á spítalanum með góðri hjálp frá fararstjóranum. Þá áttum við enn eftir 2 vikur í sólinni og nutum þess mjög vel þó við færum okkur hægt.
3ja ára, árið 2000 fórum við hringinn í kringum landið á 11 dögum. Við fengum lánaðann gamla tjaldvagninn hjá ömmu og afa í fjöllunum og það var meiriháttar ferð. Þetta var brúðkaupsferðin okkar J
4ra ára, árið 2001 fórum við til Costa del Sol í 2 vikur. Algjör snilldarferð. Kristín María, Robbi og Jóhanna Rut vinafólk okkar og þeirra vinafólk, Kata, Heiðar og Aron Breki voru með okkur í eina viku. Seinni vikuna voru svo Eyrún amma, Jón afi og Árni og Íris með okkur. Þá var Rafnar Örn hálfnaður í bumbunni á mömmu sinni. Þessi ferð var frábær, Jakob skemmti sér mjög vel en hann prófaði t.d. mótorhjól og mini tivolitæki, hitti apa, lék sér endalaust á ströndinni og í sundlaugargarðinum.
Árið 2002 fæddist Rafnar Örn og það sumar ferðumst við vítt og breitt um landið með tjaldvagninn, við t.d. gistum á Húsavík þar sem ringdi svo svakalega að við urðum að moka með sandkassafötunni vatninu út úr tjaldvagninum. Þá voru Bjöggi, Heiða, Þorgils og Maddý með í för. Maddý varð svo lasin að hún fór með mömmu sinni á sjúkrahúsið á Akureyri og við fylgdum þeim eftir og vorum á tjaldstæðinu með Bjögga og Þorgils. Það var ótrúlega auðvelt að ferðast með strákana tvo saman, þeir undu sér vel í aftursætinu fleiri fleiri kílómetra.
Árið 2003 veiktist Rafnar alvarlega. Jakob stóð eins og klettur við hliðina á honum og kallaði sjúkrahúsið í Fossvogi alltaf ungbarnaspítalann hans Rafnars eftir það. Það sumar þorðum við ekki erlendis vegna veikindanna og eyddum sumrinu heima. Við fengum leigðan sumarbústað á Flúðum þar sem margir góðir gestir voru með okkur. Helga, Gunni, Arnar, Telma og Andrea nýfædd voru með okkur, Guðrún og Árni nágrannar líka. Guðrún systir var í heimsókn frá Danmörku og Sibba systir kom með sína krakka og Sigga amma og Láki afi líka. Sunna frænka reyndi að kenna okkur snú snú með misgóðum árangri.
Árið 2004 var mamman komin með sólarlandaþrá á háu stigi svo við skelltum okkur til Benidorm og gistum á Hótel Bali í 2 vikur. Þá voru Eyrún amma og Jón afi (amma og afi í fjöllunum), Íris, Árni og Axel með okkur allan tímann. Rosa skemmtileg ferð þar sem m.a. var farið í Terra Mitica skemmtigarðinn. Þetta sumar fórum við líka í eina viku vestur í Örlygshöfn með Óla og Sirrý. Þar var sko frábært að vera og við fórum og príluðum upp Látrabjarg, kíktum á Rauðasand, fórum að Sjöundá, fórum á Tálknafjörð og Patreksfjörð og lékum okkur á gömlu bryggjunni í Örlygshöfn. Ótrúlega fallegur staður fyrir vestan.
Árið 2005 varð Jakob 8 ára á Spáni. Þá vorum við á Calpe í 2 vikur með Sibbu, Gumma, Elíasi og Sigríði Dís. Krakkarnir léku sér endalaust saman enda miklir vinir og svo spilaði karlpeningurinn líka mikið Yatzi við börnin, frábær ferð. Á Calpe kleif Jakob Ifach höfðann með pabba sínum, Gumma og Elíasi. Ifach höfðinn er mjög hár klettur og ekki á allra færi að ganga þangað upp. Feðgarnir lögðu í hann kl 7 um morgun til að vera á undan hitanum meðan Rafnar og mamman sváfu út.
Árið 2006 fórum við í eina af okkar eftirminnilegustu og skemmtilegustu ferðum. Við fórum til Ítalíu í 3 vikur og heimsóttum okkar yndislegu vini Helgu, Gunna, Arnar, Telmu og Andreu. Við vorum fyrst á heimili þeirra í eina viku en tókum okkur þá til og keyrðum niður Ítalíu til Toscana þar sem við höfðum öll saman leigt okkur hús í eina viku, Siggi og Gunni voru nú ekki alveg vissir hvað þeim þótti um þetta uppátæki maka sinna, að bóka hús á netinu af Ítala sem skyldi ekki stakkt orð í ensku. En húsið var fullkomið og garðurinn, stór einkasundlaug og nóg pláss fyrir alla. Þarna áttum við frábæra daga, nutum alls hins góða sem Toscana hafði upp á að bjóða ásamt því að keyra og skoða Skakka Turninn í Písa. Það þótti strákunum mjög merkilegt. Við fórum líka að Como vatni (þar sem George Clooney býr) og eyddum einum degi á ströndinni þar, æðislegt. Svo fórum við í Ondaland vatnsrennibrautargarðinn þar sem allir fóru hamförum í rennibrautunum. Við fórum líka í Gardaland sem er Tívolígarður og þar fór Jakob í sinn stærsta rússibana, honum leist nú ekki á það í röðinni en röðin gekk svo hratt að ferðin var búin áður en hann vissi af. Eftir ferðina okkar til Toscana dvöldum við í eina viku heima hjá Helgu og Gunna og urðum vitni að brjáluðum fagnaðarlátum Ítala þegar þeir urðu heimsmeistarar. Helga og Gunni voru sannkallaðir höfðingjar heim að sækja og Jakob átti frábærar stundir með Telmu sem var alla tíð alltaf svo yndislega góð við hann. Strákunum var boðið inn í flugstjórnarklefann á leiðinni heim og það var skemmtileg upplifun.
Árið 2007 fórum við í eina stærstu ferðina okkar sem hefur skapað ómetanlegar minningar. Þá fórum við fjögur saman, fjölskyldan, til Flórída í 2 vikur. Þessi ferð var síðasta ferðin sem Jakob Örn fór erlendis. Við leigðum hús af Árna kunningja okkar, leigðum okkur bíl og nutum alls þess besta sem Flórída hafði upp á að bjóða fyrir börn. Við fórum í Universal Studio Island of Adventure, Disney World Magic Kingdom og Sea World. Við sáum Bósa Ljósár, Jurassic Park og Sjóræningja Karabískahafsins :) king kong, ásamt fullt af öðru en Bósi stóð klárlega upp úr. Í Sea World sáum við hákarla, höfrunga, sæljón, krókódíla, mörgæsir og önnur sjávardýr. Jakob fór í golf með pabba sínum og svo forum við nokkrum sinnum í sundlaugargarðinn. Við keyrðum heila 1100 km í þessari ferð og gerðum okkur alveg lengri bílferð fyrir bestu pizzuna. Strákarnir fengu aftur tækifæri til að fara inn í flugstjórnarklefann og það fannst þeim alveg frábært.
Sumarið 2007 keyptum við okkur fellihýsi og ferðuðumst talsvert á því um landið. Við fórum m.a. í Ásbyrgi í nokkra daga með móðurfjölskyldunni. Þar spilaði Jakob endalaust fótbolta við frændur sína Jóa, Hjálmar og Þór. Við grilluðum sykurpúða, settum upp gervitennur og fleira sniðugt. Við gengum um Dimmuborgir og heimsóttum Goðafoss og Dettifoss sem var alveg magnaður. Um verslunarmannahelgina buðum við Krissa besta vini Jakobs með okkur og það var frábær helgi þó það blési soldið á okkur um nóttina. Það var gott að hafa gefið þeim tækifæri til að fara í útilegu saman. Ein ferð þetta sumar stendur líka sérstaklega upp úr en þá fórum við til Eyja með Breiðablik í 5 daga. Ótrúlegar minningar sem við eigum úr þeirri ferð af frábærum strákum, foreldrum þeirra og þjálfurum.
Ég hef ekki tölu á öllum þeim sumarbústaðarferðum sem við fórum í á hverju einasta ári, ásamt fullt af dagsferðum um nágreni Reykjavíkur og einn minnisstæður rúntur var Reykjanesið þar sem við gengum á brúnna milli tveggja heimsálfa, þar sem flekar Evrópu og Ameríku mætast.
Jakob fór líka 3x á Goðamótið á Akureyri og einu sinni fór hann í Skákferð til Eyja. Hann elskaði þessar ferðir og gat varla beðið eftir þeirru næstu.
Hér að framan hef ég sagt frá öllum utanlandsferðunum hans Jakobs og einhverjum ferðum innanlands. Ég gleymi samt fullt af ferðum innanlands enda voru þær margar á hverju einasta ári. Aðeins mánuði áður en Jakob Örn lést fórum við saman í sumarbústað eina helgi. Yndislega róleg helgi sem við fjögur nutum saman, hlökkuðum til væntanlegs bróðurs, lékum okkur saman, slöppuðum af, fórum í heita pottinn og borðuðum góðann mat.
Að kvöldi 9 mars 2008 kvöddum við Jakob Örn og hann fór af stað í stærstu ferð okkar allra, úr þessum heimi á góðann stað. Í dag er sársaukinn mikill yfir því að hafa ekki fengið að hafa hann lengur hjá okkur. Við minnumst hans í dag á 14 ára afmælisdegi hans og hugsum hlýtt til hans og allra minninganna sem við eigum um yndislega fallega, ljósa, duglega, barngóða, hlýja og hugrakka strákinn okkar. Við elskum þig Jakob Örn.
Ástarkveðja, mamma, pabbi, Rafnar Örn, Óttar Örn og Ívar Örn.





